Tíska og hönnun

Dásamleg í buxnadragt

Kate Hudson var flott í buxnadragt á rauða dreglinum í gær.
Kate Hudson var flott í buxnadragt á rauða dreglinum í gær. Mynd/COVERMEDIA
Það vakti ánægju ljósmyndara þegar Kate Hudson mætti á rauða dregilinn á kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í gær.

Það sem vakti hinsvegar meiri ánægju var að sjá leikkonuna klædda í buxnadragt sem minnti á sjöunda áratuginn en það er stíll sem hún tileinkaði sér oftar en ekki í byrjun ferilsins.

Dragtin sem Hudson klæddist var hvít og kemur frá tískurisanum Gucci, buxurnar skósíðar og jakkinn opinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×