Allhvass vindur og mikil úrkoma vestantil Lægðir á Grænlandshafi í samvinnu við hæð við Bretland munu beina hlýju og mjög röku lofti úr suðri til landsins á næstunni. Veður 30. ágúst 2024 07:09
Talsverð úrkomuákefð: Varað við skriðuföllum víða Mikil bleyta hefur safnast í jarðvegi á sunnanverðum Vestfjörðum, Barðaströnd og á Snæfellsnesi í sumar og er svæðið því mjög viðkvæmt fyrir komandi úrkomu sem fylgir lægð sem leggst yfir vestanvert landið í kvöld. Veður 29. ágúst 2024 14:49
Gul viðvörun vegna mikilla rigninga Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun á vestanverðu landinu á morgun og hinn vegna mikillar rigningaspár. Veður 29. ágúst 2024 12:42
Víða þurrt og bjart en bætir í vind í kvöld Útlit er fyrir fremur hæga vestlæga átt í dag og að víða verði þurrt og bjart veður, en skýjað og dálítil væta norðaustanlands fram yfir hádegi. Veður 29. ágúst 2024 07:08
Skaftárhlaupið í rénun: Kemur úr Eystri-Skaftárketli en ekki þeim vestri Skaftárhlaup er nú í rénun samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar. Rennsli mælist um 160 rúmmetrar á sekúndu og segir í tilkynningu að út frá breytingum á yfirborði Eystri-Skaftárketilsins, sem sjást af gervihnattamyndum, megi ætla að hlaupið komi þaðan en ekki úr þeim vestari eins og áður var talið líklegast. Innlent 28. ágúst 2024 16:00
Lægð beinir norðlægum vindum yfir landið Skammt suðaustur af landinu er nú hægfara lægð sem beinir norðlægum vindum yfir landið. Úrkomusvæði lægðarinnar mun þokast yfir austanvert landið og mun því rigna á þeim slóðum. Veður 28. ágúst 2024 07:07
Gott veður fram að jólum en veturinn þungur eftir það Haustið verður gott og veturinn fram að jólum en eftir það verður hann þungur. Þetta er niðurstaða nýjasta fundar veðurklúbbsins á Dalbæ á Dalvík. Lífið 27. ágúst 2024 20:09
Lægð suðvestur af landinu og á leið austur Minniháttar hæðarhryggur er nú yfir landinu og eru því víða hægir vindar og verður bjart með köflum. Suðvestur af landinu er hins vegar dálítil lægð á hreyfingu austur sem mun valda austanstrekkingi og smá rigningu við suðurströndina. Veður 27. ágúst 2024 07:13
Óvissustigi aflétt á Tröllaskaga Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra ákveðið að fara af óvissustigi Almannavarna sem sett var á 23. ágúst síðastliðinn vegna mikillar rigningar og skriðuhættu á Tröllaskaga. Innlent 26. ágúst 2024 20:37
Sýnileg gasmengun en ekki hættuleg Gasmengun mælist í Reykjanesbæ og nágrenni vegna eldgossins sem enn mallar á Reykjanesskaga. Að sögn náttúruvársérfræðings stafar ekki hætta af menguninni. Innlent 26. ágúst 2024 20:15
Veður með rólegasta móti Hæðarhryggur þokast nú norðaustur yfir landið og er gert ráð fyrir að veður verði með rólegasta móti í dag. Spáð er fremur hægri breytilegri átt og víða þurrt og björtu, en dálítilli vætu norðaustanlands fram undir hádegi. Veður 26. ágúst 2024 07:13
Þegar borgarbúar kröfðu veðurfræðinga um betra veður: „Hvað borgar Jöklarannsóknafélagið ykkur?“ Sú gula og hlýja hefur ekki leikið við Reykvíkinga þetta sumarið líkt og oft áður og hafa margir höfuðborgarbúa lagt á flótta suður með höfum til að láta sólina aðeins sleikja sig áður en veturinn kemur í garð. Á degi sem þessum, þegar kaldur norðanvindur næðir borgarbúa um miðjan ágúst og fönn leggst í hlíðar norður á landi, er tilefni til að rifja upp annað kalt og grátt sumar borginni. Lífið 25. ágúst 2024 09:03
Sáu í birtingu að skriður höfðu fallið í fallið í firðinum Þrjú heimili á Húsavík voru rýmd eftir að aurskriða féll á eitt þeirra í nótt vegna mikillar úrkomu. Skriður féllu einnig beggja vegna Strákaganga, og Siglufjarðarvegi var lokað, en á Ólafsfirði var allt þurrt. Skriður féllu innan Siglufjarðar en sköpuðu ekki hættu að sögn slökkviliðsstjóra. Innlent 24. ágúst 2024 19:13
Skriður fallið við báða enda Strákaganga Óvissustig er enn í gildi á Norðurlandi eystra vegna hættu á skriðuföllum og vatnavöxtum. Siglufjarðarvegur er lokaður vegna grjóthruns og hafa skriður fallið á veginn við báða enda Strákaganga. Innlent 24. ágúst 2024 12:08
Dregið úr vindi og úrkomu en áfram hætta á skriðuföllum Lægðin sem olli leiðindaveðri víða um land í gær er nú skammt vestur af Færeyjum og grynnist smám saman, og því hefur talsvert dregið úr vindi og úrkomu á landinu. Veður 24. ágúst 2024 08:03
Flæðir inn á hús á Eyrinni í úrhellisrigningu Dæla í fráveitukerfinu á Siglufirði bilaði í nótt. Úrhellisrigning er á svæðinu og gul viðvörun í gildi. Í tilkynningu frá Fjallabyggð kemur fram að unnið sé að viðgerðum á dælunni en vegna mikillar úrkomu hafi flætt inn í nokkur hús á Eyrinni. Í morgun hafði mælst 92 millimetra úrkoma. Eigendur húsa á Eyrinni eru beðnir að huga að kjöllurum í húsum sínum Innlent 23. ágúst 2024 11:52
Hlauparar og Menningarnæturgestir geti ekki kvartað yfir veðurspánni Veðurfræðingur segir ekki hægt að kvarta undan veðurspánni á morgun en mælir þó með því að Menningarnæturgestir klæði sig vel. Spáin líti með besta móti út fyrir þá sem ætla sér að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu á morgun. Veður 23. ágúst 2024 10:05
Gular viðvaranir vegna hvassviðris og úrhellisrigningar Lægð er nú stödd norðaustur af landinu og liggur frá henni allhvass eða hvass norðan vindstrengur á vesturhelmingi landsins, en yfirleitt hægari austantil. Veður 23. ágúst 2024 07:16
Vara við hættu á skriðuföllum Aukin hætta er á skriðuföllum á Norðurlandi, Ströndum og norðanverðum Vestfjörðum fram á laugardag. Spáð er mikilli uppsafnaðri úrkomu á norðanverðu landinu dagana 22. til 24. ágúst. Veður 22. ágúst 2024 14:36
Enn bætast gular viðvaranir og þær nú orðnar fimm Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Norðurland, Breiðafjörð, Vestfirði og Suðausturland. Viðvörun vegna úrhellisrigningar á Norðurlandi eystra gildir frá klukkan 11 til 20 í dag og viðvörun vegna hvassviðris er í gildi fyrir Suðausturland fram til 18. Veður 22. ágúst 2024 10:26
Varasamt ferðaveður á Suðausturlandi Gul viðvörun er í gildi á Suðausturlandi vegna mikils hvassviðris. Búast má við svörpum vindhviðum við fjöll, staðbundið að 35 m/sek, að því er fram kemur á vef Veðurstofunnar. Veður 22. ágúst 2024 07:06
Lýsa yfir óvissustigi vegna Skaftárhlaups Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna Skaftárhlaups. Ferðafólki er ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár. Innlent 21. ágúst 2024 10:15
Vindhviður gætu náð allt að 35 m/sek Í dag má reikna með hvössum vindi með suðurströndinni. Vinhviður gætu náð 30-35 m/sek í Mýrdal og undir Eyjafjöllum um og upp úr hádegi. Sama gildir um Öræfi skammt austan Skaftafells. Veður 21. ágúst 2024 07:46
Gul viðvörun á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun tekur gildi á Suðausturlandi klukkan ellefu í hádeginu á morgun. Hún verður í gildi í tíu klukkutíma, til klukkan níu um kvöldið. Innlent 20. ágúst 2024 16:44
Léttskýjað og allt að fimmtán stig á Suður- og Vesturlandi Í dag er útlit fyrir norðlæga golu á landinu, en ákveðnari vindur austast. Dálítil rigning norðaustantil og svalt á þeim slóðum. Það verður yfirleitt léttskýjað og fallegt veður á Suður- og Vesturlandi með hita að 15 stigum þegar best lætur. Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar. Veður 20. ágúst 2024 07:13
Frost í Reykjavík í nótt Hitastigið fór niður í mínus 0,9 gráður í Víðidal í Reykjavík klukkan sex í morgun. Mælt er í tveggja metra hæð og líklega hefur verið enn kaldara niðri við jörð. Innlent 19. ágúst 2024 13:00
Kaldi eða stinningskaldi en bjart fyrir sunnan og vestan Spáð er kalda eða stinningskalda með vætu norðan- og austanlands í dag en björtu sunnan- og vestantil. Úrkomusvæði kemur að suðausturströndinni síðdegis og fer norður yfir austanvert landið í kvöld og nótt. Veður 19. ágúst 2024 08:38
Svöl norðlæg átt næstu daga Norðaustur af landinu er 980 mb lægð sem hreyfist lítið og verður fremur svöl norðlæg átt á landinu í dag og næstu daga. Veður 18. ágúst 2024 09:18
Kuldakastinu muni fylgja töluverð úrkoma Sjaldséð snjókoma er í kortunum í fjöllum Norðanlands á morgun. Veðurfræðingar telja nokkuð ljóst að úr þessari spá rætist. Haraldur Ólafsson veðurfræðingur segir allt eðlilegt í íslensku veðurfari en viðurkennir þó að það sé frekar óvanalegt að fá svona kuldakast í ágúst. Rætt var við Harald í Kvöldfréttum Stöðvar 2 í kvöld. Veður 17. ágúst 2024 19:56
„Ekki sést á þessari öld“ Veðurspákort fyrir morgundaginn eru landanum ekki náðug eins og svo oft áður þetta rigningarsumar. Hins vegar er það ekki rigning sem búist er við á morgun. Spáð er slyddu og snjókomu á morgun vestantil á Norðurlandi og á Hornströndum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir svona spá ekki hafa sést á þessum árstíma á þessari öld. Veður 17. ágúst 2024 15:53