Útilokar ekki að „breyta um taktík“ virki bóluefnin á omíkron-afbrigðið Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segist ekki útiloka að hann „breyti um taktík“, sýni niðurstöður fram á að bóluefni virki á omíkron-afbrigði veirunnar. Innlent 6. desember 2021 08:09
Eyddu síðustu krónunum sínum í jólaseríur Um land allt standa þúsundir fyrirtækjaeigenda frammi fyrir einni spurningu á hverjum degi: Hvernig náum við að lifa heimsfaraldurinn af? Í dag heyrum við dæmisögu um eitt slíkt fyrirtæki og hvernig þeim hefur gengið að takast á við Covid. Atvinnulíf 6. desember 2021 07:00
Nýgengi smita langlægst hjá þeim sem hafa fengið þriðja skammtinn Fjórtán daga nýgengi á hverja 100.000 er nú 751 hjá óbólusettum fullorðnum einstaklingum, 478 hjá fullbólusettum og 56 hjá þeim sem hafa fengið þrjá skammta af bóluefnum. Innlent 6. desember 2021 06:52
Segir of seint að bregðast við omíkron með takmörkunum Nýjustu breytingar breskrar stjórnvalda á ferðatakmörkunum til landsins, sem gripið hefur verið til í því skyni að stemma stigu við útbreiðslu omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar þar í landi, koma of seint að mati vísindamanns sem ráðleggur ríkisstjórninni við sóttvarnaaðgerðir. Erlent 5. desember 2021 23:00
Fella niður skólahald vegna fjölda smitaðra Skólahald í Hlíðaskóla verður fellt niður á morgun, mánudag, og á þriðjudaginn vegna fjölda þeirra Covid-smita sem hafa komið upp í skólanum. Innlent 5. desember 2021 19:41
Tveir flóðhestar greindust smitaðir Tveir flóðhestar í dýragarði í Antwerpen í Belgíu hafa greinst smitaðir af kórónuveirunni. Starfsfólk garðsins vinnur nú hörðum höndum að smitrakningu og telur að um sé að ræða fyrsta smitið meðal dýrategundarinnar. Erlent 5. desember 2021 15:35
Óbólusettur prestur smitaði fjölda barna í fermingarbúðum Óbólusettur prestur í Noregi dreifði ekki bara guðsorðum í fermingarbúðum sem hann vann við heldur smitaði hann fjölda fermingarbarna af kórónuveirunni. Erlent 5. desember 2021 13:38
„Ég held að maður geti sagt í heildina tekið að þetta sé að sigla niður“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að heilt yfir litið sé faraldurinn á niðurleið hér á landi. Tólf hafa nú greinst með omíkron afbrigði veirunnar hér á landi. Innlent 5. desember 2021 12:01
Búinn að skila minnisblaði til ráðherra Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir sendi heilbrigðisráðherra minnisblað í gær. Innlent 5. desember 2021 11:11
Áttatíu greindust innanlands í gær Áttatíu greindust smitaðir af Covid-19 innanlands í gær og tíu á landamærunum. Alls voru 39 þeirra sem greindust smitaðir í sóttkví við greiningu. Innlent 5. desember 2021 10:44
Bretar herða reglurnar vegna omíkron Ferðamenn sem vilja komast inn í Bretland munu þurfa að framvísa neikvæðu kórónuveiruprófi fyrir brottför til landsins. Ástæðan er útbreiðsla nýja omíkron-afbrigðis veirunnar, sem lítið er vitað um á þessari stundu. Erlent 4. desember 2021 22:14
Útilokar hvorki reglulega örvunarbólusetningu né aðgerðir næstu árin Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir okkar helstu von í baráttunni við kórónuveiruna vera að ná hjarðónæmi með náttúrulegum sýkingum. Innlent 4. desember 2021 14:00
Vísindamenn neita því að bólusetningar ýti undir hjartavandamál íþróttafólks Undanfarið hefur borið á að leikmenn og stuðningsfólk í hinum ýmsu íþróttum hafi hnigið til jarðar á meðan leik eða æfingu stendur. Ástæðan er nær alltaf tengd hjartavandamálum viðkomandi á einn eða annan hátt. Fótbolti 4. desember 2021 11:01
Tíu hafa greinst með omíkron hér á landi Í gær greindust 110 einstaklingar smitaðir af kórónuveirunni. Tíu einstaklingar hafa verið greindir með omíkron-afbrigði veirunnar frá því að það barst hingað til lands. Innlent 4. desember 2021 10:45
Nota Moderna jafn mikið og Pfizer í örvunarbólusetningu Bóluefni Moderna gegn Covid-19 er notað jafn mikið í örvunarbólusetningum hér á landi og bóluefni Pfizer/BioNTech. Efnið er þó ekki notað við örvunarbólusetningu karlmanna fjörutíu ára og yngri. Innlent 4. desember 2021 10:01
Röddin mín: Naktir miðaldra karlmenn í fjáröflun „Þetta er besta partí sem ég hef farið í,“ segir Dalvíkingurinn Friðrik Már Þorsteinsson um fimmtugsafmælið sitt; veislu sem hann hélt í Hull í Bretlandi þar sem hann býr ásamt eiginkonu og tveimur dætrum. Atvinnulíf 4. desember 2021 08:00
Gott ef veiran þróast í átt til minni veikinda en það taki langan tíma Yfirlæknir á Landspítalanum segir mögulegt að omíkrón-afbrigði kórónuveirunnar reynist meinlausara en fyrri afbrigði. Hann telur ekki sérstaka ástæðu til að hafa miklar áhyggjur af afbrigðinu sem stendur en bendir þó á að á næstu vikum muni umfang og alvarleiki afbrigðisins líklega koma betur í ljós. Innlent 3. desember 2021 21:00
27 milljarðar á tveimur árum Heimsfaraldurinn hefur kostað heilbrigðiskerfið um 27 milljarða á síðustu tveimur árum. Heilbrigðisstofnanir hafa fengið þau skilaboð úr heilbrigðisráðuneytinu að spara ekki í baráttu sinni gegn veirunni - öllum kostnaði verði mætt. Innlent 3. desember 2021 20:00
Lögfræðingar virðuleg stétt en skilja ekki vísindarannsóknir Það hefur alvarlegar afleiðingar fyrir Íslenska erfðagreiningu að sögn Kára Stefánssonar ef úrskurður Persónuverndar um að fyrirtækið hafi brotið lög stendur. Sóttvarnalæknir segir úrskurðinn ekki breyta viðhorfi hans til fyrirtækisins. Innlent 3. desember 2021 19:13
Æðsti vísindamaður WHO segir óðagot vegna omíkron ótímabært Æðsti vísindamaður Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) hvetur fólk til að örvænta ekki né fara í óðagot vegna omíkron-afbrigðis kórónuveirunnar og of snemmt væri að segja til um hvert gera þyrfti breytingar á þeim bóluefnum sem hafa verið gerð gegn Covid-19. Erlent 3. desember 2021 16:48
Íhuga að hætta raðgreiningu vegna úrskurðar Persónuverndar Forsvarsmenn Íslenskrar erfðagreiningar segja fyrirtækið ekki hafa framið glæp með þjónustu þess við íslensk heilbrigðisyfirvöld í faraldri kórónuveirunnar. Fyrirtækið mun reyna að fá ákvörðun Persónuverndar frá því fyrr í vikunni hnekkt fyrir dómstólum. Innlent 3. desember 2021 15:39
Mætti með gervihönd til að komast hjá bólusetningu Ítalskur maður stendur frammi fyrir ákæru fyrir svik eftir að hann reyndi á frumlegan hátt að verða sér út um bólusetningarpassa án þess þó að láta bólusetja sig. Maðurinn mætti í bólusetningu með gervihönd fasta við sig. Erlent 3. desember 2021 14:47
Kaupa lyf sem á að draga úr hættu á alvarlegum veikindum vegna Covid Heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að kaupa nýtt lyf sem þykir gefa góða raun til að draga úr hættu á alvarlegum veikindum fólks vegna Covid-19 við vissar aðstæður. Innlent 3. desember 2021 14:43
Eitt prósent Þjóðverja með Covid-19 og grunur um sautján Omíkron-smit í jólaboði í Osló Talið er að sautján einstaklingar sem greindust með Covid-19 í kjölfar jólaboðs í Osló séu með Omíkron-afbrigði kórónuveirunnar. 64 boðsgesta hafa greinst með Covid og yfirvöld telja líklegt að fleiri muni reynast með Omíkron-afbrigðið. Erlent 3. desember 2021 11:35
Nýsmituðum fjölgað um rúm þrjú hundruð prósent á viku Þeim sem smitast af Covid-19 í Suður-Afríku hefur fjölgað hratt á undanförnum dögum. Í gær var tilkynnt að 11.535 greindust smitaðir á undanförnum sólarhring og var hlutfall jákvæðra sýna 22,4 prósent. Erlent 3. desember 2021 11:29
126 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær 126 greindust með Covid-19 innanlands í gær en 136 í heildina. Innlent 3. desember 2021 10:47
Lyflækningadeild lokað: Omíkron einangrað við Akranes Lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akranesi hefur verið lokað tímabundið og eru sjúklingar hennar og starfsfólk í sóttkví. Beðið er eftir niðurstöðu skimana en sá sem greindist fyrst með omíkron-afbrigði kórónuveirunnar á landinu var sjúklingur á deildinni. Innlent 3. desember 2021 10:35
Munum aldrei snúa aftur til tímans fyrir faraldur Þær fregnir berast frá Suður-Afríku að einstaklingar sem hafi sýkst af omíkron-afbrigði kórónuveirunnar séu mestmegnis með mild og flensulík einkenni. Magnús Gottfreðsson, prófessor og yfirlæknir á Landspítala, segir þó of snemmt að segja til um hvort nýja afbrigðið sé vægara en þau fyrri. Innlent 3. desember 2021 10:01
Norwegian og SAS taka aftur upp grímuskyldu Norrænu flugfélögin Norwegian og SAS hafa bæði ákveðið að taka upp grímuskyldu um borð í flugvélum sínum á nýjan leik Erlent 3. desember 2021 08:50
Vilja að heilbrigðisráðherra skipi sóttvarnalækni Heilbrigðisráðherra mun framvegis skipa í embætti sóttvarnalæknis, nái nýtt frumvarp ráðherra fram að ganga. Eins og stendur er það landlæknir sem ræður sóttvarnalækni. Innlent 3. desember 2021 06:27