Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar NBA stórstjarnan Luka Dončić og félagar í slóvenska körfuboltalandsliðinu munu líklega spila æfingaleik gegn Íslandi í sumar, ef liðin dragast ekki saman í riðil á Evrópumótinu. Körfubolti 24. febrúar 2025 07:31
„Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ „Þetta er það sem þú lifir fyrir. Ástæðan fyrir því að þú ert í þessu. [Komast inn á EM] með mörgum af mínum bestu vinum, fyrir framan ættingja og vini. Ég mun lifa á þessu restina af ævinni, og við allir“ sagði Martin Hermannsson, stigahæsti leikmaður íslenska landsliðsins í sigri gegn Tyrklandi sem tryggði Íslandi sæti á EM í sumar. Körfubolti 23. febrúar 2025 22:06
Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Ungverjar unnu sigur á Ítölum í riðli Íslands í undankeppni Evrópumótsins í körfubolta í kvöld. Sigurinn dugir þó skammt því sigur Íslands á Tyrkjum gerir það að verkum að Ungverjar sitja eftir með sárt ennið. Körfubolti 23. febrúar 2025 21:20
Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Ísland tryggði sér sæti á Evrópumótið í körfubolta í sumar með 83-71 sigri gegn Tyrklandi í lokaleik undankeppninnar. Strákarnir okkar þurftu sigur í kvöld til að tryggja sætið og kláruðu verkefnið með stæl gegn gríðarsterku tyrknesku liði. Ísland byrjaði leikinn stórkostlega og sigurinn varð aldrei tvísýnn. Körfubolti 23. febrúar 2025 21:00
Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Íslenski landsliðsmaðurinn Martin Hermannsson komst á fimmtudagskvöldið í hóp þeirra elstu sem hafa skorað 25 stig eða meira í leik með íslenska karlalandsliðinu í körfubolta. Körfubolti 23. febrúar 2025 13:00
Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Allt stefnir í það að Gregg Popovich sé búinn að stýra sínum síðasta leik í NBA deildinni í körfubolta. Körfubolti 23. febrúar 2025 12:32
Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Los Angeles Lakers sýndi mátt sinn og megin í NBA deildinni í körfubolta í nótt með flottum sigri á öflugu liði Denver Nuggets. Körfubolti 23. febrúar 2025 11:30
Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Ísland mætir Tyrkjum í undankeppni Eurobasket í Laugardalshöll annað kvöld en sigur tryggir Íslandi sæti í lokakeppninni. Körfubolti 22. febrúar 2025 23:47
Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar mikilvægan leik í Laugardalshöllinni annað kvöld og það er ljóst að strákarnir fá góðan stuðning. Körfubolti 22. febrúar 2025 10:19
Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi NBA hefur dæmt Bobby Portis, leikmann Milwaukee Bucks, í 25 leikja bann fyrir að brjóta lyfjareglur deildarinnar. Nafnaruglingur varð til þess að hann féll á lyfjaprófi. Körfubolti 21. febrúar 2025 18:01
Slagur um stól formanns KKÍ Kjartan Freyr Ásmundsson, formaður Íslensks toppkörfubolta (ÍTK), tilkynnti í dag um framboð til formanns Körfuknattleikssambands Íslands. Þar með er ljóst að tveir menn koma til greina í kjörinu. Körfubolti 21. febrúar 2025 17:08
LeBron með fjörutíu stig í fjarveru Doncic: „Hann storkar lögmálunum“ Hinn fertugi LeBron James skoraði fjörutíu stig þegar Los Angeles Lakers sigraði Portland Trail Blazers, 102-110, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Körfubolti 21. febrúar 2025 15:15
Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfuboltamaðurinn Tony Wroten, sem lék 145 leiki í NBA-deildinni á sínum tíma, hefur ekki enn fengið leyfi til að spila með Selfossi í 1. deildinni. Ástæðan er dómur sem hann fékk fyrir að taka þátt í stóru svikamáli vestanhafs. Lögfræðingur Selfoss vonast til að Útlendingastofnun sjái að sér. Körfubolti 21. febrúar 2025 09:00
Bætti skólamet pabba síns Körfuboltakonan Kate Harpring átti magnaðan leik með Marist gagnfræðiskólanum á dögunum og hún kom sér með því í metabækurnar. Körfubolti 21. febrúar 2025 08:42
Undrið Wembanyama frá það sem eftir lifir leiktíðar Hinn franski Victor Wembanyama mun að öllum líkindum ekki spila fleiri leiki á yfirstandandi leiktíð NBA-deildarinnar í körfubolta. Hann er með blóðtappa (e. deep vein thrombosis) í öxl. Körfubolti 20. febrúar 2025 23:02
Martin: Skemmtilegra að tryggja þetta fyrir fullri höll Martin Hermannsson var aftur mættur í íslenska landsliðsbúninginn og var frábær í kvöld. Martin skoraði 25 stig en leikurinn var mjög erfiður og fór eiginlega eins illa og hægt var. Martin var samt ekki á því að það væri tilefni til að gefast upp og talaði um að það væri mikið skemmtilegra að trygga sig á lokamót fyrir framan íslenska áhorfendur. Körfubolti 20. febrúar 2025 19:34
Uppgjör: Ungverjaland - Ísland 87-78 | Afleitur annar leikhluti mjög dýr Íslenska karlalandsliðið í körfubolta gat tryggt sig inn á lokakeppni EM, EuroBasket, í þriðja sinn í kvöld. Ísland átti hinsvegar ekki erindi sem erfiði þegar upp var staðið. Eftir frábæra byrjun hrundi leikurinn og munurinn sem Ungverjar náðu að byggja upp og mikill og tap, 87-78, staðreynd og EM sætið í hættu. Körfubolti 20. febrúar 2025 16:15
Verður aðeins sá átjándi til að spila níutíu landsleiki Ægir Þór Steinarsson spilar í kvöld sinn nítugasta landsleik fyrir Ísland og sama kvöld getur hann hjálpað íslenska landsliðinu inn á Eurobasket í þriðja sinn. Körfubolti 20. febrúar 2025 15:02
Gætu tryggt EM sætið í kvöld: „Skrítin staða að vera í“ Ægir Þór Steinarsson, leikmaður íslenska landsliðsins í körfubolta segir mikilvægt fyrir liðið að einbeita sér að því sem að það getur stjórnað fyrir mikilvægan leik gegn Ungverjalandi í undankeppni EM í kvöld. Leik þar sem að Ísland getur tryggt sér farmiða á EM. Körfubolti 20. febrúar 2025 13:02
Fimm sigrar og eitt grátlegt tap í síðustu sjö landsleikjum Martins Íslenska körfuboltalandsliðið mætir með ás upp í erminni í Ungverjalandi í kvöld því Martin Hermannsson er mættur til að hjálpa strákunum að taka síðasta skrefið inn á Eurobasket. Körfubolti 20. febrúar 2025 12:01
Fóturinn tekinn af körfuboltapabbanum kjaftfora Taka þurfti hægri fótinn af LaVar Ball, föður körfuboltamannanna Lonzo, LiAngelo og LaMelo. Körfubolti 20. febrúar 2025 11:02
Geta fagnað EM sæti þrátt fyrir tap: Fjórar leiðir inn á EM 20. febrúar 2025 gæti verið einn af þessum stóru dögum í íslenskum körfubolta því í kvöld getur íslenska körfuboltalandsliðið tryggt sig inn á Evrópumótið næsta haust. Körfubolti 20. febrúar 2025 10:31
Sjö kærðir vegna ítrekaðra innbrota hjá íþróttastjörnum Sjö karlmenn hafa verið kærðir vegna ítrekaðra innbrota hjá íþróttastjörnum í Bandaríkjunum. Alls stálu þeir hlutum sem verðlagðir voru á tvær milljónir Bandaríkjadala eða rúmlega 280 milljónir íslenskra króna. Sport 19. febrúar 2025 23:33
„Það tala allir um toppliðin þrjú og við höfum ekki verið í þeirri umræðu“ Njarðvík vann nokkuð öruggan sigur gegn Þór Akueryri 94-80. Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur, var afar ánægður með sigurinn og að hans mati stimplaði liðið sig inn í baráttuna um Íslandsmeistaratitilinn. Sport 19. febrúar 2025 22:44
Stólarnir stríddu toppliðinu Tindastóll stríddi toppliði Hauka þegar liðin mættust í Ólafssal. Á endanum áttu Stólarnir ekki nóg til að leggja topplið Bónus deild kvenna í körfubolta að velli. Þá heldur botnlið Aþenu áfram að tapa leikjum. Körfubolti 19. febrúar 2025 21:46
„Efri hlutinn gefur okkur smá andrými“ „Risastór sigur hjá stelpunum. Þetta var skref í rétta átt og gefur okkur mikið sjálfstraust, það er gaman að sjá alla erfiðisvinnuna sem þær leggja inn vera að skila sér inn á völlinn,“ sagði Jamil Abiad, þjálfari Vals í Bónus deild kvenna, eftir sex stiga sigur gegn Hamar/Þór. Deildin skiptist nú til helminga og þökk sé sigrinum í kvöld verður Valur í efri hlutanum. Körfubolti 19. febrúar 2025 21:25
Uppgjörið: Hamar/Þór - Valur 83-89 | Valskonur tryggðu sér sæti í efri hlutanum Valur sótti sex stiga sigur, 83-89, í heimsókn sinni til Hamars/Þórs í Þorlákshöfn í átjándu umferð Bónus deildar kvenna. Sigurinn skaut Valskonum upp í efri hlutann en Hamar/Þór situr í níunda sæti deildarinnar sem skiptist nú til helminga. Körfubolti 19. febrúar 2025 21:00
Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 94-80 | Sigurganga Njarðvíkur heldur áfram Njarðvíkingar unnu sannfærandi sigur gegn Þór Akureyri 94-80. Þetta var fimmti sigur Njarðvíkur í röð sem tryggði liðinu annað sætið áður en deildinni verður skipt upp í efri og neðri hluta. Körfubolti 19. febrúar 2025 20:49
Er von á öðru meistaraplani frá Baldri? Strákarnir á skólabekk fyrir Ungverjaleik Íslenska körfuboltalandsliðið spilar gríðarlega mikilvægan leik á móti Ungverjum í undankeppni Evrópumótsins annað kvöld. Leik sem gæti skilað íslenska landsliðinu inn á Eurobasket í þriðja sinn. Körfubolti 19. febrúar 2025 16:32
Kyrie Irving vill spila með Áströlum á Ólympíuleikunum Kyrie Irving vill skipta um landslið. Hann hefur skipt margoft um félag á NBA ferli sínum en nú vill hann komast í nýtt landslið. Hann segist vera með góðan menn með sér að fá leyfi fyrir því. Körfubolti 19. febrúar 2025 13:01