Tíska og hönnun

Tíska og hönnun

Allt það nýjasta úr heimi tískunnar og fréttir af sviði hönnunar.

Fréttamynd

Gamla Sautján á Laugavegi breytist í hönnunarhús

Gamla Sautján húsið að Laugavegi 89 öðlast loks aftur líf um helgina eftir að hafa staðið autt í mörg misseri. Þar hafa 37 íslenskir fata- og skartgripahönnuðir komið upp aðstöðu til að sýna nýjustu framleiðslu sína. Þeir kalla innrás sína í húsið ATMO og er hún hluti af HönnunarMars.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Stærsta sýningin til þessa

HönnunarMars fer af stað af miklum krafti í dag með fjölmörgum sýningum og uppákomum út um allan bæ. Meðal þeirra er Samsuða, glæsileg samsýning Félags vöru- og iðnhönnuða í Brimhúsinu við Hafnarbakkann þar sem þrjátíu og tveir hönnuðir frumsýna verk sín. Er sýningin stærsti og glæsilegasti viðburður félagsins til þessa.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

HönnunarMars í símann - app með öllum upplýsingum

Síminn hefur í samstarfi við HönnunarMars hannað app fyrir hönnunarðhátíðina sem fram fer í Reykjavík dagana 22. - 25. mars. Appið sem er á íslensku og ensku býður fólki upp á dagskrá hátíðarinnar í gegnum símann. Í tilkynningu frá Símanum segir að raða megi dagskránni eftir atburðum, flokkum, hverfum og áhuga hvers og eins. Í appinu er einnig kort sem sýnir staðina sem hýsa HönnunarMars, viðtöl við hönnuði, tengingar við blogg, twitter og fréttir af hátíðinni. Þá hefur sá sem hleður niður appinu möguleika á að taka myndir og deila með öðrum í gegnum appið.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Dúkkulísur í stað fyrirsæta

Dúkkulísutískusýning á vegum Kiosk fer fram á Hótel Lind á föstudaginn kemur. Hver hönnuður hannaði sérstaka dúkkulísu í raunstærð og munu þær sýna fatnað hönnuðanna.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Stefnumót hönnuða og bænda kynnt í heild sinni

Verkefnið Stefnumót hönnuða og bænda hefur vakið mikla athygli síðustu ár enda heppnaðist það með eindæmum vel. Það fólst í því að tefla saman einni elstu starfsstétt landsins, bændum, og einni yngstu starfstétt landsins, vöruhönnuðum. Markmiðið var síðan að þróa matarafurðir í hæsta gæðaflokki þar sem hönnun og rekjanleiki eru höfð að leiðarljósi.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Fyrirsætur snúa heim

Reykjavík Fashion Festival fer fram í þriðja sinn nú í lok mánaðarins. Ellefu íslenskir hönnuðir taka þátt í ár og má þar á meðal nefna ELLA, Kron by KronKron, Mundi, REY og Kalda.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Frumsýna nýja Kronkron-línu og halda happdrætti

Á fimmtudaginn verður slegið til veislu í versluninni Kronkron við Laugaveg þar sem ný vor- og sumarlína merkisins Kron by Kronkron verður til sýnis. Veislan er einnig haldin í tilefni af HönnunarMars sem er að sigla af stað og nær hámarki um helgina. Verslunin mun skarta sínu fegursta og auk nýju línunnar verða sýndar ljósmyndir eftir Sögu Sig sem hún tók fyrir línuna.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Ittala skoðar íslenska hönnuði

DesignMatch er haldin í Norræna húsinu í þriðja sinn þann 23. mars. Sýningin er haldin í tengslum við HönnunarMars og í ár taka nokkur stærstu hönnunarhús Norðurlandanna þátt í henni.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Tískustelpan sem allir fylgjast með

Rússneski blaðamaðurinn Miroslava Duma hefur verið eitt vinsælasta myndefni götutískuljósmyndara og bloggara upp á síðkastið. Duma þykir einstaklega lunkin við að blanda saman litríkum og munstruðum flíkum. Duma var eitt sinn ritstjóri Harper"s Bazaar en er nú sjálfstætt starfandi blaðamaður og skrifar fyrir blöð á borð við rússneska Harper"s Bazaar, Tatler og Glamour. Hún er fastur gestur á fremsta bekk á tískusýningum en uppáhaldshönnun hennar kemur frá Prada, Miu Miu, Lanvin, Alexander Wang og YSL.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Ný hönnunarbúð í miðbænum

Búðin Hrím hönnunarhús hefur fært út kvíarnar og komið sér fyrir á Laugaveginum, en verslunin hefur hingað til verið rekin í Hofi á Akureyri. Fjölmennt var í opnunarteitinu enda búðin kærkomin viðbót í verslanaflóru miðbæjarins. Verslunin er full af innlendri sem erlendri hönnun og er til að mynda heill veggur í versluninni tileinkaður Lomo-myndavélunum. Litríkir gluggar verslunarinnar vöktu athygli en hönnunin var í höndunum á stúlkunum á auglýsingastofunni Undralandið.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Vogue og Eurowoman á RFF

"Það eru ögn færri erlendir fjölmiðlar í ár en hafa verið síðustu ár en það er mjög góðmennt,“ segir Þórey Eva Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Reykjavík Fashion Festival, um komu erlendra fjölmiðla á tískuhátíðina sem fer fram dagana 30. og 31. mars.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Leður og blóm

Línurnar fyrir komandi haust voru lagðar á nýyfirstöðnum tískuvikum. Þar mátti sjá margar fallegar flíkur og fylgihluti og greina yfirvofandi tískustrauma. Víða mátti sjá munstraðar flíkur, og þá sér í lagi blóma- og austurlensk munstur, líkt og hjá hönnuðunum Jason Wu og Proenza Schouler. Víðar leðurbuxur voru einnig áberandi og mátti sjá fyrirsætur klæðast slíku á sýningum Topshop Unique, Gucci og Derek Lam.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Skart innblásið af þorskbeinum

Jóhanna Metúsalemsdóttir skartgripahönnuður hefur sent frá sér nýja skartgripalínu sem innblásin er af þorskbeinum. Jóhanna hannar undir nafninu Kría og var fyrsta skartgripalína hennar einmitt innblásin af beinum farfuglsins.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Shadow Creatures sendir frá sér litríka undirfatalínu

Systurnar Edda og Sólveig Guðmundsdætur hafa hannað fatnað saman undir heitinu Shadow Creatures síðastliðin tvö ár. Þær hafa nú bætt við sig og senda frá sér sína fyrstu undirfatalínu í apríl, en afar fáir íslenskir hönnuðir hafa fetað þá slóð. "Þetta er búið að vera langt ferli, en það er það yfirleitt. Fyrst hannar maður flíkina, sýnir hana, setur í framleiðslu og loks í sölu, allt tekur þetta sinn tíma,“ segir Edda um nýju línuna og bætir við að mikill tími hafi einnig farið í tæknilegar útfærslur á nærfatnaðinum. "Þetta á

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Balenciaga-hatturinn nær vinsældum

Á tískuvikunni í París mátti víða sjá tískuspekúlanta skarta hinum sérstaka „visor“ hatti frá tískuhúsinu Balenciaga. Höfuðfatið var hluti af vorlínu hússins sem frumsýnd var í september í fyrra.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Misheppnuð sýning

Rapparinn Kanye West sýndi sína aðra fatalínu á þriðjudaginn var og hlaut sú engu betri dóma en sú fyrsta. Á fremsta bekk mátti svo helst sjá vini West og samstarfsfólk hans úr rappheiminum.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Fatnaður prinsessu vekur athygli

Kate Middleton, hertogaynjan af Cambridge og Elizabeth Bretadrottning mættu uppábúnar á St Pancras stöðina í dag í Lundúnum. Eins og sjá má var Kate óaðfinnanleg þegar kemur að fatavali. Hún var klædd í grænbláa dragt, með hatt á höfði með belti í mittið.

Tíska og hönnun