Ekið á sextán ára strák á rafmagnshlaupahjóli í Hlíðunum Sextán ára strákur á rafmagnshlaupahjóli varð fyrir bíl í Hlíðunum í Reykjavík á sjötta tímanum í gærkvöldi en vitni sá strákinn fljúga í loftinu með alla anga úti áður en hann lenti á götunni, að því er kemur fram í dagbók lögreglu. 27.9.2022 06:25
Saka Bandaríkin um að reyna að veikja Íran í skugga mótmæla Yfirvöld í Íran hafa sakað bandarísk stjórnvöld um að nýta sér mótmælin sem nú standa yfir vegna dauða ungrar konu til að veikja Íran og segjast munu bregðast við. Ekkert lát er á mótmælunum sem hófust um þar síðustu helgi en á fimmta tug hafa látist samkvæmt opinberum tölum. 26.9.2022 12:36
Búast við þrjú til fjögur þúsund manns í Laugardalshöll á dag Bólusetningarátak í Laugardalshöll hefst á morgun þar sem einstaklingum sextíu ára og eldri verður boðið fjórða skammt bóluefnis gegn Covid og inflúensubólusetningu samhliða því. Framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins á von á allt að þrjú til fjögur þúsund manns á dag í höllina en sambærilegt átak er að fara af stað víðar á landinu. 26.9.2022 11:31
Pundið ekki verið veikara gegn dal í fimmtíu ár Sterlingspundið hefur hríðfallið gagnvart Bandaríkjadalnum og hefur ekki verið lægra í fimmtíu ár. Fjármálaráðherra Bretlands hefur boðað skattaívilnanir og 45 milljarða punda aðgerðarpakka. Stjórnarandstaðan kallar eftir svörum frá ríkisstjórninni um hvernig bregðast eigi við en hagfræðingar segja ríkisstjórnina við það að missa allan trúverðugleika. 26.9.2022 09:18
Róleg nótt hjá björgunarsveitunum miðað við nóttina þar á undan Björgunarsveitir sinntu einhverjum minniháttar verkefnum í nótt en þó ekkert í samanburði við aðfaranótt sunnudags. Björgun ferðamanna í Möðrudalsöræfum, vatnstjón á Akureyri og foktjón á Austfjörðum voru meðal helstu verkefna. 26.9.2022 08:33
Hefja aftur bólusetningarátak í Laugardalshöll Bólusetningar með fjórða skammt bóluefnis gegn Covid-19 hefjast í Laugardalshöll á morgun fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins sextíu ára og eldri. Boðið verður upp á inflúensubólusetningu samhliða. Stefnt er á að bjóða yngri einstaklingum örvunarskammt eftir að átakinu lýkur. 26.9.2022 07:40
„Ítalía valdi okkur“ Flokkarnir á hægri vængnum á Ítalíu ættu að vera með meirihluta í báðum deildum þingsins en kosningar þar í landi fóru fram í gær. Giorgia Meloni, leiðtogi Bræðra Ítalíu, fagnaði sigri í sjónvarpsávarpi í nótt en hún gæti orðið fyrsti kvenkyns forsætisráðherrann á Ítalíu og fyrsti öfgahægri ráðherrann frá því að Mussolini var við völd. 26.9.2022 07:22
Undir áhrifum á 164 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði ökumann á öðrum tímanum í nótt en sá hafði mælst á 164 kílómetra hraða á Kringlumýrarbraut í Kópavogi, þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund. Að því er kemur fram í dagbók lögreglu fór ökumaðurinn ekki strax að fyrirmælum lögreglu og var kominn í Garðabæ þegar hann stöðvaði loksins. 26.9.2022 06:23
Hægriflokkarnir stefna á stórsigur með öfgahægrikonu í fararbroddi Ítalir ganga til þingkosninga á morgun og er baráttan hörð á milli flokkanna á hægri og vinstri vængnum. Væntanleg orkukreppa og stríðið í Úkraínu hafa áhrif á kosningarnar í ár en allt stefnir í að öfgahægriflokkur fái forsætisráðherrastólinn í fyrsta sinn frá því að Mussolini var í embætti. Kona gæti í fyrsta sinn í sögunni orðið forsætisráðherra Ítalíu. 24.9.2022 10:00
Áfram gríðarlegt álag á heilsugæslunni þó sumrinu sé að ljúka Gríðarlegt álag er á heilsugæslustöðvum höfuðborgarsvæðisins um þessar mundir. Mönnun er að komast í eðlilegt horf eftir sumarið en nú tekur við uppsöfnuð þörf eftir síðustu tvö ár. Framkvæmdastjóri lækninga hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir nokkra bið eftir tímum og býst við að róðurinn verði áfram þungur. 23.9.2022 19:31