Fastir pennar

Fastir pennar

Fréttamynd

Færeyjar, Ísland og evran

Það gildir um gjaldeyrismál líkt og um lífið sjálft, að yfirleitt eru fleiri en ein leið fær að settu marki. Stundum á vel við að halda úti eigin gjaldmiðli og leyfa gengi hans að fljóta. Stundum er betra að festa gengið við gjaldmiðla annarra þjóða. Og stundum á vel við að blýfesta gengið, þannig að helzt verði ekki aftur snúið, og er það jafnan gert með því að leggja þjóðmyntina til hliðar og taka upp annan gjaldmiðil.

Fastir pennar
Fréttamynd

Andleg samkynhneigð karla

Skýrslu þingmannanefndar um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis fylgir áhugaverður viðauki, greining á skýrslu rannsóknarnefndar út frá kynjafræðilegu sjónarhorni.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sérherbergi

Í frægri bók Virginiu Woolf, Sérherbergi, slær hún því föstu að nauðsyn sé hverri listakonu að eiga eigið herbergi. Sér rými, þar sem hún getur þróað sitt eigið sjálfstæða samband við lífið og sköpunargáfu sína. Þetta eru augljós sannindi, sem margar konur þurfa enn að berjast fyrir.

Bakþankar
Fréttamynd

Geðveiki Andra Snæs

Upplitið á geðveikum er ekki alltaf djarft. Þeir halda að sjúkdómur sinn sé eitthvað til að skammast sín fyrir, læðast með veggjum. Að burðast með sjúkdóm sem sést ekki utan á manni og maður er stöðugt að reyna að fela er ekki auðvelt fyrir fjöldann allan af þessum sjúklingum. Talið er að 22-24% mannkyns þjáist einhvern tímann á ævinni af geðheilbrigðisvanda. Þrátt fyrir þetta háa hlutfall hafa samtök eins og Geðhjálp þurft að spyrna fótunum við og berjast gegn fordómum, jafnt sjúklinganna sjálfra sem og annarra. Andri Snær Magnason rithöfundur stingur sér ofan í þann úldna pytt um helgina að blanda geðveikum inn í hluti sem koma þeim ekkert við.

Bakþankar
Fréttamynd

Græn gjaldalækkun

Fréttablaðið sagði frá því í gær að fyrirtækið Metanorka, dótturfélag Íslenzka gámafélagsins, vildi kaupa metangas sem unnið er á sorphaugunum í Álfsnesi. Metanorka vill keppa á smásölumarkaði við N1, sem til þessa hefur verið eini seljandi þessa orkugjafa á landinu. Metan hf., sem markaðssetur gasið frá Sorpu, hefur fallizt á beiðnina og mun selja þeim sem vilja gasið þegar heildsöluverð hefur verið reiknað út.

Fastir pennar
Fréttamynd

Verkefnalistinn

Þingmannanefndin sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis gerir tugi tillagna um breytt vinnubrögð á Alþingi, í ríkisstjórn og stjórnsýslunni. Nefndin vill sömuleiðis gera miklar breytingar á lagaumhverfi fjármálamarkaðarins, styrkja og bæta eftirlitsstofnanirnar og láta rannsaka betur ýmsa þætti tengda hruninu. Af umræðum á Alþingi í gær virtist sem samstaða gæti náðst um að rannsaka ekki aðeins lífeyrissjóði, sparisjóði og eftirlitsstofnanir, eins og nefndin leggur til, heldur jafnframt hvernig staðið var að einkavæðingu ríkisbankanna, en margt bendir til að þar liggi rætur bankahrunsins að einhverju leyti.

Fastir pennar
Fréttamynd

Alþingi og almenningur

Stelpan frá Stokkseyri segir landsdóm vera úrelta löggjöf, og hún talar enga tæpitungu: Alþingi er við það að gera reginmistök! Trúi því ekki að fólk geri sér grein fyrir hvað það er að gera. Hef viljað trúa því að ég búi í réttarríki, en það samrýmist ekki réttarríki að draga ráðherra fyrir landsdóm."

Fastir pennar
Fréttamynd

Að missa ekki spýjuna

Til langs tíma var mestur fréttaflutningur frá Íslandi á þá leið að himinn og haf myndu farast ef ríkisstjórnin brygðist ekki við aðsteðjandi vanda með stórtækum aðgerðum.

Bakþankar
Fréttamynd

Heiður þeim sem heiður ber

Draga má saman málsvörn bankamannanna sem settu Ísland á hausinn í tvær setningar: "Ég var ekki stöðvaður" og "það var ekki passað upp á mig." Þeir eru eins og maður sem ekur á ofsahraða og drepur mann og segir svo: Þetta var lögreglunni að kenna, hún átti að stöðva mig. Jafnvel: þetta var vegagerðinni að kenna, þessir vegir eru ekki gerðir fyrir svona hraðakstur. En þetta er þeim að kenna. Ábyrgð á glæpum liggur hjá þeim sem fremja þá. Líka hjá þeim sem hvetja til þeirra, gera þá mögulega, koma ekki í veg fyrir þá, en fyrst og fremst hjá glæpamönnunum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Framtíð eða fortíð?

Skýrsla þingmannanefndarinnar sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er um margt merkilegt plagg. Í upphafi hennar er að finna vitnisburð um að stjórnmálamenn á Íslandi vilji taka höndum saman um að læra af mistökunum, sem gerð voru í aðdraganda bankahrunsins og drógu svo rækilega fram hina mörgu veikleika íslenzkra stjórnmála og stjórnsýslu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Þjóð með spegil

Fyrir rúmum tuttugu árum voru Stígamót - grasrótarhreyfing gegn kynferðisofbeldi stofnuð. Starfsemin mætti oft skilningsleysi fyrstu árin en samtökin, þá undir styrkri stjórn dr. Guðrúnar Jónsdóttur félagsfræðings, stóðu allan mótbyr af sér, enda sást strax í upphafi að brýn þörf var fyrir þau. Guðrún og aðrar starfskonur Stígamóta gengu fram fyrir skjöldu og fræddu þjóð sína.

Fastir pennar
Fréttamynd

Sáttin sett í upplausn

Í kosningunum boðaði ríkisstjórnin að útgerðir og smábátasjómenn yrðu sviptir veiðiheimildum í áföngum. Sá fyrsti átti að koma til framkvæmda í þessum mánuði. Jafnframt fylgdi loforð um réttláta endurúthlutun. Engin skilgreining fylgdi þó í hverju réttlætið væri fólgið.

Fastir pennar
Fréttamynd

Ásættanlegt klám

Borgarstjóranum okkar tókst að særa fullt af fólki í vikunni þegar hann sagðist nýta krafta netsins að mestu í klámáhorf. Orðin voru að vísu slitin úr samhengi og Jón fék

Bakþankar
Fréttamynd

Hvar verða verðmætin til?

Bót, baráttusamtök gegn fátækt í landinu, hélt fjölmennan fund í Ráðhúsi Reykjavíkur í vikunni. Þar kom meðal annars fram hörð gagnrýni á ríkisstjórnina að hafa ekki tryggt betur hag bótaþega, aldraðra og öryrkja, sem margir hverjir búa óumdeilanlega við fátækt og eiga ekki fyrir brýnustu nauðsynjum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Samið um sama

Niðurstaða svokallaðrar sáttanefndar í sjávarútvegi er nákvæmlega eins og það sem búast má við þegar markaðstortryggnir sveitasósíalistar láta margreynda lobbýista gabba sig til að halda að þeir séu að gera rétt.

Fastir pennar
Fréttamynd

Um það sem er bannað

Það má ekki pissa bak við hurð og ekki henda grjóti oní skurð,“ syngja leikskólabörn og læra þannig hvað má og hvað má ekki í laginu um það sem bannað. Allar þessar reglur eru til vegna þess að þeirra er þörf. Það er almenn kurteisi að pissa ekki bak við hurðir, og það er aldrei að vita

Bakþankar
Fréttamynd

Komið að þjóðinni

Deilur um stjórnkerfi fiskveiða hafa verið rauður þráður í þjóðmálaumræðu síðustu þrjátíu ár. Í lok áttunda áratugarins þótti nauðsynlegt að takmarka veiðar sem fram að því höfðu verið frjálsar. Fiskiskipastóllinn var orðinn of stór og það gekk á höfuðstól auðlindarinnar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Kirkjan og ríkið

Vísast er í eðli stofnana að þær vilja verja sig og viðhalda valdastöðu sinni. Um þetta eru dæmin mörg. Þannig endurspeglast tilhneiging valdastofnana til að stuðla að óbreyttu ástandi í viðbrögðum bæði Bændasamtakanna og Landssambands íslenskra útvegsmanna til aðildar að Evrópusambandinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Misjafn situr á þingi

Fólk opinberar misjafnleg viðhorf sín til samkynhneigðar þessa dagana eftir að Jenis av Rana, þingmaður og formaður Miðjuflokksins í Færeyjum vildi ekki setjast til borðs með íslenska forsætisráherranum og konu hennar.

Bakþankar
Fréttamynd

Ætla þau að svíkja?

Umbúnaður ríkisstjórnar-innar um endurskoðun fiskveiðistjórnarkerfisins virðist bera með sér, að ríkisstjórnin hyggist bregðast fyrirheitum, sem hún gaf fólkinu í landinu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fóbísku frændurnir

Frændur okkar í Færeyjum eiga þingmann sem heitir því skemmtilega nafni Jenis frá Rana. Sjálfur er hann þó ekkert sérstaklega skemmtileg týpa. Í fyrradag fann hann sig knúinn til að tilkynna að hann ætlaði sko ekki að sitja kvöldverðarboð með Jóhönnu Sigurðardóttur,

Bakþankar
Fréttamynd

Einfalt og hollt fyrir börnin

Mörgum foreldrum þykir matur grunnskólabarna einhæfur og ekki nægilega hollur. Ljóst er að staðan er þröng því meðan verð á matvælum hækkar þá eru verðskrár í skólamötuneytum óbreyttar. Sýnt er því að útsjónarsemi þarf til að viðhalda gæðum þess matar sem börnunum er boðinn.

Fastir pennar
Fréttamynd

Krónan og kjörin

Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðusambands Íslands, vakti athygli á því í viðtali hér í blaðinu í gær hversu nátengd kjaramál almennings eru ástandi gjaldmiðilsins. Hann sagði meðal annars að launafólk gæti aldrei sætzt á að krónan yrði svo veik að Ísland væri samkeppnisfært við láglaunalönd í framleiðslu.

Fastir pennar
Fréttamynd

Takk

Þegar skelfilegar aðstæður dynja á fólki er jafnan aðeins um tvennt að ræða. Annar kosturinn er að glíma við sorgina, áfallið, sannleikann, sjúkleikann eða ofbeldið. Hinn kosturinn er að lúta áfallinu, leyfa því að buga mann hið innra og ræna að lokum sjálfstjórn. Ef svo fer er líka farin getan og jafnvel möguleiki til gleði og annars, sem gerir manni gott.

Bakþankar
Fréttamynd

Nauðsynlegur aðskilnaður

Aðskilnaður ríkis og kirkju er ekki dægurmál sem tengist hegðun einstakra framámanna innan þjóðkirkjunnar í fortíð eða nútíð. Hann snýst ekki heldur um það álit sem þjóðkirkjan nýtur meðal almennings frá degi til dags. Þvert á móti er hér á ferð sígilt ágreiningsmál um grundvallaratriði; um ríkjandi viðhorf í samfélaginu til mannréttinda og félagafrelsis.

Fastir pennar
Fréttamynd

Fyrirgef oss þeirra skuldir

Ökumaður sem uppvís er að því að hafa neytt áfengis ótæpilega áður en hann settist undir stýri og stofna þannig lífi og limum meðborgaranna (og sínum eigin) í stórkostlega hættu er þar með sviptur réttindum sínum til að aka bíl í tiltekinn tíma, jafnvel þótt hann hafi verið beittur harðræði við sýnatöku.

Skoðun
Fréttamynd

Hjólandi Gúffi

Í þessum mánuði verður heimilisbílnum skipt fyrir tvö fjallahjól, tengivagn fyrir tveggja ára, strætómiða, vindklæðnað og hjálm. Það verður æ erfiðara að ná endum saman. Það er örugglega meira þreytandi að borða pasta með tómatsósu fimm daga í viku en að hjóla eða labba í vinnuna. Ég fórna bílnum fyrir fisk og kjöt.

Bakþankar
Fréttamynd

Ákall um einkavæðingu?

Þótt breytt ríkisstjórn hafi á sér ákveðnara svipmót vinstri stjórnar eftir að utanþingsráðherrarnir voru settir út úr henni, flytur hinn væntanlegi velferðarráðherra, Guðbjartur Hannesson, ekki hefðbundinn boðskap

Fastir pennar
Fréttamynd

Veik króna áfram?

Íslenska krónan er veik, hvað sem líður smástyrkingu síðustu daga. Sumir myndu jafnvel ganga svo langt að segja að hún lægi banaleguna, eða væri í það minnsta á gjörgæsludeild. Og á meðan krónan er veik blæðir almenningi og fyrirtækjum, öðrum en þeim sem reiða sig á útflutning. Forsenda þess að krónunni verði komið af gjörgæsludeildinni er að fyrir liggi sýn á framtíð hennar.

Fastir pennar
Fréttamynd

Skriftir lútherskra

Í umfjöllun undanfarinna daga um trúnaðar­skyldu presta hefur sá misskilningur komið fram í ræðu og riti að lútherskir menn skrifti ekki. Þetta byggir á því að Lúther leit ekki á skriftir sem sakramenti. Það þýðir þó ekki að hann hafi afnumið þær. Lúther var reyndar ákaflega hlynntur skriftum. Í riti sínu um Babýlónarherleiðingu kirkjunnar byrjar hann á að flokka þær með sakramentum, en talar sig síðan frá því þar sem hið ytra tákn skorti. Lúther viðurkenndi því aðeins tvö sakramenti, skírn og kvöldmáltíð. Þar eru hin ytri tákn til staðar, annars vegar vatnið og hins vegar vínið og brauðið.

Bakþankar