Stöðug skjálftavirkni og óróamerki áfram Óróapúls, sem Veðurstofan kallar litla vaxandi skjálfta með stuttu millibili, hófst klukkan 14:20 suður af Keili við Litla-Hrút og mælist á flestum jarðskjálftamælum. Slík merki mælast í aðdraganda eldgosa en ekki hefur verið staðfest að eldgos sé hafið. 3.3.2021 14:52
Flytur heim og fær ekki fæðingarorlof: „Þetta er bara ein hindrunin af mörgum“ Bjarki Brynjarsson og Þóra Sigurðardóttir eru búsett í Noregi, eiga von á sínu fyrsta barni í maí og ætla að flytja heim til Íslands í vor. Þóra á rétt á fæðingarorlofi í Noregi þar sem hún heldur starfi sínu áfram. Bjarki á hins vegar hvorki rétt á fæðingarorlofi á Íslandi né í Noregi vegna ólíkra viðmiða um rétt til fæðingarorlofs í löndunum tveimur. 27.2.2021 22:01
Líklegra að ríkisstjórnin haldi ef minni flokkar ná ekki manni inn Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og forseti stjórnmálafræðideildar, telur að sitjandi ríkisstjórn muni halda samstarfi áfram eftir kosningar, haldi flokkarnir þrír meirihluta. Ef litlir flokkar nái ekki manni inn séu auknar líkur á því að ríkisstjórnin haldi meirihluta. 23.2.2021 00:17
Fá að mæta í skólann en skilyrði um skimun tvisvar í viku Sérfræðingar í Danmörku leggja til að leyft verði að opna ákveðnar verslanir og að afþreying utandyra fái að hefjast á nýjan leik þegar tilkynnt verður um næstu skref við afléttingu takmarkana vegna kórónuveirufaraldursins í Danmörku. Þá er lagt til að nemendur sem eiga að útskrifast í vor fái að mæta aftur í skólann aðra hvora viku. Aftur á móti á það aðeins við nemendur í ákveðnum landshlutum og er háð því að nemendur sýni reglulega fram á neikvætt covid-19 próf. 22.2.2021 23:31
NASA birtir myndband af lendingu Preseverance á Mars NASA birti í dag myndband af sögulegri lendingu vélmennisins Preseverance á Mars í síðustu viku. Myndbandið sýnir síðustu mínúturnar af, að margra mati spennuþrungnum, aðdragandanum að lendingunni og af lendingunni sjálfri þegar hjól vélmennisins, eða geimjeppans, snertu loks yfirborð plánetunnar. 22.2.2021 23:03
Langvarandi áhrif Covid-19 minnki yfirleitt með tímanum Tæp sjötíu prósent þeirra sem greindust með covid-19 í fyrstu bylgju faraldursins hér á landi segjast hafa fundið fyrir þreytu og um helmingur hefur fundið fyrir verkjum og mæði, eftir að hafa jafnað sig af sjúkdómnum sjálfum. Langvarandi áhrif covid-19 fari þó minnkandi með tímanum. Þetta segir Sigríður Zoega, sérfræðingur í hjúkrun og dósent við Háskóla Íslands, en hún heldur utan um rannsókn um eftirköst covid-19 á Íslandi. 22.2.2021 21:01
„Í rauninni er hægt að finna myglu í hverju einasta húsi“ Líffræðingur og lýðheilsufræðingur hjá Eflu verkfræðistofu segir að finna megi myglu í einhverjum mæli í öllum húsum. Það sé upp að vissu marki eðlilegt að mygla myndist en mikilvægt sé að vera vel vakandi og fjarlægja alla myglu sem upp kemur. Góð loftskipti gegni lykilhlutverki í baráttunni gegn myglu í húsum. 22.2.2021 18:16
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fyrrverandi læknir sætir rannsókn vegna gruns um vanrækslu og röð alvarlegra mistaka sem leiddu til andláts að minnsta kosti eins sjúklings. Fjallað verður um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 22.2.2021 18:00
Hálf milljón punkta á forsíðunni, einn fyrir hvert tapað líf Hátt í hálf milljón hefur látið lífið í Bandaríkjunum af völdum covid-19 frá því við upphaf faraldursins þar í landi. Stórblaðið New York Times birti af þessu tilefni hálfa milljón svartra punkta á forsíðu sinni, sem tákn fyrir hvern þann sem látið hefur lífið af völdum sjúkdómsins í landinu. 21.2.2021 17:45
Sprengjusveit eyddi breyttum flugeldi sem fannst í fjörunni Sprengjusérfræðingar frá embætti ríkislögreglustjóra voru sendir á vettvang eftir að lögreglu barst tilkynning um rörasprengju í fjörunni við Arnarnesvog í dag. 21.2.2021 16:42