Alvotech með nýja umsókn til FDA um markaðsleyfi fyrir sitt stærsta lyf Verulegur samdráttur varð í sölutekjum Alvotech á öðrum fjórðungi ársins, sem námu um sjö milljónum Bandaríkjadala, borið saman við tekjur fyrsta ársfjórðungs en íslenska líftæknilyfjafélagið hætti meðal annars samstarfi sínu við STADA á tímabilinu. Alvotech hefur skilað inn endurnýjaðri umsókn til Matvæla- og lyfjaeftirlits Bandaríkjanna (FDA) um markaðsleyfi fyrir sitt stærsta hliðstæðulyf sem það væntir að verði komið á markað vestanhafs í ársbyrjun 2024. Innherji 31. ágúst 2023 10:59
Ekki ein uppsögn borist Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segir engan flugmann hafa sagt upp störfum nú fyrir mánaðamótin. Ef átján flugmenn myndu segja upp störfum á einu bretti yrði félagið að tilkynna það á markaði. Viðskipti innlent 31. ágúst 2023 10:26
Dagskrá riðlast vegna seinkunar á flugi Flugi Icelandair frá Reykjavík til Egilsstaða seinkaði um eina og hálfa klukkustund í morgun. Ráðherrar ríkisstjórnarinnar eru um borð en sumarfundur ríkisstjórnarinnar fer fram á Egilsstöðum í dag. Reiknað er með því að matvælaráðherra tilkynni um ákvörðun sína varðandi hvalveiðar á fundinum. Innlent 31. ágúst 2023 09:09
Losun frá flugi og siglingum jókst um 95 prósent eftir faraldurinn Útblástur gróðurhúsaloftegunda vegna alþjóðasamgangna frá Íslandi jókst um 95 prósent á milli ára í fyrra þegar ferðatakmörkunum eftir heimsfaraldurinn var aflétt. Losun á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda stóð svo gott sem í stað á milli ára í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Umhverfisstofnunar. Innlent 31. ágúst 2023 08:59
Fyrstur stóru viðskiptabankanna til að tilkynna um vaxtahækkun Arion banki hefur tilkynnt um hækkun vaxta á inn- og útlánum hjá bankanum í kjölfar stýrivaxtaákvörðunar Seðlabankans í síðustu viku. Breytingarnar taka gildi í dag. Viðskipti innlent 31. ágúst 2023 08:59
Kvöldfundur vegna atvinnutilboðs Icelandair til átján flugmanna Play Átján flugmenn Play sem voru á biðlista eftir störfum hjá Icelandair fengu símtal í gær þar sem þeim var boðið að hefja störf hjá félaginu. Þeir sem hyggjast þiggja boðið verða að segja upp hjá Play í dag. Viðskipti innlent 31. ágúst 2023 08:35
Forstjóri Kviku mun ekki hafa frumkvæði að sameiningu við stóran banka Nýr bankastjóri Kviku hefur ekki hug á því að endurvekja samrunaviðræður við Íslandsbanka og telur að sameining við einn af stóru bönkunum myndi kalla á yfirtökuálag fyrir hluthafa Kviku miðað við núverandi markaðsgengi eigi það að vera raunhæfur kostur, segir hann í viðtali við Innherja. Bankinn mun í framhaldinu jafnframt ekki eiga frumkvæði að því að skoða viðræður við Arion eða VÍS en forstjóri Kviku segist vilja fara í öfluga samkeppni við stóru viðskiptabankanna. Innherji 31. ágúst 2023 07:06
Hagnaður Regins jókst um 66 prósent Hagnaður fasteignafélagsins Regins jókst um rúm 66 prósent á milli ára en fyrstu sex mánuði ársins nemur hann um 6,1 milljarð króna, samanborið við 3,7 milljarða á sama tíma í fyrra. Viðskipti innlent 30. ágúst 2023 23:32
Tapið minna og sölutekjur meiri en í fyrra Tap íslenska líftæknilyfjafélagsins Alvotech á fyrri helmingi þessa árs nemur 86,9 milljónum dollara, það samsvarar rúmum ellefu milljörðum í íslenskum krónum. Það er talsvert minna tap en á síðasta ári þegar tapið var 184,5 milljónir dollara. Þá voru sölutekjur félagsins næstum sexfalt meiri í ár en í fyrra. Viðskipti innlent 30. ágúst 2023 22:12
Thomas Skov lætur af störfum hjá Kviku Thomas Skov Jensen, framkvæmdastjóri áhættustýringar Kviku banka, hefur sagt starfi sínu lausu. Þetta kemur fram í tilkynningu bankans til Kauphallarinnar. Viðskipti innlent 30. ágúst 2023 20:41
Heitir í háloftunum Karlkyns flugþjónum, eða heitum háloftaprinsum, hefur fjölgað ört á síðastliðnum árum. Í gegnum tíðina hafa konur verið kenndar við starfið út frá gömlum staðalímyndum. Flugfreyjur áttu að vera ógiftar og snotrar í vexti. Lífið 30. ágúst 2023 20:02
Sameina svið hjá Icelandair Leiðakerfis-og sölusvið og þjónustu-og markaðssvið flugfélagsins Icelandair verða sameinuðu í eitt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Viðskipti innlent 30. ágúst 2023 18:54
Arðsemi fyrst núna að nálgast arðsemi norrænna banka Bankastjóri Arion banka segir að bankinn fagni skýrslu menningar- og viðskiptaráðherra. Arðsemi stóru bankanna þriggja sé ekki of mikil. Arðsemi eigin fjár Arion banka var 14,5 prósent á fyrri helmingi ársins. Viðskipti innlent 30. ágúst 2023 16:50
Hagnaður Sýnar á fyrri hluta árs eykst Rekstrarhagnaður Sýnar hf nam 1.002 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins og jókst um 39 prósent á milli ára. Rekstrarhagnaður á öðrum ársfjórðungi var 574 milljónir króna samanborið við 322 milljónir á fyrra ári. Viðskipti innlent 30. ágúst 2023 12:02
Ýmislegt bendi til þess að bankar geti lækkað álagningu Ýmis atriði gefa vísbendingar um möguleika bankanna til aukinnar arðsemi eða lækkunar álagningar. Þetta segir í niðurstöðu starfshóps menningar- og viðskiptaráðherra í skýrslu um greiningu á gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Neytendur 29. ágúst 2023 17:29
Bein útsending: Lilja kynnir skýrslu um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna Menningar- og viðskiptaráðherra hefur til kynningar á skýrslu starfshóps ráðuneytisins um gjaldtöku og arðsemi viðskiptabankanna. Kynningin hefst klukkan 16:30. Viðskipti innlent 29. ágúst 2023 16:00
Alvotech fær markaðsleyfi í Egyptalandi Alvotech og Bioventure, dótturfyrirtæki GlobalOne Healthcare Holding LLC, tilkynntu í dag að lyfjaeftirlit Egyptalands hafi veitt leyfi til framleiðslu og sölu á AVT02, líftæknilyfjahliðstæðu Alvotech við Humira. Viðskipti innlent 29. ágúst 2023 10:14
Sjóvá dregið úr vægi skráðra hlutabréfa um fjórðung á árinu Eftir að hafa selt skráð hlutabréf fyrir á fjórða milljarð króna á fyrstu sex mánuðum ársins hefur vægi þeirra ekki verið minna sem hlutfall af eignasafni Sjóvá um árabil. Tryggingafélagið bætti við sig í Arion fyrir nærri hálfan milljarð á öðrum fjórðungi samhliða því að það seldi fyrir sambærilega upphæð í Íslandsbanka. Innherji 29. ágúst 2023 08:50
Haustið og heimilisbókhaldið Haustið markar alltaf ákveðin tímamót í huga mér. Á þessum tíma kemst rútínan aftur í gang, allir komnir aftur í skóla og þessi tilfinning að merkja bækur og koma sér aftur af stað í hreyfingu er nokkuð sem ég held að margir tengi vel við. Skoðun 29. ágúst 2023 08:00
Nýr bankastjóri Kviku kaupir í félaginu fyrir 34 milljónir Ármann Þorvaldsson, sem var ráðinn bankastjóri Kviku í síðustu viku, hefur keypt bréf í bankanum fyrir jafnvirði tæplega 34 milljónir króna. Hlutabréfaverð Kviku hefur verið undir þrýstingi til lækkunar um langt skeið og er niður um nærri 20 prósent á síðustu tólf mánuðum. Innherji 28. ágúst 2023 16:39
„Ekki ljóst að svo stöddu hvenær þetta kemst í lag“ Íslenskar flugvélar sitja nú fastar í Bretlandi vegna bilunar í flugstjórn. Play og Icelandair hafa bæði fundið fyrir þessu vandamáli, sem nú er unnið að því að leysa. Innlent 28. ágúst 2023 13:35
Fjárfestar stækkuðu við sig í hlutabréfasjóðum í fyrsta sinn um langt skeið Eftir viðvarandi útflæði úr innlendum hlutabréfasjóðum í nærri eitt ár varð viðsnúningur í liðnum mánuði þegar meira en einn milljarður króna flæddi inn í slíka sjóði samhliða verðhækkunum í félaga Kauphöllinni. Ekkert lát var hins vegar á sama tíma á áframaldandi innlausnum fjárfesta í skuldabréfa- og blönduðum sjóðum. Innherji 28. ágúst 2023 12:24
Sýn kaupir Bland Sýn hefur keypt sölutorgið Bland af Heimkaupum. Mun Sýn í framhaldi taka yfir rekstur sölutorgsins. Viðskipti innlent 28. ágúst 2023 11:33
Félagasamstæða Bláa lónsins endurskipulögð og stefnt á markað Á fundi hluthafa í Bláa lóninu hf. í dag var samþykkt að stofna sérstakt eignarhaldsfélag utan um samstæðu félagsins. Nýja eignarhaldsfélagið mun bera nafnið Bláa Lónið hf. og er stefnt að skráningu félagsins á markað vorið 2024. Viðskipti innlent 25. ágúst 2023 18:40
Verður yfirmaður hliðartekna hjá Play Flugfélagið Play hefur ráðið Emilio Chacon Monsant sem yfirmann hliðartekna. Viðskipti innlent 25. ágúst 2023 11:08
Hildur Björk frá Isavia til VÍS Hildur Björk Hafsteinsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður markaðsmála og upplifunar hjá VÍS. Viðskipti innlent 25. ágúst 2023 10:26
Gengi Brims fellur um fimm prósent eftir svartsýnan tón í yfirlýsingu forstjórans Forstjóri og aðaleigandi Brims segir að félagið þurfi að vera „vel vakandi“ í rekstrinum en framundan séu tímar sem kalli á aðgát og aukið aðhald. Eftir metafkomu í fyrra helmingaðist rekstrarhagnaður Brims á öðrum ársfjórðungi sem litaðist einkum af minni botnfisksölu og ýmsum kostnaðarhækkunum. Innherji 25. ágúst 2023 10:20
Samsett hlutfall VÍS allt að 100 prósent eftir brunann Eftir brunann á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði og áætlaðan hlut VÍS í því tjóni er nú reiknað með að samsett hlutfall ársins verði á bilinu 98 til 100 prósent. Viðskipti innlent 24. ágúst 2023 14:20
Arnarlax boðar skráningu í Kauphöllina síðar á árinu Icelandic Salmon, móðurfélag fiskeldisfyrirtækisins Arnarlax á Vestfjörðum, hefur ákveðið að hefja undirbúning að skráningu félagsins á hlutabréfamarkað á Íslandi síðar á þessu ári en félagið er fyrir skráð á Euronext Growth markaðinn í Noregi. Arnarlax er stærsta fiskeldisfyrirtæki landsins með markaðsvirði upp á meira en 60 milljarða. Innherji 24. ágúst 2023 08:53
Barbara Inga nýr forstöðumaður hjá Íslandsbanka Barbara Inga Albertsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður yfir Stjórnun umbreytinga hjá Íslandsbanka. Um er ræða nýja stöðu sem heyrir undir bankastjóra. Viðskipti innlent 23. ágúst 2023 15:05