Körfubolti

Portland ætlar að velja Greg Oden

Portland ætlar að taka Greg Oden fyrstan í nýliðavalinu í nótt
Portland ætlar að taka Greg Oden fyrstan í nýliðavalinu í nótt NordicPhotos/GettyImages

ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í dag að hún hafi heimildir fyrir því að Portland Trailblazers ætli að nota fyrsta valrétt sinn í nýliðavali NBA í nótt til að velja miðherjann Greg Oden frá Ohio State háskólanum. Fastlega er reiknað með því að Seattle Supersonics muni þá taka Kevin Durant frá Texas með öðrum valrétti sínum.

Þessir tveir þykja einhverjir efnilegustu leikmenn sem komið hafa í nýliðavalinu í nokkur ár og eins og oft vill verða stefnir nú í að það verði miðherji sem valinn verður númer eitt. Búist er við því að Oden verði strax einn af betri miðherjum deildarinnar þrátt fyrir ungan aldur. Durant er aftur sagður eiga möguleika á að verða sannkölluð ofurstjarna í deildinni og er sagður hafa ótakmarkaða hæfileika.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×