Gerum þetta almennilega Með hækkandi sól, fleiri bólusetningum og fjölgun ferðamanna lyftist brúnin á landanum og atvinnulífið tekur við sér. Það er einstaklega ánægjulegt að frétta af sífellt fleirum sem fá vinnu eftir langan tíma í atvinnuleit enda gerir það enginn að gamni sínu að draga fram lífið á bótum sem eru einungis hluti af lægstu launum. Skoðun 4. júní 2021 14:31
Útlit fyrir líflegt ferðasumar Um níu af hverjum tíu landsmönnum ætla í ferðalag innanlands í sumar þar sem gist er eina nótt eða lengur og ætlar tæplega helmingur að gista á hóteli. Þetta er niðurstaða nýrrar könnunar á vegum Ferðamálastofu. Viðskipti innlent 4. júní 2021 12:02
Borholan gaus eftir að bóndinn dældi upp úr henni Goshverinn sem opnaðist á Reykjavöllum í Biskupstungum er í raun borhola frá 1947, sem áður var notuð til að hita upp gróðurhús á svæðinu. Jarðfræðingur segir að ekki sé um að ræða eitthvað sem gerist af náttúrunnar hendi, heldur hafi holan farið að gjósa heitu vatni þegar hreinsað var upp úr henni. Innlent 3. júní 2021 20:01
Ábyrgð á eftirliti með vottorðum færð yfir á flugfélög Flugfélög sem fljúga til Íslands verða frá og með næsta laugardegi að neita þeim um flutning til landsins sem geta ekki sýnt fram á fullgilt vottorð um bólusetningu fyrir Covid-19, fyrri sýkingu eða neikvæða niðurstöðu úr sýnatöku. Innlent 3. júní 2021 14:26
Nýr goshver í Biskupstungum „Goshver opnaðist í bakgarðinum hér á Reykjavöllum í hádeginu. Án gríns, og gýs á 17 mínútna fresti.“ Innlent 3. júní 2021 13:23
Stærð ferðaþjónustunnar ástæða lengra bataferlis Prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands gerir ráð fyrir því að hlutur ferðaþjónustunnar í hagkerfi landsins sé helsta ástæða þess að OECD spái Íslandi svo hægum bata úr efnahagskreppu faraldursins. Viðskipti innlent 3. júní 2021 11:11
Nadine fer til Play Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni hefur ráðið sig til flugfélagsins Play sem samskiptastjóri fyrirtækisins. Hún hættir störfum á fréttastofunni í sumar. Viðskipti innlent 3. júní 2021 10:02
Verkalýðshreyfingin óttast gullgrafaraæði innan ferðaþjónustunnar Forystufólk verkalýðshreyfingarinnar er ekki sérlega spennt fyrir því að ferðaþjónustan fari aftur á fullt. Þau eru viss um að brotum á vinnumarkaði taki aftur að fjölga mjög á næstu mánuðum. Innlent 3. júní 2021 06:01
Hvað eru TikTok og bálkakeðjur og hvernig tengjast þau ferðaþjónustu? Nú er heimurinn smám saman að opnast á ný og fólk með uppsafnaða ferðaþrá skipuleggur fyrstu ferðalögin eftir heimsfaraldur. Ferðaþjónustan er loksins að vakna til lífsins og fyrirtækin að skipuleggja markaðsaðgerðir og þjónustuframboð eftir að hafa þurft að endurskipuleggja reksturinn ærlega undanfarið ár. Skoðun 2. júní 2021 12:31
Milljarðaframkvæmdir við Leifsstöð Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, tók í gær fyrstu skóflustungu að nýrri 20.000 fermetra viðbyggingu við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Áætlað er að hún verði tekin í notkun árið 2024 og heildarkostnaður verði 20,8 milljarðar króna. Viðskipti innlent 2. júní 2021 11:30
Mathöll, bar, hótel og fleira í Gróðurhúsinu í Hveragerði Mikil uppbygging er í kortunum í Hveragerði en þar verður nýr áfangastaður sem ber nafnið Gróðurhúsið opnaður í sumar. Þar verður hótel, verslanir, mathöll, kaffihús, bar, ísbúð, sælkeraverslun og annars konar þjónusta í boði fyrir heimamenn og innlenda og erlenda ferðamenn. Viðskipti innlent 2. júní 2021 07:50
80 milljónir króna notaðar á síðasta degi ferðagjafarinnar 2020 Í gær var 15.691 ferðagjöf nýtt, þar af 14.741 að fullu. Heildarupphæð gjafanna sem nýttar voru í gær nam um 80 milljónum króna. Viðskipti innlent 1. júní 2021 10:55
Dusterinn er kominn aftur á kreik Þeir sem fara akandi um stræti Reykjavíkur nú um mundir fara fæstir varhluta af kunnuglegri þróun sem orðið hefur í borginni á allra síðustu vikum. Dacia Duster, uppáhaldsbílaleigubíll ferðamannsins, er aftur kominn á kreik. Innlent 1. júní 2021 07:01
Vinnumálastofnun hefur svipt 350 manns bótum sem hafa hafnað vinnu án fullnægjandi skýringa Vinnumálastofnun hefur svipt þrjúhundruð og fimmtíu atvinnuleitendur tímabundið eða alfarið atvinnuleysisbótum síðustu tvo mánuði því fólk hefur hafnað störfum án tilhlýðilegra skýringa. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir brýnt að fyrirtæki láti stofnunina vita ef fólk á atvinnuleysisbótum þiggur ekki vinnu. Innlent 31. maí 2021 18:30
Allir vildu vinna hjá Strætó en víða annars staðar fæst ekki fólk til starfa Framkvæmdastjóri Bílaleigu Akureyrar telur of marga misnota atvinnuleysisbótakerfið. Fyrirtækið hafi rekið sig á að fólk hafni vinnu og vilji frekar vera á bótum. Framkvæmdastjóri Strætó sem þurfti nýlega að ráða 25 manns til starfa segir hins vegar að auðvelt hafi verið að fá fólk til starfa. Innlent 31. maí 2021 14:00
FlyOver Iceland, bensínstöðvarnar og KFC vinsæl meðal ferðagjafahafa FlyOver Iceland var það fyrirtæki sem hagnaðist mest á ferðagjöfinni svokölluðu en KFC reyndist vinsælasti matsölustaðurinn meðal ferðagjafareigenda. Frestur til að nýta ferðagjöf ársins 2020 rennur út á morgun en þá fá landsmenn nýja ferðagjöf sem gildir út ágúst. Viðskipti innlent 31. maí 2021 07:08
Hvalaskoðun er að fara aftur af stað á Húsavík Hvalaskoðunarferðir með ferðamenn eru nú hafnar á ný á Húsavík eftir rólegheit vegna heimsfaraldursins. Mikið af hval er alltaf á Skjálfandaflóa enda svæðið talið eitt það besta í Evrópu til hvalaskoðunar. Innlent 30. maí 2021 16:20
Ærslabelgur, vöfflur og flóamarkaður í Laugarási í sumar Sumarvertíðin byrjaði með gestasprengju hjá Dýragarðinum í Slakka í Biskupstungum þegar garðurinn opnaði dyr sínar að nýju á dögunum. Meira en þúsund manns sóttu garðinn heim og svo mikil var aðsóknin að búa þurfti til fleiri bílastæði til þess að sinna gestaflóðinu. Innlent 30. maí 2021 16:01
Um tvær milljónir farþega og tuttugu flugfélög Isavia reiknar með að tvær milljónir farþega fari um Keflavíkurflugvöll í ár sem er minna en vonast var eftir. Um tuttugu flugfélög hafa boðað komu sína í sumar og er búist við að fjöldi brottfara á viku rúmlega tvöfaldist milli ára. Viðskipti innlent 29. maí 2021 20:00
„Túristinn er mættur“ Langar raðir hafa myndast við heilsugæsluna á höfuðborgarsvæðinu við Suðurlandsbraut í sýnatökur undanfarna daga. Þrátt fyrir að þónokkur smit hafi greinst utan sóttkvíar undanfarna daga er fjöldinn ekki vegna þeirra smita, heldur endurkomu ferðamanna hingað til lands. Innlent 29. maí 2021 14:03
Vogafjós í miklum vandræðum með að fá starfsfólk Ólöf Hallgrímsdóttir, einn eigandi Vogafjóss í Mývatnssveit segir það sæta mikilli undrun að ekki sé hægt að fá fólk til að vinna í ferðaþjónustu nú þegar ferðamenn streymi til landsins. Hún segir að fólk á lista frá Vinnumálastofnun neiti ítrekað eða svari ekki þegar því er boðin vinna Innlent 29. maí 2021 13:09
Illvígar nágrannaerjur orðnar að lögreglumáli Illvígar deilur landeigenda í Skaftárhreppi hafa tafið framkvæmdir annars þeirra á jörð sinni þar sem hann hyggst reisa fjögur til fimm hundruð manna hótel og umfangsmikla ferðaþjónustustarfsemi. Innlent 29. maí 2021 09:30
Brýnt að bregðast við svo atvinnuleysi eftir krísu verði ekki meira en fyrir Í nýrri skýrslu ASÍ um áhrif Covid-faraldursins á afkomu launafólks kemur fram að samdrátturinn kom meira niður á viðkvæmum hópum en í öðrum íslenskum kreppum. Þá sé hætta á auknu kerfislægu atvinnuleysi eftir að heimsfaraldrinum lýkur. Stjórnvöld eru hvött til að huga að bættri stefnumótun í atvinnu- og vinnumarkaðsmálum. Innlent 28. maí 2021 17:01
Spennt fyrir því að endurvekja Arctic Rafting Leiðsögukonan og fjárfestirinn Tinna Sigurðardóttir hefur keypt flúðasiglingafélagið Arctic Rafting af ferðaþjónustufyrirtækinu Arctic Adventures. Viðskipti innlent 28. maí 2021 12:23
Brottflutningur erlendra starfsmanna gæti verið ein skýringin Forstjóri Vinnumálastofnunar telur flutning útlendinga frá landinu skýra að hluta að erfitt reynist nú að finna fólk í þúsundir starfa í ferðaþjónustunni. Viðsnúningur sé þó að verða á vinnumarkaði. Innlent 27. maí 2021 19:01
Um hundrað þúsund ónýttar ferðagjafir renna út á þriðjudag Nú fer hver að verða síðastur að nýta ferðagjöf sína sem gefin var út í fyrrasumar. Ferðagjöfin rennur út um mánaðamótin, á þriðjudaginn eftir fimm daga, og enn eiga um hundrað þúsund Íslendingar eftir að nota sína gjöf. Neytendur 27. maí 2021 12:47
Nýtt lúxushótel með 35 ára reynslu „rétt hjá útlöndum“ Vísir mælir með Hótel Keflavík þar sem lúxusupplifun bíður gesta. Samstarf 26. maí 2021 16:28
Áður í Eden Mörg eigum við góðar minningar um ísbíltúr í Hveragerði. Gott stopp í Eden þar sem hægt var að skoða blómin í gróðurhúsinu, fá sér að snæða, njóta myndlistar og fá sér sæti með fjölskyldunni í básunum góðu. Skoðun 26. maí 2021 14:30
Auglýsa aðstoð við styrkumsóknir í útvarpinu „Á þitt fyrirtæki rétt á viðspyrnustyrk? Accountant.“ Svo hljóðar auglýsing sem glymur um ljósvakann um þessar mundir og ábyrgðaraðilinn er Accountant ehf. Viðskipti innlent 25. maí 2021 16:02
„Bráðvantar starfsfólk í ferðaþjónustu“ Formaður Félags fyrirtækja í hótel- og gistiþjónustu segir bráðvanta starfsfólk í geirann. Ferðaþjónustan sé að taka fyrr við sér en gert var ráð fyrir. Þá þurfi að ráða þúsundir aftur inn fyrir haustið. Viðskipti innlent 25. maí 2021 13:00
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent