Benitez: Vonar að Mascherano geti spilað Chelsea-leikinn Rafael Benitez, stjóri Liverpool, er að vonast til þess að argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano geti spilað með á móti Chelsea í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar um næstu helgi. Mascherano verður ekki með á móti Fiorentina í Meistaradeildinni í kvöld. Enski boltinn 29. september 2009 12:30
Casillas: Enginn tími fyrir Kaka og Ronaldo að aðlagast Iker Casillas, markvörður Real Madrid, segir að kröfurnar á liðið séu svo miklar að nýir leikmenn fái engan tíma til þess að aðlagast. Hann viðurkennir jafnframt að hann sem og aðrir leikmenn spænska liðsins séu enn að átta sig á því hvernig best sé að spila með þeim Kaka og Cristiano Ronaldo. Fótbolti 28. september 2009 17:00
Van der Sar: Hætti ekki fyrr en við höfum unnið Meistaradeildina aftur Edwin van der Sar segist að hann vilji standa í marki Manchester United þar til að félagið vinni Meistaradeildina á nýjan leik. Van der Sar verður 39 ára gamall í næsta mánuði en hann hefur ekkert leikið með United-liðinu síðan að hann meiddist á undirbúningstímabilinu. Enski boltinn 28. september 2009 12:30
Benzema: Mætum ensku liði í úrslitaleiknum Karim Benzema, leikmaður Real Madrid, telur að félagið muni mæta ensku liði í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í vor. Fótbolti 21. september 2009 14:45
Ferdinand: Það verða engin vettlingatök ef ég mæti Ronaldo Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United er strax farinn að búa sig undir að mæta Cristiano Ronaldo og félögum í Real Madrid í Meistaradeild Evrópu á þessu tímabili. Enski boltinn 19. september 2009 14:06
Xabi Alonso frá í allt að tíu daga vegna meiðsla Xabi Alonso, miðjumaður Real Madrid, meiddist í 5-2 sigri liðsins á FC Zurich á þriðjudaginn og nú er orðið ljóst að meiðslin hans eru það alvarlega að hann verður frá í tíu daga. Hann tognaði á vöðva á fæti. Fótbolti 17. september 2009 16:30
Zico ráðinn sem knattspyrnustjóri Olympiakos Brasilíska goðsögnin Zico hefur tekið við stjórnartaumunum hjá grísku meisturunum í Olympiakos sem leika í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en Temuri Ketsbaia hætti óvænt sem stjóri félagsins á dögunum eftir nokkurra mánaða veru hjá félaginu. Fótbolti 17. september 2009 13:00
Wenger ánægður með Eduardo Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var ánægður með Króatíumanninn Eduardo sem skoraði sigurmark Arsenal gegn Standard Liege í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 16. september 2009 22:35
Carragher: Við vorum ekki góðir Jamie Carragher, leikmaður Liverpool, sagði að sínir menn hafði ekki spilað neitt sérstaklega vel þegar að liðið vann 1-0 sigur á ungverska liðinu Debrecen í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Fótbolti 16. september 2009 22:31
Zlatan: Barca var betra Zlatan Ibrahimovic sagði eftir leik Barcelona og Inter í Meistaradeild Evrópu í kvöld að Börsungar hafi verið betri aðilinn í leiknum sem lauk með markalausu jafntefli. Fótbolti 16. september 2009 22:19
Markalaust á San Siro - Ótrúleg endurkoma Arsenal Fyrstu umferð riðlakeppninnar í Meistaradeild Evrópu lauk í kvöld þegar leikirnir í E-H riðlunum fóru fram. Fótbolti 16. september 2009 20:38
Fámennur stuðningsmannahópur Barca á San Siro Samkvæmt heimildum ítalska dagblaðsins La Repubblica mun Barcelona ekki fá mikinn stuðning á San Siro-leikvanginum í kvöld þegar liðið mætir Inter í Meistaradeildinni því aðeins um 400 stuðningsmenn Börsunga munu hafa lagt á sig ferðalagið til Mílanóborgar. Fótbolti 16. september 2009 18:00
Anelka: Við söknuðum Drogba á móti Porto Nicolas Anelka er á því að fjarvera Didier Drogba hafi verið ein aðalskýringin á bitleysi sóknarleiks Chelsea á móti Porto í Meistaradeildinni í gær. Chelsea vann leikinn 1-0 og skoraði Anelka sigurmarkið í upphafi seinni hálfleiks. Fótbolti 16. september 2009 15:45
Ný Müller-markavél í þýska boltanum - tvær tvennur á fjórum dögum Thomas Müller er langt frá því að vera þekktasti knattspyrnumaður Þýskalands en það gæti breyst fljótt því þessi tvítugi strákur hefur slegið í gegn hjá Bayern München í síðustu tveimur leikjum. Fótbolti 16. september 2009 15:30
José Mourinho: Eto'o er besti sóknarmaður í heimi José Mourinho, þjálfari ítalska liðsins Inter, fór létt með það að hrósa sjálfum sér um leið og hann hrósaði Kamerúnmanninum Samuel Eto'o. Inter mætir Barcelona í Meistaradeildinni í kvöld. Fótbolti 16. september 2009 13:30
Galliani: Inzaghi er ótrúlegur Varaforsetinn Adriano Galliani hjá AC Milan hrósaði hinum 36 ára gamla markvarðahrelli Filippo Inzaghi í hástert eftir tvennu hans í 1-2 sigrinum á Marseille í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöld. Fótbolti 16. september 2009 11:30
Ferguson: Aldrei heyrt jafn mikinn hávaða á leik Englandsmeistarar Manchester United hófu leik í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld með góðum 0-1 útisigri gegn Besiktas í Tyrklandi en Paul Scholes skoraði sigurmarkið þegar um stundarfjórðungur lifði leiks. Enski boltinn 15. september 2009 22:49
Meistaradeildin: Ronaldo með tvennu fyrir Real Madrid Fyrstu leikir riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu fóru fram í kvöld þegar átta leikir fóru fram í riðlium a til d. Þar bar hæst að stjörnumprýtt lið Real Madrid vann 2-5 sigur gegn FC Zürich og ensku félögin Manchester United og Chelsea unnu bæði góða sigra. Fótbolti 15. september 2009 20:48
Mascherno klár í slaginn Javier Mascherano hefur jafnað sig á meiðslum sínum og getur því spilað með Liverpool sem mætir ungverska liðinu Debrecen í Meistaradeild Evrópu á morgun. Fótbolti 15. september 2009 17:45
Ketsbaia hættur hjá Olympiakos Georgíumaðurinn Temuri Ketsbaia er hættur sem knattspyrnustjóri gríska liðsins Olympiakos en á morgun mætir liðið AZ Alkmaar í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 15. september 2009 12:15
Messi vill vinna Gullknöttinn Lionel Messi hefur sett stefnuna á að vinna hinn svokallaða Gullknött í ár og þykir hann eiga góðan möguleika á því. Fótbolti 15. september 2009 11:45
Terry stólar á Ancelotti John Terry segir að Carlo Ancelotti sé rétti maðurinn til að stýra Chelsea til sigurs í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 15. september 2009 11:15
Xavi: Zlatan er alls ekki jafn alvarlegur og menn segja Miðjumaðurinn Xavi hjá Meistaradeildarmeisturum Barcelona er ánægður með innkomu framherjans Zlatan Ibrahimovic inn í lið Barcelona. Fótbolti 14. september 2009 18:30
UEFA hefur dregið leikbann Eduardo til baka Stjórn aganefndar knattspyrnusambands Evrópu hefur ákveðið að taka til greina áfrýjun Arsenal vegna tveggja leikja banns sem framherjinn Eduardo Da Silva var dæmdur í á dögunum. Enski boltinn 14. september 2009 17:45
Mourinho sannfærður um að Inter vinni Barcelona Knattspyrnustjórinn málglaði Jose Mourinho hjá Inter er alls ekkert smeykur fyrir heimsókn Meistataradeilarmeistaranna í Barcelona í fyrsta leik riðlakeppninnar á miðvikudag. Fótbolti 14. september 2009 11:00
Sir Alex: Vill fá annað tækifæri á móti Barcelona Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að óskamótherjar sínir í úrslitaleik Meistaradeildarinnar næsta vor séu Evrópumeistarar Barcelona en hann vill endilega fá tækifæri til að hefna fyrir tapið í úrslitaleiknum í Róm í vor. Fótbolti 14. september 2009 08:00
Andres Iniesta: Versta sumarið mitt á ævinni Andres Iniesta, miðjumaður Barcelona og spænska landsliðsins, er að komast aftur af stað eftir að hafa glímt við erfið meiðsli sem hafa haldið honum frá fótboltavellinum í meira en hundrað daga. Fótbolti 11. september 2009 13:30
Wenger hefur mikla trú á Mario Balotelli hjá Inter Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur mikla trú á Mario Balotelli hjá Inter og spáir því að hann verði spútnikstjarna Meistaradeildarinnar á þessu tímabili. Balotelli þykir vera hæfileikaríkur framherji en hann er einnig þekktur fyrir það að hafa litla stjórn á skapi sínu. Fótbolti 7. september 2009 14:30
Barcelona bætti við enn einum titlinum í safnið Barcelona bætti í kvöld enn einum titlinum í safnið er liðið bar sigurorð af Shakhtar Donetsk frá Úkraínu í Meistarakeppni UEFA í kvöld. Leikurinn fór fram í Mónakó. Fótbolti 28. ágúst 2009 21:24
Ferguson spáir enskum yfirráðum í Meistaradeildinni Knattspyrnustjórinn Sir Alex Ferguson hjá Englandsmeisturum Manchester United reiknar fastlega með því að ensku félögin fjögur sem taka þátt í Meistaradeildinni á þessu keppnistímabili eigi eftir að ná góðum árangri líkt og síðustu ár. Enski boltinn 28. ágúst 2009 10:30