Gul viðvörun á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun tekur gildi á Suðausturlandi klukkan ellefu í hádeginu á morgun. Hún verður í gildi í tíu klukkutíma, til klukkan níu um kvöldið. 20.8.2024 16:44
Ólafur Ragnar skákar Vigdísi og Guðna Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er efstur á tekjulista forseta, alþingismanna og ráðherra með 4,3 milljónir króna á mánuði. Guðni Th. Jóhannesson, einnig fyrrverandi forseti, er með 3,4 milljónir á mánuði og Vigdís Finnbogadóttir með 3 milljónir á mánuði. 20.8.2024 16:27
Hnífi beitt í árás í Skeifunni Tveir voru í dag handteknir grunaðir um að hafa sært annan mann með hnífi á bílastæði í Skeifunni. Maðurinn er ekki með lífshættulega áverka en var fluttur á slysadeild. 20.8.2024 15:17
Topparnir hjá hinu opinbera Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, var tekjuhæsti forstjóri ríkisstofnana á síðasta ári með 4,2 milljónir á mánuði. Næst á eftir kom Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, með 3,7 milljónir. 20.8.2024 15:02
Forstjórarnir sem möluðu gull á síðasta ári Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, er tekjuhæsti forstjórinn í nýju blaði Frjálsar verslunar yfir tekjur Íslendinga árið 2023. Guðmundur var með 75 milljónir króna á mánuði í tekjur. 20.8.2024 13:26
Kostar í strætó yfir daginn en ókeypis heim um kvöldið Annað árið í röð munu farþegar Strætó greiða almennt fargjald á Menningarnótt á laugardaginn. Ferðum verður fjölgað hjá fjölda leiða yfir daginn. 20.8.2024 11:06
Netþrjótar þykjast vera frá Strætó Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur varað netverja við netsvindli þar sem óprúttnir aðilar þykjast vera frá Strætó og séu að gefa ókeypis kort í almenningssamgöngur. Fólk er hvatt til að vera á varðbergi gagnvart svindlinu og öðrum álíka. 20.8.2024 10:41
Enginn hvati fyrir fyrirtæki til að endurvinna Félag atvinnurekenda (FA) furðar sig á miklum hækkunum í gjaldskrá Sorpu fyrir móttöku á matvælum í umbúðum sem notuð eru til jarðgerðar. FA óskar eftir rökstuðningi fyrir hækkuninni sem nemur rúmlega 86 prósentum frá því á fyrri hluta síðasta árs. 20.8.2024 10:12
Sextíu veikir og minnst sex með nóróveiru Búið er að staðfesta að í það minnsta sex af þeim rúmlega sextíu sem veiktust eftir að hafa gist á Rangárvöllum á síðustu vikum séu með nóróveiru. Unnið er að því að greina sýni úr neysluvatni á svæðinu og hvort nóróveirur hafi borist í vatnsból. 19.8.2024 16:23
Þurfa að leita annað í sund Þónokkrum sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu verður lokað í vikunni vegna framkvæmda Veitna. Heitavatnslaust verður víða á höfuðborgarsvæðinu næstu daga. 19.8.2024 16:02