„Það eru þarna götur og svæði sem ekki verða byggð upp aftur“ Ríkisstjórnin fundaði með bæjarstjórn og bæjarstjóra Grindavíkur að loknum reglulegum ríkisstjórnarfundi í morgun. Þar verður rætt vítt og breytt um málefni bæjarins vegna jarðhræringanna sem undanfarna mánuði. Innlent 16. janúar 2024 12:01
Engin virkni en of snemmt að lýsa yfir goslokum Of snemmt er að lýsa yfir goslokum þrátt fyrir að engin virkni hafi verið sjáanleg í gossprungunum frá því um klukkan eitt í nótt. Enn er mikil hætta á svæðinu. Þetta kemur fram í uppfærðri frétt Veðurstofu Íslands um eldgos norðan Grindavíkur. Innlent 16. janúar 2024 11:35
Fyllsta öryggis hafi ekki verið gætt Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir að sér hafi verið verulega brugðið vegna atviks þar sem björgunarsveitamaður féll með lærið ofan í sprungu í gær. Ljóst sé að öryggisreglum hafi ekki verið fylgt. Innlent 16. janúar 2024 11:08
Heitt vatn komið á vestari hluta bæjarins: Vilja fá lykla að húsunum Búið er að koma á heitu vatn í hús vestan Víkurbrautar í Grindavík. Almannavarnir fóru í það verkefni í gærkvöldi í samstarfi við HS Veitur. Almannavarnir óska þess nú að Grindvíkingar sem búi vestan Víkurbrautar skili til þeirra lyklum að húsum sínum svo hægt sé að kanna ástand hitakerfa fasteigna. Innlent 16. janúar 2024 10:59
Minnsta en skæðasta eldgosið á Reykjanesskaga Eldgosið fyrir norðan Grindavík virðist hafa gefið upp öndina en engin kvika hefur sést kom upp síðan klukkan 1:08 í nótt. Eldfjalla- og náttúruvárhópur Suðurlands segir eldgosið það minnsta af þeim fimm sem orðið hafa á Reykjanesskaga frá 2021. Innlent 16. janúar 2024 09:01
Mál Grindavíkur ekki á dagskrá fyrr en á fimmtudag Þingmaður Viðreisnar segir skrýtið að fyrsta fundi velferðarnefndar Alþingis eftir jólafrí hafi verið frestað um tvo daga og furðar sig á að mál Grindavíkur verði ekki rædd á þeim fundi. Hann segir vinnubrögðin óboðleg. Innlent 16. janúar 2024 05:51
Engin kvika sést síðan klukkan eitt í nótt Engin kvika hefur sést koma upp úr sprungunum norðan Grindavíkur síðan klukkan 1:08 í nótt. Vakthafandi náttúruvársérfræðingur segir eldgosið virðast hafa fjarað alveg út. Innlent 16. janúar 2024 05:39
Malbikið flettist upp og húsin síga niður Hraun flæðir enn úr einum gíg á Reykjanesi, en flæðið úr gígnum sem opnaðist Grindavíkurmegin við varnargarðana er hætt. Nýtt hraun setur undarlegan svip á bæinn. Innlent 15. janúar 2024 22:01
Björgunarsveitir þurft að skipta sér af færra fólki en í fyrri gosum Björgunarsveitir hafa þurft að hefta för fólks sem vill fara gangandi að eldgosinu norður af Grindavík. Ásóknin er þó minni en áður, sem er vel að sögn björgunarsveitarmanns. Innlent 15. janúar 2024 20:00
Uppbyggingu varnargarða við Grindavík haldið áfram Forsætisráðherra segir að uppbyggingu varnargarða við Grindavík verði haldið áfram. Þeir hafi sýnt gildi sitt í gær og markmiðið sé að verja byggðina í Grindavík til framtíðar. Ríkisstjórnin leggur til við Alþingi að afkomustuðningur við Grindvíkinga verði framlengdur. Innlent 15. janúar 2024 19:21
Segir íbúa þurfa lausnir en ekki hrós: „Þú sleppir börnunum þínum ekki út úr húsi“ Íbúi við Efrahóp í Grindavík segir íbúa þurfa að heyra eitthvað annað en hvað þeir séu þrautseigir og duglegir. Nú þurfi þeir að fá raunhæfar lausnir frá stjórnvöldum. Þeir geti ekki lifað í biðstöðu. Hún ætlar ekki að flytja aftur í bæinn. Innlent 15. janúar 2024 19:02
Gosið sé að lognast út af en Grindavík sé ekki staður fyrir almenning Eldfjallafræðingur segir allt útlit fyrir að gosinu norðan við Grindavík sé að ljúka. Litlar líkur séu á að nýjar gossprungur opnist áður en gosinu ljúki. Innlent 15. janúar 2024 18:56
Nýjar sprungur myndast og þær eldri stækka Margar sprungur hafa myndast í og við Grindavík í jarðhræringum síðustu sólarhringa. Eldri sprungur, sem unnið hafði verið að því að fylla upp í og gera við, hafa einnig stækkað. Innlent 15. janúar 2024 17:29
Jörðin gaf sig undan björgunarsveitamanni „Þetta sýnir bara hversu ótryggt svæðið er hérna og hversu hættulegt þetta er. Ég var bara að labba eftir þessum stíg og það virtist allt vera í góðu lagi fyrir framan mig,“ segir björgunarsveitamaður að störfum í Grindavík. Rétt í þessu gaf jörðin sig þegar hann gekk eftir malbikuðum stíg. Innlent 15. janúar 2024 16:27
„Met stöðuna tiltölulega örugga“ Lögreglustjórinn á Suðurnesjum fór ásamt aðstoðarmönnum sínum í skoðunarferð um Grindavík í morgun. Hann segir götur í bænum aflagaðar og nýjar sprungur bersýnilegar. Forgangsverkefni sé að koma rafmagni aftur á. Þrátt fyrir allt sem á undan er gengið segist hann bjartsýnn fyrir hönd Grindvíkinga. Innlent 15. janúar 2024 15:40
Viðbrögð við nýjum veruleika Í gærmorgun vaknaði íslenska þjóðin við atburð sem flestir höfðu óttast lengi. Eldgos var hafið í næsta nágrenni við Grindavík og hraunflæði streymdi í átt að byggð. Eftir því sem atburðarás þróaðist fram eftir degi var ljóst að nýr veruleiki blasti við Grindvíkingum og þjóðinni allri í áföllum og afleiðingum af þessum eldsumbrotum og jarðhræringum á Reykjanesskaga. Skoðun 15. janúar 2024 15:01
Mælitæki Veðurstofunnar greindu engin merki áður en seinni sprungan opnaðist Gliðnun innan bæjarmarka Grindavíkur hefur verið allt að 1,4 metrar síðasta sólarhringinn. Nýjar sprungur hafa opnast og eldri sprungur stækkað. Ekki er hægt að útiloka að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara, líkt og gerðist í gær þegar sprunga opnaðist við bæjarmörk Grindavíkur. Engin merki sáust á mælitækjum Veðurstofunnar í tengslum við þá gosopnun. Innlent 15. janúar 2024 14:51
„Langt frá því að vera búið“ Ármann Höskuldsson, prófessor í eldfjallafræði við Háskóla Íslands, segir mikilvægt að hafa í huga að þrátt fyrir að gosið við Grindavík virðist vera að lognast út af, sé eldsumbrotunum á Reykjanesskaga langt frá því að vera lokið. Varnargarðarnir hafi sannarlega sannað gildi sitt í gær og hafi „svínvirkað“. Innlent 15. janúar 2024 14:28
Til skoðunar að hækka varnargarðana um nokkra metra Enn er unnið við gerð varnargarða við Grindavík. Framkvæmdastjóri mannvirkja hjá Ístaki segir vel hafa tekist til við hönnun og val á staðsetningu. Í dag sé verið að skoða hvort þörf sé á að hækka þá enn frekar. Innlent 15. janúar 2024 14:07
Til Grindvíkinga Þegar fólk verður fyrir alvarlegu ytra áfalli er skynsamlegt að átta sig á nokkrum atriðum. Varnarviðbrögð manna við ógn hafa verið kortlögð en athugið, að við bregðumst mismunandi við eftir því hvernig persónuleiki okkar er og fyrri reynsla. Skoðun 15. janúar 2024 14:00
Áhyggjur af fjárhag geti sundrað grindvískum fjölskyldum Gunnar Ólafur Ragnarsson, fjölskyldufaðir í Grindavík, sér ekki fyrir sér að búa aftur í bænum. Þó sé vandfundinn harðari Grindvíkingur en hann sjálfur. Hann kallar eftir aðgerðum ríkisstjórnarinnar enda geti fjárhagsáhyggjur ofan í aðrar áhyggjur sundrað fjölskyldum í Grindavík. Innlent 15. janúar 2024 12:08
Sprungur að stækka og líkur á nýjum gosopum Þrátt fyrir að dregið hafi úr gosvirkni eru líkur á að ný gosop opnist innan Grindavíkur og sprungur eru að myndast í bænum. Deildarstjóri eldvirkni og jarðskjálfta segir mikla hættu til staðar á svæðinu þar í kring og óvissu um framhaldið. Innlent 15. janúar 2024 12:00
Framlengja stuðning við íbúa Grindavíkur og kaupa fleiri íbúðir Ríkisstjórn hefur ákveðið að framlengja hússnæðisstuðning við íbúa Grindavíkur. Aukinn kraftur verður settur í að kaupa íbúðir fyrir Grindvíkinga. Þá er aukinn stuðningur við fyrirtæki ti lskoðunar. Forsætisráðherra segir tjónamat í bænum hafa verið mjög langt komið en atburðir helgarinnar hafi sett strik í reikninginn. Hún geri sér grein fyrir að tilfinningar Grindvíkingar séu blendnar, sumir vilji snúa til baka en aðrir alls ekki. Innlent 15. janúar 2024 11:58
Vill að ríkið kaupi íbúa Grindavíkur út Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og íbúi í Grindavík, segir það allt of mikla svartsýnisspá að ekki verði búið aftur í Grindavík næstu árin eða áratugi. Það sé fullur hugur í eigendum fyrirtækja að halda starfsemi áfram, sem sé forsenda þess að hægt sé að byggja bæinn upp á nú. Hins vegar sé nauðsynlegt að grípa þá íbúa sem ekki geti hugsað sér að snúa til baka. Innlent 15. janúar 2024 11:07
Þyrlan flaug yfir Grindavík Vísir var í beinni útsendingu frá þyrlu Landhelgisgæslunnar sem flaug yfir gosstöðvarnar norðan við Grindavík í morgun. Innlent 15. janúar 2024 11:04
660 skjálftar frá miðnætti Um 660 jarðskjálftar hafa mælst á Reykjanesskaga frá miðnætti. Sá stærsti var 1,8 að stærð. Flestir skjálftarnir hafa verið í kringum Hagafell en þónokkrir hafa mælst við kvikuganginn undir Grindavík. Innlent 15. janúar 2024 10:09
Raunsæi í stað bjartsýni: „Ég býst ekki við því að flytja heim aftur“ Sunna Jónína Sigurðardóttir, íbúi við Efrahóp í Grindavík - götuna þar sem hús hafa orðið hrauninu að bráð, segir kominn tíma til að horfa raunsætt á hlutina og hætta að vera bjartsýn. Hún sér ekki fyrir sér endurkomu til Grindavíkur. Innlent 15. janúar 2024 09:56
Jákvætt að sjá að varnargarðarnir virki Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir jákvætt að sjá að varnargarðarnir, sem byrjað var að reisa fyrir norðan Grindavík í byrjun mánaðar, hafi virkað og haldið mestöllu hrauninu frá bænum. Innlent 15. janúar 2024 08:24
Ekki öruggt að senda fólk inn í bæinn Samskiptastjóri almannavarna segir ekki öruggt að senda fólk inn í Grindavík til að reyna að kæla hraunið sem þangað rennur. Hraunflæði úr syðri sprungunni, sem er nær bænum, virðist hafa minnkað talsvert í nótt. Innlent 15. janúar 2024 06:37
Vaktin: Lítil virkni í einu gosopi Eldgos hófst norðan Grindavíkur, suðsuðaustan Hagafells, rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun, sunnudag. Fyrst opnaðist sprunga sem lá að stærstum hluta norðan varnargarða, en síðar opnaðist önnur rétt norðan byggðarinnar. Innlent 15. janúar 2024 04:17