Fótbolti

Bæjarar óttast Wayne Rooney

Elvar Geir Magnússon skrifar
Wayne Rooney.
Wayne Rooney.

Franz Beckenbauer, forseti þýska liðsins FC Bayern, segir að hans lið óttist Wayne Rooney í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Bæjarar leika gegn Englandsmeisturum Manchester United.

„Hann hefur verið að gera stórkostlega hluti fyrir Manchester United. Það er ekki auðvelt að skora 33 mörk í ensku úrvalsdeildinni. Það er í raun ekki auðvelt að gera það nokkurstaðar," segir Beckenbauer.

„Við töpuðum gegn þeim í úrslitunum 1999 og viljum að sjálfsögðu hefna okkar með því að slá þá út. Þetta verður erfitt og það gerir okkur enn erfiðara fyrir að United er með Rooney."

Beckenbauer trúir því að Rooney geti líka gert góða hluti með Englandi á HM. „Ég hef aldrei séð hann spila betur og ég hef lengi fylgst með honum. Ef hann heldur áfram á þessari braut getur hann unnið HM fyrir England," segir Beckenbauer.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×