NBA deildin varar öll liðin við vegna Lillard NBA deildin hefur brugðið á það ráð að senda öllum 30 liðunum sem leika í deildinni minnisblað og varað þau og aðra leikmenn við því að haga sér eins og Damien Lillard hefur víst gert eftir að tímabilinu lauk. Hann hefur látið það í veðri vaka að hann vilji bara fara til Miami Heat frá Portland Trailblazers. Körfubolti 29. júlí 2023 09:01
Elsti leikmaður NBA deildarinnar segir þetta gott Elsti leikmaður NBA deildarinnar, Udonis Haslem leikmaður Miami Heat, hefur sagt þetta gott og lagt skóna á hilluna eftir 20 tímabil í NBA deildinni. Haslem spilaði allan sinn feril með Miami Heat og vann þrjá titla með félaginu. Körfubolti 28. júlí 2023 22:30
Hilmar Smári Henningsson til Þýskalands Landsliðsmaðurinn Hilmar Smári Henningsson hefur fært sig yfir á meginland Evrópu til að spila körfuknattleik. Hann er búinn að semja við Eisbären Bremerhaven í þýsku Pro A deildinni um að leika með liðinu á næsta tímabili. Hilmar var einn af betri leikmönnum Subway deildar karla á síðasta tímabili þar sem hann stýrði Haukum í þriðja sæti deildarinnar. Körfubolti 28. júlí 2023 17:41
NBA stjörnurnar vilja komast til Sádí Arabíu Eftir að fréttir bárust af stjarnfræðilega háu launatilboði Al-Hilal til Kylian Mbappe virðist hafa kveiknað áhugi ýmissa stjörnuleikmanna í NBA að stökkva á olíupeningavagninn og spila í Sádí Arabíu. Körfubolti 27. júlí 2023 23:31
LeBron James þakkar fyrir stuðninginn og góðar kveðjur LeBron tjáði sig í fyrsta sinn á samfélagsmiðlum í dag eftir að sonur hans, Bronny James, lenti í hjartastoppi á æfingu fyrir þremur dögum. Hann segir stuðninginn sem fjölskyldan finnur úr öllum áttum vera ómetanlegur. Körfubolti 27. júlí 2023 19:43
Richotti hættur og Tenerife hengir upp treyjuna hans Hinn 36 ára gamli Nicolas Richotti hefur lagt skóna á hilluna eftir langan feril. Richotti lék síðustu tvö tímabilin sem leikstjórnandi Njarðvíkur. Sport 26. júlí 2023 17:31
Kennarinn sá hann í fangelsi eftir fimm ár en fékk í gær stærsta samning sögunnar Bandaríski körfuboltamaðurinn Jaylen Brown skálaði væntanlega í kampavíni í gær eftir að hafa fengið stærsta peningasamninginn í sögu NBA-deildarinnar í körfubolta. Körfubolti 26. júlí 2023 12:31
„Ég var með einhverja Súperman-stæla“ Körfuboltamaðurinn Martin Hermannsson sleit krossband í hné í fyrra og hefur eytt síðasta árinu í endurhæfingu. Hann segir allt vera á réttri leið, hefur lagt blóð, svita, tár og eigin peninga í endurhæfinguna og vonast til að taka þátt í komandi landsliðsverkefni Íslands. Körfubolti 26. júlí 2023 08:00
Jaylen Brown skrifar undir stærsta samning í sögu NBA deildarinnar Boston Celtics og Jaylen Brown hafa komist að samkomulagi um fimm ára framlengingu á samningi Brown frá og með næsta tímabili. Virði samningsins er 304 milljónir dollara, sem er langstærsti samningur í sögu NBA. Körfubolti 25. júlí 2023 17:30
Sonur LeBrons lenti í hjartastoppi á æfingu Bronny James, sonur körfuboltastjörnunnar LeBrons James, lenti í hjartastoppi á æfingu með skólaliði sínu. Körfubolti 25. júlí 2023 14:43
Gríska undrið segir Sádunum að kaupa sig því hann líti út eins og Mbappé Körfuboltamaðurinn Giannis Antetokounmpo hvatti sádi-arabíska félagið Al-Hilal til að kaupa sig þar sem hann líti út eins og fótboltamaðurinn Kylian Mbappé. Fótbolti 25. júlí 2023 07:15
Michael Jordan selur Hornets eftir þrettán ár sem meirihluta eigandi Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan hefur selt hlut sinn í Charlotte Hornets. Jordan hefur verið meirihluta eigandi í félaginu síðustu þrettán ár. Sport 24. júlí 2023 07:01
Haukar komnir með Bandaríkjamann Haukar hafa nælt sér í Bandaríkjamann fyrir komandi leiktíð í Subway-deild karla. Jalen Moore er 23 ára gamall bakvörður og kemur beint frá Oakland háskólanum. Sport 23. júlí 2023 23:32
Sjáðu myndbandið: FIBA kynnir ótrúlegan LED-völl Alþjóða körfuboltasambandið, FIBA, frumsýndi nýja tegund af körfuboltavelli á heimsmeistaramóti kvenna U19-ára. Völlurinn er töluvert frábrugðin hefðbundnum velli en það eru ljós á parketinu sem breytast í takt við leikinn. Sport 23. júlí 2023 23:01
Harden vill burt og eyðir öllu tengdu 76ers á samfélagsmiðlunum James Harden, leikmaður Philadelphia 76ers, er í fýlu og vill fara frá félaginu. Harden hefur eytt öllu tengt 76ers á samfélagsmiðlunum sínum. Sport 23. júlí 2023 19:16
Ekkert lið byrjað eins vel í WNBA deildinni í þrettán ár Las Vegas Aces hefur byrjað tímabilið afar vel í WNBA-deildinni. Liðið hefur unnið 21 leik og aðeins tapað tveimur. Þetta er í þriðja skipti í sögunni sem lið á svona góða byrjun. Sport 22. júlí 2023 22:52
Bætir þremur erlendum konum við Njarðvíkurliðið og lofar skemmtun Njarðvíkurliðið mætir gerbreytt til leiks í Subway deild kvenna í körfubolta næsta vetur og allir erlendu leikmenn liðsins hafa yfirgefið liðið. Körfubolti 21. júlí 2023 13:31
Nýkominn heim frá einu Evrópumóti og strax á leiðinni á annað Íslenska átján ára landslið karla í körfubolta hefur í kvöld leik á Evrópumótinu en Ísland er i b-deild í þessum aldursflokki og keppir í Matoshinos í Portúgal. Einn leikmanna liðsins er nýkominn heim af öðru Evrópumóti. Körfubolti 21. júlí 2023 13:00
Hjalti lætur af störfum í landsliðinu og Pavel tekur við Breytingar hafa verið gerðar á þjálfarateymi íslenska landsliðsins í körfubolta. Hjalti Þór Vilhjálmsson hefur látið af störfum sem einn aðstoðarþjálfari liðsins. Pavel Ermolinskij kemur í hans stað. Sport 20. júlí 2023 18:31
Hópurinn klár fyrir undankeppni Ólympíuleikanna Landsliðshópur íslenska karlalandsliðsins í körfubolta er klár fyrir verkefni sumarsins. Um er að ræða tvo vináttuleiki í Ungverjalandi og svo undankeppni Ólympíuleikanna í Tyrklandi. Körfubolti 20. júlí 2023 11:05
Pétur tekur son sinn með sér til Keflavíkur Sigurður Pétursson er genginn til liðs við Keflavík í Subway deild karla í körfuknattleik. Hjá Keflavík hittir Sigurður fyrir föður sinn Pétur sem tók nýverið við þjálfun Keflavíkurliðsins. Körfubolti 19. júlí 2023 06:30
Nýliðarnir fá meistarana í heimsókn í fyrsta leiknum í efstu deild Álftanes mætir Íslandsmeisturum Tindastóls í fyrsta leik sínum í efstu deild. Búið er að gefa út leikjadagskrá fyrir Subway-deildirnar í körfubolta. Körfubolti 18. júlí 2023 16:01
Hrákar „til háborinnar skammar“: Mun beita sér fyrir hertum viðurlögum Þjálfarar U20 ára landsliðs Svartfjallalands hræktu í andlit aðstoðarþjálfara Íslands eftir leik liðanna á HM U20 um helgina. Framkvæmdastjóra KKÍ þykir miður að fastar hafi ekki verið tekið á hegðun þjálfaranna sem smáni íþróttina. Körfubolti 18. júlí 2023 08:00
Þjálfari Keflavíkur náði í dóttur sína úr Njarðvíkurliðinu Lovísa Bylgja Sverrisdóttir hefur skipt á milli Reykjanesbæjarliðanna en hún fer úr Njarðvík yfir í Keflavík fyrir komandi tímabil í kvennakörfunni. Körfubolti 17. júlí 2023 20:30
Steph Curry vann golfmót með því að fá örn á átjándu Körfuboltamaðurinn Stephen Curry fangaði sigri á American Century Championship golfmótinu um helgina en mótið er góðgerðamót þar sem taka þátt stjörnur úr öðrum íþróttum. Golf 17. júlí 2023 16:31
Þórir til Stólanna Körfuboltamaðurinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson er genginn í raðir Íslandsmeistara Tindastóls. Körfubolti 17. júlí 2023 15:56
Fjórfölduðu stærð bikarsins hjá konunum Stjörnuleikur WNBA deildarinnar í körfubolta fór fram um helgina en Stjörnuleikshelgin var að þessu sinni í Las Vegas. Körfubolti 17. júlí 2023 15:31
LeBron James heiðrar goðsögnina með því að skipta um númer NBA körfuboltastjarnan LeBron James skiptir ekki um lið í sumar en hann skiptir aftur á móti um númer á keppnistreyjunni sinni. Körfubolti 17. júlí 2023 14:00
Íslensku strákarnir höfnuðu í tólfta sæti eftir tap gegn Slóvenum Íslenska karlalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 20 ára og yngri þurfti að sætta sig við tólfta sæti A-deildar Evrópumótsins í körfubolta eftir 15 stiga tap gegn Slóvenum í dag, 90-75. Körfubolti 16. júlí 2023 20:02
Svartfellingar hræktu á aðstoðarþjálfara íslenska liðsins Það sauð heldur betur upp úr eftir nokkuð öruggan sigur Íslands á Svartfjallalandi á heimsmeistaramóti U20 liða í körfubolta. Þjálfarateymi Svartfellinga missti algjörlega stjórn á sér og hrækt var á Dino Stipcic, aðstoðarþjálfara Íslands. Körfubolti 16. júlí 2023 14:16
Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 122-115 | Háspenna lífshætta í ótrúlegum sigri Grindvíkinga Körfubolti