Bikardrátturinn í beinni á Vísi Dregið verður í sextán liða úrslit í bikarkeppni KKÍ, Powerade-bikarnum, klukkan 14.00 í dag og verður drátturinn í beinni Twitter-lýsingu á Vísi. Körfubolti 13. desember 2011 12:06
Snæfell síðasta liðið inn í sextán liða úrslit | Vann Val á Hlíðarenda Snæfellingar tryggðu sér sæti í 16 liða úrslitum Powerade-bikars karla í körfubolta með því að vinna 18 stiga sigur á Valsmönnum, 95-77, í Vodfonehöllinni á Hlíðarenda í kvöld. Snæfell var með gott forskot allan leikinn og sigurinn var aldrei í hættu. Körfubolti 12. desember 2011 21:03
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík-Njarðvík 92-72 Keflavík vann öruggan tuttugu stiga sigur, 92-72, á nágrönnum sínum í Njarðvík í Iceland-Express deildinni í gærkvöldi. Keflvíkingar leiddu allan leikinn og voru þeir alltaf skrefinu á undan Njarðvíkingum sem spiluðu illa. Körfubolti 8. desember 2011 21:54
Óvænt úrslit í IE-deild karla - fyrsta tap Grindavíkur Heil umferð fór fram í Iceland Express-deild karla í kvöld og voru heldur betur óvæntir hlutir að gerast þar. Þór Þorlákshöfn færði Grindavík meðal annars sitt fyrsta tap í vetur. Körfubolti 8. desember 2011 21:26
Bullock með tröllatölur í DHL-höllinni Grindvíkingar héldu sigurgöngu sinni áfram og tryggðu sér Lengjubikarinn í DHL-höllinni um helgina. Grindvíkingar, sem voru búnir að vinna alla fimmtán leiki sína í vetur fyrir úrslitaleikinn, lentu í kröppum dansi á móti Keflavík í úrslitaleiknum. Körfubolti 5. desember 2011 06:00
Magnús Þór: Algjörir klaufar, asnar og aular að tapa þessum leik Magnús Þór Gunnarsson, fyrirliði Keflvíkinga, var ískaldur þegar Keflavík tapaði 74-75 á móti Grindavík í úrslitaleik Lengjubikarsins í í DHL-höllinni í gær. Magnús Þór skoraði 11 stig en níu þeirra komu á vítalínunni og hann klikkaði á öllum átta þriggja stiga skotum sínum í leiknum. Körfubolti 4. desember 2011 09:00
Þorleifur Ólafsson: Þurfum heldur betur að læra að spila á móti svæði Þorleifur Ólafsson, fyrirliði Grindvíkinga, skoraði mikilvægar körfur þegar Grindavík vann Lengjubikarinn í DHL-höllinni í gær. Þorleifur var ánægður með sigurinn í leikslok en ekki með leik liðsins. Körfubolti 4. desember 2011 08:00
Umfjöllun og viðtöl: Grindvíkingar unnu Lengjubikarinn Grindvíkingar komust í hann krappann gegn Keflavík í úrslitaleik Lengjubikarsins í í DHL-höllinni í kvöld. Grindvíkingar voru búnir að vinna alla leiki sína í vetur fyrir leikinn en þurftu frábæran endakafla í fjórða leikhlutanum til þess að tryggja sér Lengjubikarmeistararatitilinn. Körfubolti 3. desember 2011 16:44
Páll Axel ekki með Grindavík í úrslitaleiknum Grindvíkingurinn Páll Axel Vilbergsson getur ekki spilað úrslitaleik Lengjubikars karla sem fer fram þessa stundina í DHl-höllinni í Vesturbænum. Körfubolti 3. desember 2011 16:04
Tvö heitustu liðin mætast í DHL-höllinni Suðurnesjaliðin Grindavík og Keflavík mætast í DHL-höllinni í dag í úrslitaleik Lengjubikars karla en þau unnu undanúrslitaleiki sína í gærkvöldi. Grindavík vann 80-66 sigur á Þór en Keflavík vann 93-88 sigur á Snæfelli. Leikurinn hefst klukkan 16.00 og verður einnig í beinni útsendingu á Sporttv. Körfubolti 3. desember 2011 13:15
Magnús má ekki spila í DHL-höllinni á morgun Keflvíkingurinn Magnús Þór Gunnarsson verður fjarri góðu gammni í undanúrslitaleik Lengjubikarsins í DHL-höllinni á morgun en hann var í gær dæmdur í eins leiks bann. Körfubolti 1. desember 2011 10:45
Erum ekki vanir því að vera litlir í okkur „Það er alveg augljóst að það voru gerð ákveðin mistök í ráðningu á erlendum leikmönnum í sumar,“ segir Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, en félagið er búið að senda Bandaríkjamanninn David Tairu til síns heima og Ed Horton gæti einnig farið sömu leið áður en langt um líður. Körfubolti 1. desember 2011 07:00
Tairu farinn frá KR - óvissa með framtíð Horton KR-ingar hafa ákveðið að losa sig við Bandaríkjamanninn David Tairu og óvissa er með framhaldið hjá hinum Bandaríkjamanninum, Ed Horton. Körfubolti 30. nóvember 2011 15:47
Helgi Jónas góður í því að fela púlið Eitt lið hefur borið höfuð og herðar yfir önnur það sem af er tímabilinu í körfunni. Grindavík hefur unnið alla fjórtán leiki tímabilsins, sjö í deild, sex í deildarbikar og Meistarakeppni KKÍ þar sem Páll Axel Vilbergsson skoraði eftirminnilega sigurkörfu. Páll Axel hefur tekið að sér nýtt hlutverk í vetur og spilar nú sem sjötti maður með góðum árangri. Körfubolti 30. nóvember 2011 08:00
Lengjubikarinn: Sigrar hjá KR, Snæfelli og Fjölni Þrír leikir fóru fram í Lengjubikar karla í kvöld. KR valtaði yfir ÍR, Snæfell lagði Stjörnuna og Fjölnir marði sigur á KFÍ. Körfubolti 27. nóvember 2011 21:16
Keflvíkingar unnu í framlengingu í Hólminum Keflvíkingar tóku þriðja sætið af KR-ingum með því að vinna dramatískan 115-113 sigur á Snæfelli í framlengdum leik í Iceland Express deild karla í Stykkishólmi í kvöld. Charles Michael Parker var hetja Keflavíkurliðsins því hann tryggði liðinu bæði framlengingu sem og sigurinn með því að skora sigurkörfuna í lok framlengingarinnar. Parker skoraði 10 af 32 stigum sínum á framlengingu og síðustu sókn venjulegs leiktíma. Körfubolti 25. nóvember 2011 21:15
Stjörnumenn töpuðu óvænt í Ljónagryfjunni Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, þurfti að sætta sig við óvænt sjö stiga tap, 105-98, á móti sínum gömlu félögum í Njarðvík í Ljónagryfjunni í Njarðvík í Icdland Express deild karla í kvöld. Njarðvíkingar lögðu grunninn að sigri sínum með því að vinna þriðja leikhlutann 33-13 en Garðbæingar sóttu að þeim í lokin. Þetta var aðeins annað tap Stjörnumanna í Iceland Express deildinni en það sér til þess að Grindvíkingar halda fjögurra stiga forskoti á toppnum. Körfubolti 25. nóvember 2011 21:00
Þórsarar aftur á sigurbraut í Iceland Express deildinni Þórsarar enduðu tveggja leikja taphrinu sína í Iceland Express deild karla í körfubolta með öruggum fjórtán stiga sigri á Fjölni, 82-68, í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn. Nýliðar Þórs hafa þar með unnið 4 af fyrstu 7 leikjum sínum í deildinni. Körfubolti 25. nóvember 2011 20:48
Bæði körfuboltalið KR-inga í krísu Meistaraflokkar KR í körfunni hafa ekki verið að gera góða hluti að undanförnu en karla- og kvennalið félagsins hafa bæði misst taktinn eftir annars mjög góða byrjun á tímabilinu. Nú er svo komið að sex af síðustu sjö leikjum KR-liðanna hafa tapast. Körfubolti 25. nóvember 2011 16:45
Mögnuð tilþrif hjá Bullock Buffið J'Nathan Bullock, leikmaður Grindavíkur, fór hamförum í DHL-höllinni í gær þegar Grindvíkingar niðurlægðu Íslandsmeistara KR á þeirra eigin heimavelli. Körfubolti 25. nóvember 2011 15:02
Slökktu á stjörnum KR-liðsins - myndir Grindvíkingar sýndu styrk sinn í 85-59 sigri á Íslands- og bikarmeisturum KR í DHL-höllinni í gærkvöldi en Grindavíkurliðið hefur þar með unnið alla þrettán leiki tímabilsins. Körfubolti 25. nóvember 2011 08:45
Það er allt vitlaust út af þessu Gríðarlegur munur er á félagaskiptagjaldi í stóru íþróttunum þremur. Á meðan það getur kostað hátt í hálfa milljón að fá mann að utan til Íslands í handboltanum er grunngjaldið í fótboltanum aðeins 2.000 kr. KKÍ er nýbúið að hækka gjaldið vegna útlendinga. Handbolti 25. nóvember 2011 08:00
Hrafn: Enginn óhultur nema íslenski leikmaðurinn Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, vildi ekki staðfesta hvort að stokkað yrði upp í sínum leikmannahópi eftir tapið stóra gegn Grindavík í kvöld. Körfubolti 24. nóvember 2011 21:51
Annar sigur Stólanna í röð - unnu botnslaginn við Hauka Tindastólsmenn eru komnir á sigurbraut í Iceland Express deildinni undir stjórn Bárðar Eyþórssonar en Stólarnir unnu 80-74 sigur á Haukum í spennandi leik í Schenkerhöllinni á Ásvöllum í kvöld. Þetta var annar sigur Tindastóls í röð eftir að liðið tapaði fimm fyrstu deildarleikjum sínum í vetur. Körfubolti 24. nóvember 2011 20:59
ÍR-ingar ekki í miklum vandræðum í Vodafone-höllinni ÍR-ingar þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að vinna botnlið Vals í Vodafone-höllinni í Iceland Express deild karla í körfubolta í kvöld. ÍR vann leikinn með 92-86 en Valsmenn, sem hafa tapað öllum tólf leikjum sínum á tímabilinu, lögðuðu stöðuna í lokin með því að vinna fjórða leikhlutann 32-13. Körfubolti 24. nóvember 2011 20:41
Tólfti leikurinn, tólfti sigurinn - myndir Grindvíkingar héldu sigurgöngu sinni áfram í karlakörfunni með 83-78 sigri á Fjölni í Dalhúsum í Grafarvogi í gær en Grindavík er eina liðið sem hefur þegar tryggt sér sæti í undanúrslitum Lengjubikarsins. Körfubolti 22. nóvember 2011 08:30
Keflvíkingar tryggðu sér úrslitaleik á móti Njarðvík Keflvíkingar unnu 22 stiga sigur á Valsmönnum, 115-93, í Vodafonehöllinni í kvöld í Lengjubikar karla og tryggðu sér með því hreinan úrslitaleik á móti Njarðvík um sigur í D-riðlinum og þar með sæti í undanúrslitum keppninnar. Körfubolti 21. nóvember 2011 21:09
Grindvíkingar lentu í vandræðum í Grafarvoginum Grindvíkingar lentu í vandræðum með Fjölni í Grafarvogi í kvöld í fimmtu umferð Lengjubikars karla í körfubolta en unnu að lokum 83-78 sigur. Grindavík var með tíu stiga forskot í hálfleik en Fjölnir kom sér aftur inn í leikinn með því að vinna þriðja leikhlutann 20-9. Körfubolti 21. nóvember 2011 20:48
Umfjöllun og viðtöl: Þór Þ. - KR 72-60 Þór frá Þorlákshöfn er komið með annan fótinn í undanúrslit Lengjubikarsins eftir ótrúlegan 72-60 sigur á Íslands- og bikarmeisturum KR í kvöld á heimavelli sínum. Körfubolti 20. nóvember 2011 20:49
Pétur verður eftirmaður Péturs hjá Haukum Pétur Rúðrik Guðmundsson var í gærkvöldi ráðinn þjálfari körfuknattleiksliðs Hauka í Iceland Express-deild karla. Tekur hann við af Pétri Ingvarssyni sem hætti með liðið í síðustu viku. Körfubolti 18. nóvember 2011 09:30