„Þessar stelpur eru stríðsmenn“ Stelpurnar okkar fögnuðu einum stærsta sigri sem unnist hefur hjá íslensku fótboltaliði er þær lögðu Þýskaland 3-0 í gær. Fyrrum landsliðskona segist springa úr stolti yfir þeim miklu fyrirmyndum sem finna má í íslenska liðinu. Fótbolti 13. júlí 2024 20:09
Fáliðað lið Ísland tapaði í undanúrslitum Íslenska U-20 ára landslið kvenna í körfuknattleik mátti sætta sig við tap gegn Belgum í undanúrslitum B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik í dag. Körfubolti 13. júlí 2024 19:15
Þurftu að sætta sig við tap gegn Noregi Íslenska landsliðið skipað leikmönnum yngri en nítján ára lék í dag Noregi á æfingamóti í Svíþjóð. Fótbolti 13. júlí 2024 19:01
Þórsarar upp í efri hlutann eftir stórsigur í Mosó Þórsarar eru komnir upp í efri hluta Lengjudeildar karla í knattspyrnu eftir stórsigur á útivelli gegn Aftureldingu í dag. Fótbolti 13. júlí 2024 18:04
Aston Villa að ganga frá kaupum á Onana Everton hefur samþykkt tilboð Aston Villa í belgíska landsliðsmanninn Amadou Onana. Onana var í lykilhlutverki hjá Belgum á Evrópumótinu í Þýskalandi. Enski boltinn 13. júlí 2024 17:30
Logi áfram á skotskónum en Patrik hélt hreinu og lagði líka upp mark Logi Tómasson skoraði fyrir Strömsgodset í norsku úrvalsdeildinni í dag og Patrik Gunnarsson átti flottan leik í marki Víking. Fótbolti 13. júlí 2024 17:00
Njarðvíkingar töpuðu stigum á móti botnliðinu Njarðvík tapaði stigum í fjórða leiknum í röð í Lengjudeild karla í fótbolta í dag eftir markalaust jafntefli á móti sameiginlegu liði Dalvikur og Reynis. Íslenski boltinn 13. júlí 2024 16:00
Leitaði til Kanada til að finna leikmann fyrir kvennalið Vals Valsmenn hafa samið við nýjan erlendan leikmann fyrir kvennakörfuboltalið félagsins. Leikmaðurinn er kanadíski-ítalski framherjinn Alyssa Cerino. Fótbolti 13. júlí 2024 14:01
UEFA breytir reglunni um gullskóinn á EM Knattspyrnusamband Evrópu segir að sex leikmenn muni deila gullskó Evrópumótsins í fótbolta nái enginn að skora sitt fjórða mark í úrslitaleiknum á morgun. Fótbolti 13. júlí 2024 13:31
Ólafur Ingi þjálfar 21 árs landsliðið og Þórhallur tekur við af honum Knattspyrnusamband Íslands hefur fundið nýja þjálfara fyrir tvö yngri landsliðs karla í knattspyrnu. Þetta eru 19 ára landsliðið og 21 árs landsliðið. Fótbolti 13. júlí 2024 12:38
Gary Lineker vill banna orðin Gary Lineker, knattspyrnusérfræðingur og fyrrum landsliðsmaður Englendinga, vill alls ekki heyra ákveðin orð í aðdraganda úrslitaleik Englands og Spánar um Evrópumeistaratitilinn. Fótbolti 13. júlí 2024 12:00
Sjáðu mörkin sem tryggðu íslensku stelpunum sæti á EM Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu vann einn stærsta sigur sinn í sögunni þegar Þjóðverjum var skellt 3-0 á Laugardalsvellinum í gær. Fótbolti 13. júlí 2024 11:31
Földu myndirnar af Messi baða sex mánaða gamlan Lamine Yamal Myndirnar af Lionel Messi að baða spænska undrabarnið, þegar Lamine Yamal var aðeins sex mánaða, fóru eins og eldur í sinu um alnetið í vikunni. Strákurinn var sjálfur spurður út í myndirnar í viðtali fyrir úrslitaleik Evrópumótsins í Þýskalandi. Fótbolti 13. júlí 2024 11:00
Man. Utd hefur borgað 171 milljarð í vexti af skuldum frá 2005 Blaðamenn The Athletic hafa áhyggjur af rekstrarstöðu Manchester United og segja að félagið gæti lent í vandræðum með að vera réttum megin við strikið þegar kemur að rekstrarreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 13. júlí 2024 10:31
Bielsa bauð upp á rosalegan reiðilestur Marcelo Bielsa, þjálfari Úrúgvæ, kom leikmönnum sínum til varnar á skrautlegum blaðamannafundi í gær. Fótbolti 13. júlí 2024 09:31
Heldur sýningu um vítakeppnir: Angistin, alsælan og sagan hans Southgate Guðmundur Einar er svo hugfanginn af vítaspyrnukeppnum að hann ákvað að halda myndlistarsýningu tileinkaða þeim. Örlög Gareths Southgate, landsliðsþjálfara Englands, eru listamanninum sérstaklega hugleikin. Fótbolti 13. júlí 2024 09:00
Ísland varð aðeins fjórða þjóðin til að tryggja sig inn á EM 2025 Íslensku stelpurnar tryggðu sér sæti á Evrópumótinu í Sviss næsta sumar með glæsilegum 3-0 sigri á Þjóðverjum á Laugardalsvellinum í gær. Aðeins þrjár þjóðir höfðu þá náð að tryggja sér sæti í lokakeppninni af þeim sextán sem taka þátt. Fótbolti 13. júlí 2024 08:31
Declan Rice mun drekka fyrsta bjórinn ef England vinnur EM Declan Rice mun fá sér sinn fyrsta „almennilega bjór“ ef England verður Evrópumeistari næsta sunnudag. Fótbolti 12. júlí 2024 23:30
Jonny Evans verður áfram hjá Manchester United Hinn 36 ára gamli Jonny Evans hefur framlengt samning sinn við Manchester United um eitt ár. Enski boltinn 12. júlí 2024 23:01
„Tvö bestu liðin leika til úrslita“ Spænski miðjumaðurinn Dani Olmo segir tvö bestu lið Evrópumótsins leika til úrslita á sunnudaginn þegar Spánn mætir Englandi. Það sé mikilvægt að halda einbeitingu sama hver staðan er því enska liðið getur snúið leikjum við. Fótbolti 12. júlí 2024 22:32
Patrice Evra fékk fangelsisdóm fyrir að yfirgefa eiginkonu sína Patrice Evra hlaut eins árs skilorðsbundinn fangelsisdóm í Frakklandi fyrir að yfirgefa og vanrækja eiginkonu sína og börn. Fótbolti 12. júlí 2024 21:45
ÍR á góðu skriði og með öruggan sigur gegn Grindavík ÍR vann 3-0 gegn Grindavík í Lengjudeild karla í kvöld. Þetta var fimmti leikur ÍR í röð án taps, þeir tóku fram úr Grindavík með sigrinum og færðu sig upp í fjórða sæti. Fótbolti 12. júlí 2024 21:36
Heimsmeistararnir töpuðu óvænt gegn Tékklandi Ríkjandi heimsmeistarar í kvennafótbolta, Spánn, töpuðu mjög svo óvænt gegn Tékklandi í dag. Þetta var fyrsta tap Spánverjanna og fyrsta sigur Tékkanna í undankeppni Evrópumótsins. Fótbolti 12. júlí 2024 20:50
„Svona leikur er ástæðan fyrir því af hverju maður er í fótbolta“ Glódís Perla Viggósdóttir var afar ánægð eftir ævintýralegan 3-0 sigur gegn Þýskalandi á Laugardalsvelli. Með sigri tryggði íslenska kvennalandsliðið í fótbolta sér þátttökurétt á EM í fimmta skipti í röð. Sport 12. júlí 2024 20:31
„Langþráð mark sem kom á frábærum tíma“ Ingibjörg Sigurðardóttir, varnarmaðurinn öflugi, valdi aldeilis tímann til þess að skora sitt fyrsta landsliðsmark. Ingibjörg kom íslenska liðinu á bragðið í sögulegum sigri gegn Þýskalandi. Sigurinn fleytti liðinu í lokaeppni EM sem haldið verður í Sviss árið 2025. Fótbolti 12. júlí 2024 20:26
„Voru farnar að skamma mig fyrir að tefja leikinn“ Karólína Lea Vilhjálmsdóttir lagði sitt af mörkum og rúmlega það þegar íslenska kvennalandsliðið í fótbolta kvenna tryggði sér sæti í lokakeppni EM 2025 sem fram fer í Sviss með mögnuðum 3-0 sigri gegn Þýskalandi í undankeppni mótsins á Laugardalsvelli í kvöld. Fótbolti 12. júlí 2024 20:17
„Fann það fyrir leik að það væri eitthvað klikkað að fara að gerast“ Ísland vann ótrúlegan 3-0 sigur gegn Þýskalandi. Ísland hefur því tryggt sér inn á EM 2025 í Sviss. Sveindís Jane Jónsdóttir, leikmaður Íslands, fór á kostum og kom að öllum mörkum leiksins. Sport 12. júlí 2024 20:05
„Hefðum klárlega getað skorað fleiri mörk“ Alexandra Jóhannsdóttir skoraði eitt marka íslenska sem vann frækinn sigur gegn Þjóðverjum í undankeppni EM 2025 í fótbolta kvenna í Laugardalnum í kvöld. Alexandra er á leið með Íslandi á Evrópumótið en liðið er að fara þangað í fimmta skiptið í röð. Fótbolti 12. júlí 2024 20:03
Þorsteinn: Mér finnst reyndar margir þeirra sem tjá sig ekki hafa hundsvit á kvennafótbolta Á fundi með blaðamönnum var farið yfir víðan völl um sigurleik Íslands á Þjóðverjum með Þorsteini Halldórssyni þjálfara liðsins. Umræðan fór út í ferlið á liðinu og gagnrýni á það sem Þorsteinn taldi hafa verið skrýtna á köflum. Fótbolti 12. júlí 2024 19:50
„Kvöld sem ég mun rifja upp með barnabörnunum“ Sandra María Jessen stóð sig af stakri prýði þegar Ísland gerði sér lítið fyrir og lagði Þýskaland að velli í undankeppni EM 2025 í fótbolta kvenna á Laugardalsvellinum. Sandra María sagði íslenska liðið hafa haft fulla trú á verkefninu fyrir leikinn og það hafi sýnt sig þegar út í leikinn var komið. Fótbolti 12. júlí 2024 19:47