Innlent

Rýming í Nes­kaup­stað og á Seyðis­firði

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Björgunarsveitarmenn ganga í hús í Neskaupstað.
Björgunarsveitarmenn ganga í hús í Neskaupstað. LANDSBJÖRG

Rýma þarf svæði í Neskaupstað og á Seyðisfirði vegna mikillar snjóflóðahættu. Veðurstofa Íslands telur mikla hættu á snjóflóðum á svæðinu næstu daga. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi.

„Lögreglan er að vinna í því að hafa samband við fólk, bæði íbúðahús og atvinnureitir,“ segir Minney Sigurðardóttir, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, í samtali við fréttastofu.

Í tilkynningu á frá ofanflóðavakt Veðurstofu Íslands hefst rýming klukkan 18 í kvöld. Búið er að lýsa yfir óvissustigi sem tók gildi klukkan tólf á hádegi. 

Í Neskaupstað verða þrír reitir rýmdir. Reitur NE01 við Norðfjarðaveg og NE02 við Norðfjarðarvge og Nausthvamm en þar er atvinnuhúsnæði. Einnig veðrur reitur NE18 rýmdur en þar er íbúasvæði með 37 heimilum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi.

Rýmingarsvæði í Neskaupstað. Svæðin NE01, NE02 OG NE18 verða rýmd.Fjarðabyggð

Á Seyðisfirði verða fjórir reitir rýmdir, allt atvinnusvæði. Það eru reitir SE01 OG SE02 við Strandaveg og SE24 og SE26.

Rýmingarsvæði á Seyðisfirði. Svæðin SE01, SE02, SE24 og SE26 verða rýmd.MÚLAÞING

Fjöldahjálparstöð verður opnuð í Herðubreið á Seyðisfirði klukkan eitt í dag. Í Neskaupstað verður fjöldahjálparstöðin í Egilsbúð. Björgunarsveitarmenn ganga í hús á rýmingarsvæðunum og leiðbeina íbúum.

Leiðbeina íbúum

Björgunarsveitin Gerpir í Neskaupstað birti punkta fyrir þá sem þurfa að rýma.

Muna þarf að ganga tryggilega frá helstu verðmætum eða hafa það með ásamt lyfjum, fatnaði, mat fyrir gæludýr, nauðsynjar ungabarna og öðrum nauðsynlegum hjálpartækjum. Ekki má gleyma hleðslutækjum eða -bönkum til að hlaða raftækin. 

Þegar húsnæðið er yfirgefið skal passa að allir gluggar og hurðar séu lokaðar, að hiti sé á húsinu og skilja skal eftir ljós í forstofu og við útidyr. Einnig skal tryggja að öll matvæli liggi ekki undir skemmdum. 

Þá skal skilja eftir rýmingarspjald í glugga eða á áberandi stað.

Gera má ráð fyrir því að snjó geti bæst við til fjalla. Nokkur snjóflóð féllu á Austfjörðum í gær. Líklegt er að snjóflóðahætta eykst þegar líður á veðrið.

Veðrið á að ganga niður aðfaranótt þriðjudags.

Upp úr hádegi er spáð norðaustan þrettán til tuttugu metrar á sekúndu og mikilli snjókomu í dag og á morgun.

Gular og appelsínugular viðvaranir verða í gildi í dag og á morgun.Veðurstofa Íslands

Fréttin hefur verið uppfærð.

Fyrst stóð að svæði SE25 yrði rýmt en því hefur verið breytt í svæði SE26.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×