Skoðun

Hvers vegna skortir hjúkrunar­rými á Ís­landi?

Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar

Þetta er spurning sem er auðsvarað. Svarið er að ríkisstjórnir undanfarinna áratuga hafa ekki haft áhuga á að byggja hjúkrunarrými í samræmi við fyrirséða öldrun þjóðarinnar sem jafnframt felur í sér að fleiri þurfa pláss á hjúkrunarheimili en áður. Dvalarheimilum var undanfarna tvo áratugi breytt í hjúkrunarheimili til að mæta aukinni þörf eftir hjúkrunarrýmum en nú eru nánast engin dvalarheimili eftir og því frekari uppbygging hjúkrunarheimila nauðsynleg.

En stjórnmálaflokkarnir sem hafa haldið utan um taumana undanfarin ár vilja fara aðrar leiðir. Þeir sjá nefnilega fyrir sér að það séu ódýrari leiðir til að mæta öldrun þjóðarinnar. Sem dæmi bendi ég á þessa setningu í stefnu Willums Þórs, heilbrigðisráðherra, um heilbrigðisþjónustu við aldraða: „Í ljósi fjölgunar í hópi eldra fólks og þess að færri hendur verði til að sinna umönnun aldraðra í framtíðinni vegna breyttrar aldurssamsetningar þjóðarinnar er flestum orðið ljóst að nýta þarf tæknina eins og kostur er, leita nýrra lausna, aðferða og nýrra úrræða til að tryggja fullnægjandi þjónustu við aldraða.“

Einnig vil ég vitna í fyrrverandi heilbrigðisráðherra Svandísi Svavarsdóttur sem sagði á sínum tíma: „Mín sýn á málaflokkinn, af því að hér er sérstaklega spurt um það, er sú að við þurfum að leggja stóraukna áherslu á heilsueflingu og forvarnir. En við þurfum líka að leggja stóraukna áherslu á möguleika aldraðra til að búa heima.“

Þetta er sýn ríkisstjórnarflokkanna. Í stað þess að fjölga hjúkrunarrýmum þá ætla þeir að halda fólki heima í ódýrari úrræðum. Staðreyndin er einfaldlega sú að á einhverjum tímapunkti getur fólk ekki lengur dvalið heima, alveg sama hversu mikið af nýjum lausnum og aðferðum við innleiðum. Það verður að byggja fleiri hjúkrunarheimili.

Nú er það svo að til er opinber sjóður sem hefur það að meginmarkmiði að byggja fleiri hjúkrunarheimili. En því miður hafa ríkisstjórnir allt frá stofnun sjóðsins, gengið um hann eins og brotinn sparibauk. Það er árlegur viðburður að fjármálaráðherra hverrar ríkisstjórnar leggi til að nýta megi fjármagn sjóðsins til annarra hluta en framkvæmda. Samkvæmt svari heilbrigðisráðherra við fyrirspurn minni, sem barst síðasta haust, runnu tæpir 9 milljarðar til annarra verkefna á síðustu 10 árum, sem lögum samkvæmt hefðu átt að nýtast til uppbyggingar hjúkrunarheimila. Þetta er vítavert!

Við í Flokki fólksins viljum brjóta land og byggja, og þá verður lögð áhersla á að byggja fyrir þá hópa sem þurfa mest á húsnæði að halda, fatlað fólk, eldra fólk, fólk með flóknar stuðningsþarfir. Við munum ráðast í stórátak í fjölgun hjúkrunarrýma og koma í veg fyrir að fólk þurfi að dvelja vikum og mánuðum saman á Landspítalanum á meðan það bíður eftir að fá hjúkrunarrými.

Fólkið fyrst, svo allt hitt!

Höfundur skipar 2. sæti í Suðvesturkjördæmi fyrir Flokk fólksins í komandi alþingiskosningum.




Skoðun

Skoðun

Þorpið

Alina Vilhjálmsdóttir skrifar

Sjá meira


×