Pat Riley: Við fengum það sem við áttum skilið Pat Riley, þjálfari NBA meistara Miami Heat, segir að allt annar bragur verði á liðinu á næsta tímabili, en það steinlá 4-0 fyrir Chicago í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á dögunum. Hann segir að liðið hafi verðskuldað að falla úr keppni en er ekki búinn að gera það upp við sig hvort hann muni þjálfa liðið næsta vetur. Körfubolti 2. maí 2007 22:01
Brandon Roy kjörinn nýliði ársins Bakvörðurinn Brandon Roy hjá Portland Trailblazers var í dag kjörinn nýliði ársins í NBA deildinni með gríðarlegum yfirburðum. 127 af 128 nefndarmönnum settu hann í fyrsta sæti í kjörinu, en Andrea Bargnani hjá Toronto varð annar í kjörinu og Rudy Gay hjá Memphis varð þriðji. Körfubolti 2. maí 2007 19:41
San Antonio - Denver í beinni á miðnætti Fimmti leikur San Antonio og Denver í úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. San Antonio getur klárað einvígið með sigri í kvöld og hefur yfir 3-1. Aðra nótt klukkan 2:30 verður svo bein útsending frá sjötta leik Golden State og Dallas, en þar er á ferðinni eitt áhugaverðasta einvígi fyrstu umferðar í sögu deildarinnar. Golden State getur slegið Dallas úr keppni með sigri á heimavelli. Körfubolti 2. maí 2007 17:01
Hvítir dómarar harðari við svarta leikmenn Niðurstöður rannsóknar sem birt var á heimasíðu New York Times á þriðjudagskvöldið hafa valdið nokkru fjaðrafoki í NBA deildinni. Í könnuninni, sem var úttekt á dómgæslu á 13 árum fram að 2004, kom í ljós að hvítir dómarar virtust dæma áberandi fleiri villur á svarta leikmenn. Forráðamenn NBA deildarinnar blása á þessar niðurstöður og segja þeir ekki marktækar. Körfubolti 2. maí 2007 15:14
Dallas hélt naumlega lífi Dallas náði í nótt að afstýra óvæntustu úrslitum í sögu fyrstu umferðar úrslitakeppni NBA deildarinnar - um að minnsta kosti tvo sólarhringa - þegar liðið vann mjög nauman sigur á Golden State í fimmta leik liðanna í Dallas 118-112. Gestirnir voru með unninn leik í höndunum í lokin, en þá stimplaði Dirk Nowitzki sig loksins inn í einvígið með eftirminnilegum hætti. Körfubolti 2. maí 2007 05:14
Toronto minnkaði muninn Toronto minnkaði muninn í 3-2 í einvígi sínu við New Jersey Nets í úrslitakeppni NBA í nótt með 98-96 sigri á heimavelli. Toronto náði strax góðu forskoti í leiknum og stefndi í auðveldan sigur liðsins, en gestirnir voru klaufar að stela ekki sigrinum í blálokin eftir mikla rispu. Körfubolti 2. maí 2007 04:57
Tekst Golden State hið ómögulega í kvöld? Þeir sem hafa aðgang að NBA TV sjónvarpsstöðinni geta í kvöld orðið vitni að einhverjum óvæntustu úrslitum í sögu NBA deildarinnar ef Golden State Warriors tekst að leggja Dallas Mavericks að velli í fimmta leik liðanna klukkan hálf tvö. Körfubolti 1. maí 2007 18:13
Robert Horry snýr aftur San Antonio hefur náð afgerandi 3-1 forystu í einvígi sínu við Denver í úrslitakeppni NBA eftir 96-89 útisigur á Denver í fjórða leik liðanna í nótt. Það var gamli refurinn Robert Horry sem tryggði sigur San Antonio með þriggja stiga körfu þegar 30 sekúndur voru eftir af leiknum. Denver þurfti nauðsynlega á sigri að halda en tapaði öðrum heimaleik sínum í röð eftir að gestirnir luku leiknum með 17-6 rispu. Körfubolti 1. maí 2007 05:19
Houston náði forystu á ný gegn Utah Houston er nú komið í vænlega stöðu í einvígi sínu gegn Utah í úrslitakeppni Vesturdeildarinnar í NBA. Houston vann í nótt 96-92 sigur í fimmta leik liðanna á heimavelli sínum og getur nú unnið fyrsta einvígi sitt í úrslitakeppni síðan árið 1997 með sigri í Utah á fimmtudagskvöldið. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV og var í járnum frá fyrstu mínútu. Körfubolti 1. maí 2007 03:53
Cleveland sópaði Washington Cleveland Cavaliers er komið í aðra umferð úrslitakeppni NBA eftir sigur á Washington í fjórða leik liðanna í nótt 97-90. Cleveland vann seríuna því 4-0 og var þetta í fyrsta skipti í sögu félagsins sem liðinu tekst það, en lið Washington átti aldrei möguleika í einvíginu með tvö stjörnuleikmenn á meiðslalistanum. Körfubolti 1. maí 2007 03:39
Strigakjafturinn Bruce Willis (Myndband) Hasarmyndahetjan Bruce Willis var í gær mættur til að horfa á fjórða leik New Jersey Nets og Toronto Raptors í úrslitakeppninni í NBA. Willis notaði tækifærið og kynnti nýju Die Hard myndina sem er að koma út fljótlega, en orðbragðið á kappanum þótti heldur ruddalegt fyrir beina útsendingu í sjónvarpi. Spurning hvort kappinn hafi fengið sér einum öl of mikið á hliðarlínunni. Körfubolti 30. apríl 2007 20:33
Duncan og Bowen í varnarúrvali NBA Varnarlið ársins í deildarkeppni NBA var tilkynnt í dag og þar ber hæst að fastagestirnir í úrvalsliðinu og samherjarnir Tim Duncan frá San Antonio voru á sínum stað. Auk þeirra voru þeir Marcus Camby frá Denver, Kobe Bryant frá LA Lakers og Raja Bell frá Phoenix í varnarliði ársins. Körfubolti 30. apríl 2007 18:37
Houston - Utah í beinni í kvöld Fimmti leikur Houston Rockets og Utah Jazz í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Hér er á ferðinni mest spennandi einvígið í úrslitakeppninni til þessa ef marka má stöðuna, því Houston vann fyrstu tvo leikina og Utah síðustu tvo á heimavelli og því er um algjöran lykilleik að ræða í Houston í kvöld. Körfubolti 30. apríl 2007 17:02
Ævintýrið heldur áfram hjá Warriors Úrslitakeppnin í NBA náði nýjum hæðum í nótt þegar öskubuskulið Golden State náði 3-1 forystu gegn Dallas með 103-99 sigri í fjórða leiknum á heimavelli. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og bauð upp á allt það besta sem körfuboltinn hefur upp á að bjóða. Körfubolti 30. apríl 2007 05:45
Auðvelt hjá New Jersey New Jersey Nets er komið með þægilega 3-1 forystu gegn Toronto Raptors í úrslitakeppni NBA eftir auðveldan sigur í fjórða leik liðanna í New Jersey í nótt 102-81. New Jersey valtaði yfir mótherja sína strax í byrjun og leiddi 56-37 í hálfleik á bak við annan stórleik frá Jason Kidd og Vince Carter. Körfubolti 30. apríl 2007 04:17
Nash með 23 stoðsendingar í sigri Phoenix Phoenix Suns er komið í afar vænlega 3-1 stöðu í einvígi sínu við LA Lakers í úrslitakeppni NBA deildarinnar. Phoenix vann sannfærandi sigur 113-100 í Los Angeles í kvöld þar sem Steve Nash var nálægt því að slá metið yfir flestar stoðsendingar í leik í úrslitakeppni. Körfubolti 29. apríl 2007 23:35
Meistarar Miami niðurlægðir á heimavelli NBA meistarar Miami Heat eru úr leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir 92-79 tap á heimavelli gegn frísku liði Chicago Bulls. Miami tapaði því einvíginu 4-0 og var liðið bókstaflega niðurlægt af sterkari andstæðingi. Leikurinn var sýndur beint á Sýn Extra. Körfubolti 29. apríl 2007 19:31
Jafnt hjá Utah og Houston Utah Jazz náði í nótt að jafna metin í einvígi sínu við Houston Rockets í 2-2 í úrslitakepninni í NBA deildinni. San Antonio vann mikilvægan útisigur á Denver og náði forystu 2-1 í einvíginu og Cleveland er komið í þægilega 3-0 forystu gegn Washington. Körfubolti 29. apríl 2007 14:00
Stephen Jackson verður ekki stöðvaður Villingurinn Stephen Jackson lék vel með liði Golden State í fyrrinótt þegar liðið náði mjög óvænt 2-1 forystu gegn Dallas í úrslitakeppni NBA. Jackson hefur verið duglegur við að koma sér í vandræði undanfarin ár og var sektaður um rúmar þrjár milljónir króna fyrir ruddalega framkomu í leik tvö. Körfubolti 29. apríl 2007 02:19
Fékk 30 milljónir fyrir hvern spilaðan leik Framherjinn Grant Hill hjá Orlando Magic sagðist í gær vera að íhuga að leggja skóna á hilluna í sumar. Lið hans féll úr úrslitakeppninni fyrir Detroit í gær og Hill er með lausa samninga í sumar. Ferill kappans hefur einkennst af erfiðri baráttu við meiðsli, en hann þarf þó ekki að hafa áhyggjur af peningamálunum. Körfubolti 29. apríl 2007 01:38
Detroit sópaði Orlando úr keppni Detroit Pistons varð í kvöld fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í annari umferð úrslitakeppni NBA með naumum sigri á Orlando 97-93 í fjórða leik liðanna. Chauncey Billups skoraði 25 stig fyrir Detroit og Rip Hamilton 19, en Dwight Howard skoraði 29 stig og hirti 17 fráköst fyrir Orlando. Detroit vann rimmuna því mjög sannfærandi 4-0. Körfubolti 28. apríl 2007 22:07
Orlando - Detroit í beinni núna Fjórði leikur Orlando og Detroit í úrslitakeppni Austurdeildar NBA er í fullum gangi í beinni á NBA TV sjónvarpsstöðinni og hófst klukkan 19. Detroit getur "sópað" Orlando úr leik með sigri í kvöld því liðið hefur yfir 3-0 í seríunni. Síðar í kvöld mætast Washington og Cleveland, Denver og San Antonio og svo Utah og Houston. Körfubolti 28. apríl 2007 19:49
Körfuboltaæði í Oakland Þrátt fyrir að lið Golden State Warriors frá Oakland í Kaliforníu hafi ekki riðið feitum hesti í NBA deildinni á síðustu árum, eru stuðningsmenn liðsins jafnan taldir þeir hollustu og bestu í allri deildinni. Í gær var 13 ára bið á enda þegar lið Warriors spilaði loks leik á heimavelli í úrslitakeppninni og fengu þeir nóg fyrir peninginn. Körfubolti 28. apríl 2007 18:37
Meistarar Miami á leið úr keppni Óvænt úrslit litu dagsins ljós í úrslitakeppninni í NBA í nótt. Meistarar Miami töpuðu á heimavelli fyrir Chicago og eru undir 3-0 í einvíginu og Golden State er komið yfir 2-1 gegn Dallas eftir stórsigur í þriðja leik liðanna. New Jersey náði forystu gegn Toronto á bak við stórleik Jason Kidd og Vince Carter. Körfubolti 28. apríl 2007 14:10
LeBron James tekur Bee Gees slagara (Myndband) Körfuboltamaðurinn LeBron James hefur farið á kostum með liði Cleveland Cavaliers í úrslitakeppni NBA undanfarna daga, en hann kann meira en bara að spila körfubolta. Í myndbandi hér í fréttinni má sjá og heyra kappann syngja og dansa við lag Bee Gees. Svo verður hver og einn að dæma fyrir sig hvort James ætti að leggja skóna á hilluna og snúa sér að tónlistinni. Körfubolti 27. apríl 2007 20:09
Beinar útsendingar frá NBA um helgina Áhugamenn um NBA körfuboltann fá nóg fyrir sinn snúð um helgina þegar úrslitakeppnin heldur áfram af fullum krafti. Stórleikur helgarinnar verður slagur Miami og Chicago á Sýn Extra klukkan 17 á sunnudaginn, en auk þess er NBA TV sjónvarpsstöðin með beina útsendingu á hverju kvöldi. New Jersey tekur á móti Toronto klukkan 23 í kvöld og á miðnætti verður Sýn með útsendingu frá leik Utah og Houston frá í gærkvöldi. Körfubolti 27. apríl 2007 18:45
Marcus Camby varnarmaður ársins Dagblaðið Denver Post greindi frá því í morgun að miðherjinn Marcus Camby hjá Denver Nuggets verði kjörinn varnarmaður ársins í NBA deildinni. Camby á að baki 11 ár í deildinni og skoraði 11 stig, hirti tæp 12 fráköst og varði 3,3 skot að meðaltali í leik í vetur - sem er besti árangurinn í deildinni. Camby er sagður hafa fengið 431 atkvæði í kjöri fjölmiðlamanna en Bruce Bowen hjá San Antonio varð annar með 206 stig og félagi hans Tim Duncan í þriðja sæti með 158 stig. Körfubolti 27. apríl 2007 17:45
Dýrmætir sigrar hjá Jazz og Lakers Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt. LA Lakers minnkaði muninn í einvígi sínu við Phoenix í 2-1 með góðum heimasigri og sömu sögu var að segja af Utah gegn Houston. Lið Detroit Pistons er hinsvegar komið í afar vænlega stöðu gegn Orlando Magic og hefur yfir 3-0 eftir góðan útisigur í nótt. Körfubolti 27. apríl 2007 13:41
Monta Ellis tók mestum framförum Bakvörðurinn Monta Ellis hjá Golden State Warriors í NBA deildinni var í kvöld valinn sá leikmaður sem tók mestum framförum í deildinni ár af nefnd fjölmiðlamanna. Ellis bætti stigaskor sitt um tæp 10 stig frá nýliðaári sínu í fyrra. Kevin Martin hjá Sacramento Kings varð annar í kjörinu en aðeins munaði þremur stigum á þeim í fyrsta og öðru sæti, sem er minnsti munur í sögu kjörsins. Körfubolti 26. apríl 2007 19:25
Þrír leikir í úrslitakeppni NBA í kvöld Utah Jazz, LA Lakers og Orlando Magic standa öll frammi fyrir erfiðu verkefni í kvöld þegar þau mæta andstæðingum sínum í þriðja sinn í úrslitakeppninni í NBA. Leikur Utah og Houston verður sýndur beint á NBA TV klukkan eitt í nótt, en öll þrjú liðin eru undir 2-0 í einvígjum sínum eftir tap á útivöllum í fyrstu tveimur leikjunum. Körfubolti 26. apríl 2007 18:34