Körfubolti

Svona vann Grindavík titilinn

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Grindvíkingar unnu dramatískan sigur á Þór í Þorlákshöfn í lokaleik Íslandsmótsins í körfuknattleik karla á síðustu leiktíð. Leikurinn var rifjaður upp í upphitunarþætti fyrir úrslitakeppnina á Stöð 2 Sport í gærkvöldi.

J'Nathan Bullock fór fyrir liði Grindavíkur á lokamínútunum í fjórða leik liðanna í Þorlákshöfn. Þórsarar höfðu minnkað muninn í einvíginu í 2-1 með sigri í Grindavík. Taugar gestaliðsins voru meiri á lokasekúndunum í fjórða leiknum og titillinn liðsins fyrir vikið.

Úrslitakeppnin hefst á fimmtudagskvöld með viðureignum Stjörnunnar og Keflavíkur annars vegar og Þórs og KR hins vegar. Á föstudagskvöldið mætast Grindavík og Skallagrímur en í Stykkishólmi tekur Snæfell á móti Njarðvík.

Leik Snæfells og Njarðvíkur hefur verið frestað um 45 mínútur og hefst hann klukkan 20.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×