Tók rúmlega ár að fá „nei“ við einfaldri fyrirspurn Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkurborgar var ekki upplýst um að undirgöngum við Nauthólsveg hefði verið lokað á síðasta ári. Fyrirspurn um hvort ráðið hefði fengið upplýsingar um þetta var lögð fram í ágúst á síðasta ári. Formlegt svar, sem var eitt orð, barst fyrir nokkrum dögum. Innlent 17. september 2024 18:29
Þegar ómennskan vitnar í lög Í gegnum söguna hafa allskonar óhæfuverk verið framin af ríkisstjórnum sem réttlæta slíkt með því að vitna í lög. Þegar ráðherra vitnar í lög til þess að réttlæta það að flytja barn með ólæknandi sjúkdóm úr landi, útí óvissuna, og fjölskyldu hans með, þá getur hann um leið slökkt á samvisku sinni og sagt: Ég er bara að fylgja lögum. Skoðun 17. september 2024 15:01
Engum til sóma Þessi þingvetur fer nú eiginlega ekkert sérstaklega vel af stað eftir þingsetningu í síðustu viku. Það fer ákaflega lítið fyrir stjórnarmálum á Alþingi, að undanskildu fjárlagafrumvarpinu, sem mun lítið gera til að lina fjárhagslegar þjáningar fólks og fyrirtækja vegna hárrar verðbólgu og séríslensku ofurvaxtanna. Skoðun 17. september 2024 14:47
„Langveikt barn í hjólastól peð og fórnarlamb átaka við ríkisstjórnarborðið“ Þingmenn stjórnarandstöðunnar sumir hverjir þjörmuðu að ríkisstjórninni vegna máls Yazans en víst er að mikil spenna ríkir um framtíð ríkisstjórnarinnar undir dagskrárliðnum Störf þingsins nú rétt í þessu. Innlent 17. september 2024 14:22
Vernd náttúrunnar er ákvörðun Vernd náttúru er ákvörðun. Ákvörðun sem getur verið duttlungum háð sé hún ekki tryggð í lögum. Í gær var dagur íslenskrar náttúru, og því við hæfi að við stöldrum við og spyrjum okkur: Hvernig viljum við að ákvarðanir sem varða náttúruna séu teknar? Skoðun 17. september 2024 14:01
Telur litlar líkur á að Yazan verði vísað úr landi Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra segir það hans skoðun að líta eigi til Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna við úrlausn mála eins og í máli Yazans Tamimi. Samspil Barnasáttmálans við aðra löggjöf þurfi að skoða betur og það þurfi að vinna betur. Innlent 17. september 2024 14:00
Hver er okkar ábyrgð á ofbeldi meðal barna Á síðustu vikum hefur okkur verið tíðrætt um ofbeldi barna gagnvart hvort öðru. Það kemur ekki á óvart í ljósi skelfilegra atburða sem hafa átt sér stað hér á landi þar sem börn ganga í meira mæli með eggvopn á sér.Á síðustu vikum hefur okkur verið tíðrætt um ofbeldi barna gagnvart hvort öðru. Það kemur ekki á óvart í ljósi skelfilegra atburða sem hafa átt sér stað hér á landi þar sem börn ganga í meira mæli með eggvopn á sér. Skoðun 17. september 2024 13:31
Sigmundur segir fjölmenningastefnuna komna í þrot Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins hefur verið gestur í hlaðvörpum undanfarna daga og fer mikinn. Enda virðist vindur í segl hans nú. Vandræðagangur ríkisstjórnarinnar í málefnum Yazans litla verða ekki til að draga úr því. Innlent 17. september 2024 13:30
Brýnt að finna þyrluflugi nýjan samastað Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra telur það brýnt að finna þyrluflugi annan samastað en á Reykjavíkurflugvelli. Á sama tíma þurfi að vinna að aðgerðum til að draga úr hávaða vegna flugs á Reykjavíkurflugvelli í nærsamfélagi flugvallarins. Innlent 17. september 2024 13:25
Krafa ríkisskuldabréfa hækkar vegna óvissu um stjórnarsamstarfið Ávöxtunarkrafa óverðtryggðra ríkisskuldabréfa hækkaði nokkuð á markaði í morgun sem má einkum rekja til pólitískrar óvissu, að sögn skuldabréfasérfræðings, og vísar þar til þess hvort ríkisstjórnarsamstarfið muni halda vegna ágreinings stjórnarflokkanna um brottvísun Yazans Tamimi, ellefu ára palestínsks drengs með vöðvarýrnunarsjúkdóm. Hækkunin á markaðsvöxtum núna kemur í kjölfar töluverðra kröfulækkana að undanförnu og væntingar voru um að sú þróun héldi áfram samtímis vaxtalækkunum erlendis. Innherji 17. september 2024 12:39
Má ekkert gera fyrir millistéttina? Vaxtakostnaður heimila jókst um meira en 30 milljarða í fyrra. Fórnarkostnaður fólks er mikill af ævintýralega háum vöxtum. Skoðun 17. september 2024 12:31
Óráðlegt að undirbúa flutning barns sem dvelur á sjúkrahúsi Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Framsóknarflokksins segir mál Yazans ekki þrengja líf ríkisstjórnarinnar. Það sé samt auðvitað þannig að hver flokkur innan hennar hafi ólíka afstöðu til málaflokksins og bakland þeirra líka. Það sé mikilvægt að fylgja lögum en líka að tekið sé tillit til þess að þarna hafi verið sérstakt tilvik sem varði dreng í viðkvæmri stöðu. Innlent 17. september 2024 12:11
„Ég hótaði ekki stjórnarslitum“ Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður Vinstri grænna, segist ekki hafa hótað stjórnarslitum yrði brottflutningi Yazans Tamimi og fjölskyldu ekki frestað. Hann vill þó ekkert gefa upp um það hvort málið gæti leitt til stjórnarslita. Innlent 17. september 2024 12:04
Vandræðalegt að fylgjast með svörum ráðherra Björn Levi Gunnarsson þingmaður Pírata segir stöðuna viðkvæma hvað varðar Yazan Tamimi sem á að brottvísa til Spánar. Hann segist vilja vita hvort að ráðherrarnir séu sáttir við að þetta séu aðstæðurnar sem skapist miðað við þau lög sem eru í gildi. Innlent 17. september 2024 11:55
Segir lögin skipta máli en líka mannúð Svandís Svavarsdóttir þingkona Vinstri grænna segir mikla spennu innan ríkisstjórnarinnar um mál Yazans en að ríkisstjórnin hafi ekki verið í hættu vegna brottvísunarinnar. Málið hafi verið rætt frá hinum ýmsu hliðum en að enda sé það ekki hlutverk ríkisstjórnar að taka ákvörðum um það hvort hann verði áfram eða ekki. Innlent 17. september 2024 11:49
„Þó að það hafi verið mér þvert um geð“ Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra segir að hún hafi ákveðið að verða við beiðni félags- og vinnumarkaðsráðherra um frestun brottflutnings Yazans Tamimi og fjölskyldu, þótt það hefði verið henni þvert um geð. Innlent 17. september 2024 11:40
Segir Vinstri græn hafa þröngvað Guðrúnu til lögbrots Eins og lýðum má ljóst vera gaf Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra út skipan um að brottflutningi hins ellefu ára Yazan frá Palestínu sem er með Duchenne sjúkdóminn yrði frestað. Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir engan vafa á leika að þar með hafi hún framið lögbrot. Innlent 17. september 2024 11:25
Bjarni segir brottvísunina standa Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir brottvísun Yazans Tamimi standa. Ríkisstjórnin muni ekki taka ákvörðun um brottvísun, það verði að fara að lögum. Yazan er ellefu ára drengur frá Palestínu sem glímir við hrörnunarsjúkdóm. Beiðni hans og fjölskyldu um vernd hér á landi var synjað á árinu. Innlent 17. september 2024 11:22
Ekki viss um að mamma hans hefði kosið hann Hann þolir ekki óheiðarleika en segir þó flesta vera ágæta. Sindri Sindrason fór í morgunkaffi til Brynjars Níelssonar og kynntist mýkri hliðinni hjá alþingismanninum fyrrverandi. Lífið 17. september 2024 11:01
Þjóðin slæst við elda: Hvar er Alþingi? Eins og greinarhöfundur hefur áður fjallað um í grein sinni Greiðslubyrði húsnæðislána lækkar um helming! Frekari lækkana að vænta á næstu mánuðum, þá er eitt mesta mein íslenskra heimila og fyrirtækja háir vextir. Okurvextir sem þekkjast hvergi annarsstaðar í kringum okkur. Skoðun 17. september 2024 10:30
Notuðu sönginn til að mótmæla vegna Yazan Nokkur hundruð manns eru saman komin við Hverfisgötu í miðbæ Reykjavík fyrir utan skrifstofur forsætisráðuneytisins þar sem ríkisstjórnin situr á reglubundnum þriðjudagsfundi sínum. Innlent 17. september 2024 09:44
Sigríður áfram ríkislögreglustjóri Staða ríkislögreglustjóra verður ekki auglýst, samkvæmt svörum dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins en í gær voru sex mánuðir þar til skipunartími Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur rennur út. Innlent 17. september 2024 06:32
Viðurkennir að hafa ekki haft heimild til að stíga inn Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra kveðst ekki hafa haft lagaheimild til þess að stíga inn í mál Yazans Tamimi, ellefu ára langveiks drengs frá Palestínu, sem til stóð að vísa úr landi í morgun. Frá því var horfið þegar Guðrún fyrirskipaði að brottvísun hans yrði frestað, að ósk Guðmundar Inga Guðbrandssonar félagsmálaráðherra. Innlent 16. september 2024 23:50
Furða sig á harkalegum aðgerðum yfirvalda Faðir langveiks drengs frá Palestínu sem var vísað af landi brott í gærkvöldi segir fjölskylduna skelfingu lostna eftir harkalegar aðgerðir lögreglu. Sonur hans hafi ásamt móður verið handtekinn á sjúkrabeði. Þá hafi hann meiðst þegar menn með lambúshettur brutust inn til hans í nótt og handtóku. Innlent 16. september 2024 19:22
Ákvörðunin um brottflutning Yazan stendur Dómsmálaráðherra segir að ákvörðun um brottvísun Yazans Tamimi og fjölskyldu hans standi, þrátt fyrir að henni hafi verið frestað að beiðni félags- og vinnumarkaðsráðherra. Innlent 16. september 2024 16:10
Ráðherrar VG fóru fram á að brottvísun Yazans yrði frestað Ráðherrar Vinstri grænna fóru fram á að mál Yazans Tamimi yrði rætt í ríkisstjórn. Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra fyrirskipað í kjölfarið að brottvísun hans frá landinu yrði frestað. Þetta herma heimildir fréttastofu. Innlent 16. september 2024 11:33
Skipun um að hætta við brottflutning Yazan kom frá dómsmálaráðherra Hætt var við brottflutning Yazan Tamimi frá Íslandi í nótt. Skipunin um að hætta við kom frá dómsmálaráðherra, að sögn Marínar Þórsdóttur verkefnisstjóra hjá heimferða- og fylgdadeild Ríkislögreglustjóra. Innlent 16. september 2024 09:50
„Það er ekki auðvelt að leggja mig í einelti“ Diljá Mist Einarsdóttir, lögfræðingur og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist hafa lært að eiga við eineltisseggi í grunnskóla og það hjálpi henni þegar ákveðinn hópur að fólki ræðst að henni í opinberri umræðu. Innlent 16. september 2024 08:02
Bæjarstjóri vill funda með ráðherra um hávaða á Kársnesi Augnablikshávaði vegna flugumferðar frá Reykjavíkurflugvelli mælist reglulega langt yfir það sem er kveðið á um í reglugerð um hávaða um mörk vegna hávaða frá flugumferð. Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri í Kópavogi hefur óskað eftir fundi með innviðaráðherra til að ræða hávaðamengun á Kársnesi vegna aukinnar flugumferðar við Reykjavíkurflugvöll. Innlent 16. september 2024 06:45
Oddviti segist ekki geta gengið gegn ákvörðun Alþingis Eggert Valur Guðmundsson, oddviti Rangárþings ytra, segir sveitarfélagið ekki geta gengið gegn ákvörðun Alþingis um að setja Búrfellslund í orkuvirkjanakost. Snæbjörn Guðmundsson formaður Náttúrugriða segir málið ekki svo einfalt. Ákvörðun Alþingis sé ekki endanleg. Eggert og Snæbjörn ræddu orkumál á Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Innlent 15. september 2024 16:01