Um 5% fólks á Spáni gætu hafa smitast af veirunni Mótefnamæling á Spáni bendir til þess að allt að 5% íbúa þar hafi smitast af nýju afbrigði kórónuveiru sem veldur Covid-19-sjúkdómnum. Það eru um tífalt fleiri en fjöldi staðfestra smita í landinu. Heilbrigðisráðherra Spána segir mælinguna sýna að ekkert hjarðónæmi sé til staðar. Erlent 13. maí 2020 21:04
Samherji endurgreiðir ríkinu hlutabætur Stjórnendur Samherja Íslands og Útgerðarfélag Akureyringa hafa ákveðið að endurgreiða ríkinu hlutabætur sem það greiddi starfsmönnum. Félög Samherja muni í staðinn sjálf bera allan kostnað af skertu starfshlutfalli starfsmanna sinna. Viðskipti innlent 13. maí 2020 20:32
Sterkasta golfmót allra tíma hér landi? Skærustu stjörnur golfíþróttarinnar hér á landi verða á ferðinni í Mosfellsbæ á laugardag og sunnudag þegar ÍSAM-mótið fer fram. Þar gæti verið um að ræða fyrsta mótið sem telur inn á heimslista áhugakylfinga frá því að kórónuveirufaraldurinn setti allt íþróttalífið úr skorðum. Golf 13. maí 2020 19:30
Fjármálaráðherra segir sams konar flugfélag verða að rísa á rústum Icelandair fari félagið í þrot Fjármálaráðherra segir verðmæti Icelandair felast í leiðarkerfi þess með Keflavíkurflugvöll sem miðstöð í norður Atlantshafsflugi. Takist ekki að bjarga félaginu verði að reisa annað sams konar félag á grunni þess. Innlent 13. maí 2020 19:20
Ekki útlit fyrir frekari viðræður Icelandair og flugfreyja Forstjóri Icelandair segir áhyggjuefni að ekki verði lengra komist í viðræðum við Flugfreyjufélag Íslands. Í yfirlýsingu frá flugfélaginu kemur fram að ekki hafi verið boðað til frekari funda og að ekki sé útlit fyrir að svo verði eftir að fundi var slitið fyrir hádegi í dag. Innlent 13. maí 2020 19:08
Umsóknir 96% umsækjenda um greiðslufrest á lánum fyrirtækja samþykktar Tæplega 1.500 fyrirtæki hafa sótt um og fengið samþykkta greiðslufresti á lánum sínum vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Viðskipti innlent 13. maí 2020 18:35
Enginn lengur á Landspítalanum með Covid-19 Vatnaskil urðu í kórónuveirufaraldrinum á Íslandi í dag en nú liggur enginn sjúklingur lengur inni á Landspítalanum með Covid-19, sjúkdóminn sem nýtt afbrigði kórónuveiru veldur. Engu að síður en níu sjúklingar enn á sjúkrahúsinu sem eru jafna sig á alvarlegum veikindum. Innlent 13. maí 2020 18:25
Mörgum spurningum ósvarað varðandi opnun landamæra Áhættugreining fyrir Landspítala liggur ekki fyrir. Forstjórinn segir að ekki verði teflt á tæpasta vað. Innlent 13. maí 2020 18:00
Færi frekar á bætur en að samþykkja tilboðið frá Icelandair Guðmunda Jónsdóttir, sem starfað hefur óslitið sem flugfreyja óslitið síðan 1984 og segist muna tímana tvenna, segir stöðuna í dag alls ekki góða. Icelandair og Flugfreyjufélag Íslands eiga í samningaviðræðum á erfiðum tíma flugfélagsins sem reynir að safna 29 milljörðum í hlutafé fyrir 22. maí. Innlent 13. maí 2020 17:30
Amiens fer í mál við frönsku deildina eftir að liðið var fellt Forráðamenn Amiens vilja að franska deildin snúi ákvörðun sinni að fella liðið úr frönsku úrvalsdeildinni við. Fótbolti 13. maí 2020 16:30
Ítalir ætla að byrja aftur 13. júní Keppni í ítölsku úrvalsdeildinni á að hefjast á ný 13. júní, rúmum þremur mánuðum eftir að keppni var hætt vegna kórónuveirufaraldursins. Fótbolti 13. maí 2020 15:34
Fólkið í sóttkví kom að utan Athygli vakti við uppfærslu tölulegra gagna á Covid.is í gær að á meðan flestar tölur lækkuðu þá fjölgaði fólki hér á landi í sóttkví um 133. Um var að ræða fólk sem var að koma til landsins í gegnum Keflavíkurflugvöll eða Norrænu. Innlent 13. maí 2020 15:27
Svona verður fyrirkomulagið í sundlaugunum 18. maí Sóttvarnalæknir mun leggja það til að fjöldi gesta í sundlaugum, sem ráðgert er að opni á ný eftir samkomubann nú á mánudaginn, fari fyrst um sinn ekki yfir helmingsfjölda gesta sem starfsleyfi hverrar laugar kveður á um. Innlent 13. maí 2020 15:06
200 mega koma saman 25. maí Sóttvarnalæknir mun leggja það til við heilbrigðisráðherra á næstu dögum að fjöldamörk samkomubanns verði miðuð við 200 manns frá og með 25. maí, Innlent 13. maí 2020 14:33
Sleppa söluþóknun og lækka verð á ferðum um allt að 50 prósent Ferðaþjónustufyrirtæki borga ekki neitt fyrir að skrá sig á nýtt markaðstorg, engin söluþóknun er tekin og fyrir vikið hefur því verið hægt að bjóða tugprósenta lægra verð en á hefðbundnum bókunarsíðum Viðskipti innlent 13. maí 2020 14:24
Leggur til að barir og skemmtistaðir megi opna á nýjan leik 25. maí Stefnt er að því að barir og aðrir staðir með vínveitingaleyfi sem ekki hafa getað haft opið í samkomubanninu megi opna á nýjan leik frá og með 25. maí. Viðskipti innlent 13. maí 2020 14:22
Ósátt við að stúdentar fái ekki atvinnuleysisbætur Forsvarsmenn stúdentahreyfingarinnar segjast ósáttir við að atvinnuleysisbætur til námsmanna hafi ekki verið hluti af aðgerðum til handa stúdentum sem ráðherrar mennta- og félagsmála kynntu á blaðamannafundi í dag. Innlent 13. maí 2020 14:14
Manafort færður í stofufangelsi Paul Manafort, fyrrverandi framkvæmdastjóra forsetaframboðs Donald Trump, hefur verið færður í stofufangelsi vegna faraldurs nýju kórónuveirunnar. Erlent 13. maí 2020 14:02
2,2 milljarðar í 3400 sumarstörf fyrir námsmenn Stjórnvöld munu veita 2,2 milljörðum króna í alls um 3400 sumarstörf fyrir námsmenn, 18 ára og eldri, til að bregðast við efnahagsþrengingum vegna kórónuveirufaraldurs. Innlent 13. maí 2020 13:46
Staðan í Suður-Ameríku er mun verri en opinberar tölur gefa til kynna Þrátt fyrir að opinberar tölur sýni ekki fram á það er útlit fyrir að faraldur nýju kórónuveirunnar í Suður-Ameríku sé á pari við faraldurinn í Evrópu og jafnvel í New York. Faraldurinn í Suður-Ameríku hefur þar að auki fengið mun minni athygli en víðast hvar annarsstaðar. Erlent 13. maí 2020 13:27
Landsframleiðsla gæti dregist saman um 13% vegna veirunnar Það kæmi Konráði S. Guðjónssyni, aðalhagfræðingi Viðskiptaráðs Íslands, á óvart ef Seðlabankinn lækkar ekki vexti í næstu viku þegar peningastefnunefnd tilkynnir um ákvörðun bankans. Viðskipti innlent 13. maí 2020 13:26
Hjólafólk á ekki að gera ráð fyrir að geta farið hraðar en gangandi á göngustígum Hjólreiðafólki ber skylda samkvæmt lögum að víkja fyrir gangandi fólki á blönduðum stíg, þ.e. stíg sem ætlaður er gangandi og hjólandi. Innlent 13. maí 2020 13:11
Eitt nýtt smit í gær Í fyrsta skipti í sex daga greindist nýtt smit kórónuveiru hér á landi. Innlent 13. maí 2020 13:10
Svona var 68. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra boðar til upplýsingafundar fyrir blaðamenn klukkan 14 í Skógarhlíð 14. Innlent 13. maí 2020 12:55
Segir framkvæmd Puffin-hlaupsins í Eyjum í samræmi við samkomubannið Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, segir að Puffin-hlaupið svokallaða sem fram fór í Vestmannaeyjum síðastliðinn laugardag hafi verið í samræmi við auglýsingu heilbrigðisráðherra um samkomubannið sem nú er í gildi. Innlent 13. maí 2020 12:41
Svona var kynningarfundur ráðherra fyrir námsmenn Boðað hefur verið til blaðamannafundar í dag þar sem aðgerðir stjórnvalda er snúa að sumarnámi í framhalds- og háskólum, sem og atvinnumöguleikum námsmanna, verða kynntar. Innlent 13. maí 2020 12:38
Súperstjörnur NBA héldu fund og voru sammála um að klára tímabilið Flestar af stærstu stjörnum NBA deildarinnar hafa tekið höndum saman með það markmið að pressa á það að NBA tímabilið 2019-20 verði klárað þrátt fyrir öll COVID-19 vandræðin í Bandaríkjunum. Körfubolti 13. maí 2020 12:30
Persónuverndarlög stoppa ekki birtingu fyrirtækjalistans Þetta er mat Persónuverndar, sem þó undirstrikar að hún sker ekki úr um lögmæti birtingarinnar sem stofnunin telur að fari eftir upplýsingalögum. Innlent 13. maí 2020 11:40
Slaka á takmörkunum þrátt fyrir að ná ekki eigin skilyrðum Verið er að slaka á takmörkunum á viðskiptalífinu og ferðarfrelsi víða um Evrópu. Mörg Evrópuríki hafa þó ekki náð eigin skilyrðum fyrir tilslökunum en yfirvöld þeirra halda samt ótrauð áfram. Erlent 13. maí 2020 11:40
Leiðinlegt að stærsta verkefnið á markaðnum fari til Bretlands í ójafnri keppni Valgeir Magnússon, stjórnarformaður íslensku auglýsingastofunnar Pipar/TBWA, segir það leiðinlegt, og skjóta skökku við, að stærsta verkefni á Íslandsmarkaði hafi fallið í skaut breskrar auglýsingastofu, einkum í ljósi þeirrar stöðu sem nú er uppi á íslenskum vinnumarkaði. Viðskipti innlent 13. maí 2020 11:22