Guterres segir samninginn það mikilvægasta sem hann hafi gert hjá SÞ Fulltrúar Úkraínu, Rússlands, Tyrklands og Sameinuðu þjóðanna (SÞ) hafa undirritað samning sem mun greiða fyrir langþráðum útflutningi á korni frá Úkraínu. Samningurinn gerir Úkraínu kleift að flytja út um 20 milljón tonn af korni sem hafa lengi verið föst í höfnum landsins. Erlent 22. júlí 2022 15:22
Skrifa undir samning um útflutning korns frá Úkraínu Rússland, Úkraína, Tyrkland og Sameinuðu þjóðirnar munu í dag skrifa undir samning í Istanbúl sem gerir Úkraínu kleift að halda áfram kornútflutningi sínum. Rússar hafa haldið skipum Úkraínu föstum í höfnum Svartahafs undanfarna mánuði sem hefur ógnað fæðuöryggi um allan heim. Erlent 22. júlí 2022 10:44
Rússar sakaðir um stórtækan stuld á stáli Forstjóri stærstu stálframleiðslu Úkraínu fullyrðir að Rússar séu að stela stáli frá verksmiðjum og af hafnarsvæðum í Úkraínu. Erlent 22. júlí 2022 08:07
Senda dróna, fallbyssur og eldflaugar til Úkraínu Ben Wallace, varnarmálaráðherra Bretlands, opinberaði í morgun að Bretar ætli að senda mikið magn vopna til Úkraínu á komandi vikum. Þar á meðal skotfæri, dróna, fallbyssur og eldflaugar til að granda skriðdrekum. Erlent 21. júlí 2022 13:47
Rússar skrúfa frá gasinu Rússar hófu gasútflutning með þeirra stærstu gasleiðslu, Nordstream, á ný í morgun eftir tíu daga hlé. Óttast var að Rússar myndu skrúfa fyrir gasstreymið fyrir fullt og allt en Þjóðverjar reiða sig að miklu leyti á gasleiðsluna. Erlent 21. júlí 2022 10:06
Ekkert bendi til þess að Pútín sé illa haldinn Ekkert bendir til þess að Vladimír Pútín Rússlandsforseti sé við bága heilsu. Þetta segir forstjóri CIA, leyniþjónustu Bandaríkjanna en sögusagnir hafa verið um að forsetinn sé langt leiddur af alvarlegum sjúkdómi, mögulega krabbameini. Erlent 21. júlí 2022 07:31
Rússar vilja meira en Donbas Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, lýsti því yfir í morgun að markmið Rússa í Úkraínu hefðu breyst. Markmiðið væri ekki lengur að „frelsa“ Donetsk og Luhansk. Heldur beindu Rússar sjónum sínum nú einnig að Kherson- og Zaporozhye-héruðum í suðurhluta Úkraínu, auk annara svæða í landinu. Erlent 20. júlí 2022 14:28
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Útlit fyrir harðari átök í suðri Frá því Rússar lögðu undir sig síðustu borgir Luhansk-héraðs og lýstu yfir að hlé yrði lagt á frekari stórsóknir hefur lítil hreyfing orðið á víglínunum í Úkraínu. Sóknir Rússa eru þó byrjaðar á nýjan leik en Úkraínumenn segja varnir þeirra halda enn. Erlent 19. júlí 2022 22:52
Óttast að Pútín refsi Evrópu með því að hefta flæði á gasi Tímabundinni lokun Nord Stream 1 gasleiðslunnar vegna árlegs viðhalds mun ljúka nú í lok vikunnar en í kjölfarið gætu átök vegna leiðslunnar náð hámarki. Leiðslunni er stjórnað af rússneska fyrirtækinu Gazprom. Óttast er að Pútín noti lokunina til þess að refsa Evrópu. Erlent 19. júlí 2022 21:49
Leiðtogar þriggja valdstjórnarríkja stinga saman nefjum Leiðtogar Rússlands, Írans og Tyrklands, þriggja landa í hópi óvinsælustu ríkja heims, funduðu í Teheran í Íran í dag. Þeir ræddu meðal annars mögulegan útflutning á milljónum tonna af korni frá Úkraínu. Forseti Úkraínu segir hersveitir hans sækja hægt og örugglega fram gegn Rússum og hafa unnið til baka töluvert landsvæði frá þeim. Erlent 19. júlí 2022 19:20
Úkraínumönnum hér á landi fjölgaði um 490 prósent Erlendir ríkisborgarar með búsetu hér á landi voru 59.105 þann 1. júlí. Þeim hafði fjölgað um 4.126 frá 1. desember en sú fjölgun samsvarar 7,5 prósentum. Innlent 19. júlí 2022 16:45
„Markmiðið er að leyfa börnunum að vera börn“ Kennari sem starfað hefur með úkraínskum flóttabörnum síðustu mánuði freistar þess nú að fjármagna sumarnámskeið fyrir börnin, með sölu á bók nokkurri. Markmiðið með námskeiðinu, og starfinu öllu, er að börnin fái að vera börn. Innlent 19. júlí 2022 13:47
Úkraínuforseti sigurviss en Putin reynir að afla sér vina Putin Rússlandsforseti fundar með leiðtogum Írans og forseta Tyrklands í Teheran í dag í tilraun sinni til að afla sér bandamanna. Zelenskyy forseti Úkraínu segir hersveitir Úkraínu hafa náð að valda Rússum miklum skaða að undanförnu og það væri bara spurning um tíma hvenær fáni landsins blakti í öllum borgum og bæjum Úkraínu. Erlent 19. júlí 2022 12:07
Tíu ára heimsmeistari sigrar vegfarendur fyrir úkraínska herinn Valeria Yezhova, heimsmeistari í dammi (e. checkers), hefur síðustu daga boðið fólki að spila gegn sér, gegn gjaldi. Yezhova, sem er einungis tíu ára gömul, hefur ekki tapað einum einasta leik síðan hún hóf söfnunina. Erlent 19. júlí 2022 12:03
Pútín sækir Raisi heim og fundar með Erdogan Vladimír Pútín Rússlandsforseti heimsækir Íran í dag í opinberri heimsókn sem ætlað er að dýpka tengslin við stjórnvöld í landinu en einnig stendur til að hitta Recep Tayyip Erdogan forseta Tyrklands í sömu ferð. Erlent 19. júlí 2022 06:50
Handtekinn af herlögreglu eftir að hafa ekki fengið leigubíl Valur Gunnarsson sagnfræðingur var handtekinn af herlögreglu í Odesa fyrir að vera á götum úti eftir að útgöngubann tók gildi í kvöld. Hann var á leið heim á hótel um klukkan 23, þegar útgöngubann tekur gildi, og fékk ekki leigubíl. Innlent 18. júlí 2022 23:06
Þrettánfaldir úkraínskir meistarar krefja FIFA um sjö milljarða í skaðabætur Úkraínska knattspyrnufélagið Shaktar Donetsk hefur krafið alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA um tæpa sjö milljarða íslenskra króna í skaðabætur. Félagið segist hafa orðið af tekjum eftir ákvörðun FIFA um að leyfa erlendum leikmönnum að segja upp samningum sínum við úkraínsk og rússnesk lið eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Fótbolti 18. júlí 2022 16:30
Bjóða kennurum fúlgur fjár til að fara til Úkraínu Yfirvöld í Rússlandi hafa boðið rússneskum kennurum fúlgur fjár fyrir að fara til Úkraínu og undirbúa kennslu úkraínskra barna á yfirráðasvæði Rússa. Rússar leggja mikið kapp á að tryggja yfirráð sín á þessum svæðum. Erlent 18. júlí 2022 15:17
Á sjöunda hundrað undir grun um landráð í Úkraínu Forseti Úkraínu segir rúmlega 650 mál gegn starfsmönnum saksóknara, Öryggisþjónustunnar og annarra stofnana vegna landráðs hafa verið skráð. Forsetinn rak ríkissaksóknara og yfirmann leyniþjónustunnar í gær vegna gruns um samstarf þeirra við rússneska innrásarliðið. Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins funda í dag um hertar refsiaðgerðir gegn Rússum. Erlent 18. júlí 2022 13:30
Fréttakonan sem mótmælti innrásinni handtekin Rússneska fréttakonan sem mótmælti innrás rússa í beinni útskendingu á rússneska ríkissjónvarpinu skömmu eftir innrásina hefur verið handtekin. Erlent 18. júlí 2022 07:39
Brustu í grát þegar hin fjögurra ára Liza var borin til grafar Yfir hundrað syrgjendur komu saman í dag við jarðarför hinnar fjögurra ára Lizu sem lést í flugskeytaárás Rússa á úkraínsku borgina Vinnytsia á fimmtudag. Erlent 17. júlí 2022 23:42
Ríkissaksóknara Úkraínu og yfirmanni SBU sagt upp Ríkissaksóknara Úkraínu, Iryna Venediktova, og yfirmanni leyniþjónustu Úkraínu, Ivan Bakanov, hefur verið sagt upp af Volódímír Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 17. júlí 2022 19:39
Bjóða upp á bjór í skiptum fyrir sólblómaolíu Bar í Munchen í Þýskalandi hefur upp á síðkastið boðið gestum að koma með sólblómaolíu og fá í staðinn bjór. Búið er að setja takmarkanir á kaup landsmanna á olíunni vegna innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 17. júlí 2022 18:26
Fjármagna áfram hernað Pútíns Tekin var loks ákvörðun fyrir rúmum mánuði síðan af hálfu Evrópusambandsins um það að draga úr olíukaupum ríkja þess frá Rússlandi, meira en þremur mánuðum eftir að rússneski herinn réðist inn í Úkraínu. Olíukaupunum verður þó ekki hætt heldur er stefnt að því að draga úr þeim um 90% fyrir næstu áramót. Skoðun 17. júlí 2022 13:01
Áfrýjun Rússlands hafnað CAS, Alþjóðlegi íþróttadómstóllinn í Sviss, hefur hafnað áfrýjunarkröfu frá fjórum rússneskum félagsliðum vegna þátttökubanns UEFA sem meinar liðunum frá því að taka þátt í Evrópukeppnum á næsta leiktímabili. Rússnesku landsliðin mega heldur ekki leika í alþjóðlegum keppnum. Fótbolti 16. júlí 2022 13:31
Rússar halda áfram sprengjuárásum á almenna borgara Rússneskt stórskotalið gerði í morgun árás á borgina Nikopol í suðurhluta Úkraínu. Tveir létust í árásinni en minnst 37 almennir borgarar hafa látist af völdum árása Rússa í Úkraínu síðustu þrjá daga. Erlent 16. júlí 2022 10:45
Úkraínska þjóðin syrgir hina fjögurra ára Lísu sem Rússar myrtu í gær Hin fjögurra ára gamla Lísa hefur verið nafngreind sem ein af þeim sem féll í eldflaugaárás frá rússneskum kafbáti á borgina Vinnytsia í Úkraínu í gær. Forseti Úkraínu krefst þess að Rússland verði formlega skilgreint sem hryðjuverkaríki. Við vörum við myndefni í þessari frétt. Erlent 15. júlí 2022 19:24
Breskur hjálparstarfsmaður lést í haldi Rússa Paul Urey, breskur hjálparstarfsmaður sem handsamaður var af sveitum rússneskra aðskilnaðarsinna í Úkraínu, er dáinn. Hann er sagður hafa látið lífið í haldi Alþýðulýðveldisins Donetsk og er hann sagður hafa dáið vegna veikinda og álags. Erlent 15. júlí 2022 16:38
Bann FIFA og UEFA á rússnesk félags- og landslið stendur Rússneska knattspyrnusambandinu tókst ekki að sannfæra Alþjóða íþróttadómstólinn um að hnekkja ákvörðun Alþjóða- og knattspyrnusambands Evrópu um að banna rússnesk félags- og landslið frá keppnum sínum vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Fótbolti 15. júlí 2022 12:45
Stjórnmálamenn og almennir borgarar handsamaðir og pyntaðir Hundruð Úkraínumanna er haldið föngum á hernumdum svæðum landsins, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Bæði er um að ræða stjórnmálamenn og almenna borgara. Einn pólitíkus sagði í samtali við BBC að hann hefði verið handsamaður af rússneska hernum og beittur vatnspyntingum. Erlent 15. júlí 2022 08:39