Trump dregur úr völdum Musk eftir hitafund Donald Trump kallaði saman ráðherra sína á fund á fimmtudag til að ræða DOGE, sparnaðarstofnun Elons Musk. Upp úr sauð á fundinum milli Musk og ráðherranna Marco Rubio og Sean Duffy. Forsetinn sagði að teymi Musk myndi framvegis aðeins hafa ráðgefandi hlutverk. Erlent 8. mars 2025 15:48
Hin nýja heimsmynd Trumps, Putins og Jinpings Hvað eiga Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, Vladimir Putin, forseti Rússlands og Xi Jinping, forseti Kína sameiginlegt? Skoðun 8. mars 2025 14:30
Ellefu drepnir í loftárásum Rússa í Austur-Úkraínu Ellefu eru látnir og minnst þrjátíu særðir eftir loftárásir Rússa í þorpinu Dobropillia, í austurhluta Úkraínu. Erlent 8. mars 2025 08:13
Ætla að senda alla pólska menn í herþjálfun Donald Tusk, forsætisráðherra Póllands, segir að allir pólskir menn muni fá umfangsmikla herþjálfun og að Pólland þurfi að hafa aðgang að háþróuðum vopnum. Þar á meðal kjarnorkuvopnum. Erlent 7. mars 2025 15:29
Hæðst að þrútnum og afskræmdum varaforsetanum Eftir afdrifaríkan fund Úkraínuforseta með ráðamönnum Bandaríkjanna í Hvíta húsinu á föstudag hafa myndir af skrumskældum og afar þrútnum JD Vance farið eins og eldur í sinu samfélagsmiðla. Lífið 7. mars 2025 11:17
Selenskí á fund Bandaríkjamanna í Sádi-Arabíu Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir að hann muni funda á ný með Bandaríkjamönnum í Sádi-Arabíu í næstu viku. Erlent 6. mars 2025 23:46
Trump frestar tollgjöldum nágrannanna Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur frestað tollum á vörur frá Kanada og Mexíkó en einungis tveir dagar eru síðan þeir tóku gildi. Nágrannaríkin svöruðu fyrir sig með sínum eigin tollgjöldum. Erlent 6. mars 2025 20:50
Óttast að Íslendingar þurfi að halla sér að Evrópusambandinu Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis segist ekki endilega telja þörf á að flýta umræðu um umsókn Íslendinga að Evrópusambandinu. Ríkisstjórnin sé með plan og þau fylgi því. Hann segir þó ljóst að betra sé fyrir Íslendinga að eiga í góðum samskiptum við Evrópu. Innlent 6. mars 2025 15:33
Ætla að sigra í vopnakapphlaupi við Rússa Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins ætla í umfangsmikla hernaðaruppbyggingu á næstu árum. Stíft er fundað um varnarmál í Brussel þessa dagana en í dag fer fram leiðtogafundur þar sem þeir ræða auknar fjárveitingar til varnarmála og uppbyggingu hergagnaframleiðslu í Evrópu. Erlent 6. mars 2025 14:44
Talsmaður Pútíns hrósar Rubio fyrir ummæli um leppastríð Dmitrí Peskóv, talsmaður Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, segir ummæli Marcos Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um að innrás Rússa í Úkraínu sé leppastríð milli Bandaríkjanna og Rússlands, vera alfarið í takt við viðhorfa yfirvalda í Kreml og sérstaklega í takt við viðhorf Pútíns. Þessu hefðu Rússar ítrekað haldið fram. Erlent 6. mars 2025 12:37
Pallborðið á Vísi: Hvar stendur Ísland gagnvart Trump, tollastríði og breyttri heimsmynd? Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og vikur í heimsmálunum. Upp úr sauð milli leiðtoga Bandaríkjanna og Úkraínu í Hvíta húsinu og hernaðaraðstoð Bandaríkjanna við Úkraínu verið sett á ís á meðan Evrópuleiðtogar þétta raðirnar og heita auknum útgjöldum til öryggis- og varnarmála. Þá er tollastríð hafið á milli Bandaríkjanna og Kanada auk Kína og Mexíkó og útlit fyrir að Evrópa gæti orðið næst. Innlent 6. mars 2025 11:01
Sendiherra látinn fjúka vegna brandara á kostnað Trump Phil Goff, sendiherra Nýja-Sjálands á Bretlandi, hefur verið látinn taka pokann sinn eftir að hann gerði lítið úr sögukunnáttu Donald Trump Bandaríkjaforseta. Erlent 6. mars 2025 08:18
„Sleppið föngunum núna eða ykkar mun bíða helvíti“ Donald Trump Bandaríkjaforseti setur íbúum Gaza-svæðisins og Hamas-liðum afarkosti í nýrri færslu á hans eigin samfélagsmiðli Truth Social. Hann vill að ísraelskum gíslum, sem eru í haldi Hamas, verði sleppt og það strax, annars bíði þeirra dauðinn. Erlent 5. mars 2025 23:46
Íslendingar eigi eitt tromp gegn Trump Aðalhagfræðingur Íslandsbanka segir tollastríð hafið og horfur á að verðbólga geti orðið nokkru meiri fyrir vikið. Óvíst sé hvort tollahækkunum verði beitt gegn Íslandi en í öllu falli gæti tollastríðið leitt til óbeins verðþrýstings hér á landi. Innlent 5. mars 2025 21:41
Hvar eru verndarar tjáningarfrelsisins nú? Eins og mörgum er kunnugt þá hefur nýkjörinn Bandaríkjaforseti ekki setið auðum höndum síðan hann tók við. Skoðun 5. mars 2025 15:03
Skuggavaldið: Popúlískir samsærisórar nú stjórnarhættir stórveldis Eftir að Donald Trump sneri aftur á forsetastól hefur hann þrætt samsæriskenningar eins og perlur á bandi í orðræðu sinni. Í nýjasta þætti hlaðvarpsins Skuggavaldið, rýna prófessorarnir Hulda Þórisdóttir og Eiríkur Bergmann í hvernig samsæriskenningar hafa ekki aðeins mótað orðræðu Trumps heldur einnig ríkisstjórn hans og valdbeitingu. Lífið 5. mars 2025 14:32
Bandaríkin muni eignast Grænland með einum eða öðrum hætti Ummæli Donald Trump um Grænland í ræðu forsetans á bandaríska þinginu í nótt hafa vakið hörð viðbrögð í Danmörku. Erlent 5. mars 2025 10:35
Hótanir í tollamálum en sáttartónn í garð Úkraínu Það bar fátt til tíðinda í ræðu Donald Trump Bandaríkjaforseta á þinginu í gærkvöldi, þar sem hann varði meirihluta ræðutímans í að gera lítið úr andstæðingum sínum og hæla sjálfum sér. Erlent 5. mars 2025 06:40
Trump ekki boðað friðaráætlun fyrir Úkraínu heldur undanhald og flótta frá prinsippum Það sem komið hefur frá Trump og hans mönnum er auðvitað ekki friðaráætlun fyrir Úkraínu, heldur undanhald og flótti frá prinsippum. Þá hefur Trump stjórnin ofan í kaupið hallað Bandaríkjunum að Rússum og sjónarmiði þeirra um að Úkraína beri í reynd ábyrgð á stríðinu, gagnrýnt Zelensky Úkraínuforseta og niðurlægt – og tekið ennfremur undir lýsingar Rússa á honum sem einræðisherra. Umræðan 4. mars 2025 18:05
Þykir leiðinlegt hvernig fundurinn fór Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir Úkraínumenn tilbúna að koma að samningaborðinu með Rússum og Bandaríkjamönnum og það í hvelli. Hann segist jafnframt tilbúinn að skrifa undir samning sem myndi veita Bandaríkjunum aðgang að jarðefnum í Úkraínu. Erlent 4. mars 2025 17:17
Samningamaðurinn Trump & narssisisminn Rannsóknir hafa sýnt að fólk sem þjáist af narsissisma; „Narcissistic personality disorder“ (NPD) er haldið blindu um eigið ágæti og mikilvægi og hefur að sama skapi hvorki skilning eða áhuga á þörfum annarra. Undirliggjandi orsakir þessarar röskunar hafa verið tengdar við; áföll í æsku, sögu um erfið samskipti, erfðir, fjölskyldusögu, riðlun á taugaboðum í heila og fleiri þáttum. Skoðun 4. mars 2025 15:32
Markaðir bregðast illa við tollahækkunum Trump Viðbúið er að ákvörðun Donald Trump, Bandaríkjaforseta um hækkaða tolla gagnvart Kína, Mexíkó og Kanada muni skekja markaði um allan heim. Hlutabréfavísitölur í Asíu lækkuðu í dag eftir lækkanir vestanhafs í gær. Viðskipti erlent 4. mars 2025 12:38
Bandaríkjamenn setja vopnasendingar á bið Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað að öll hernaðaraðstoð við Úkraínu verði sett á bið. Tilskipunin nær meðal annars til vopnasendinga sem samþykktar voru í forsetatíð Joe Biden og eru einhvers staðar á leið til Úkraínu. Erlent 4. mars 2025 06:36
Staðan sé betri í dag en í fyrradag Þingmaður Samfylkingarinnar telur að flýta þurfi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Utanríkisráðherra segir ekkert óeðlilegt við að fólk vilji sæti við borðið. Að hennar mati þurfi að efla varnir Íslands. Innlent 3. mars 2025 19:07
Vill flýta þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild að ESB Þingmaður Samfylkingarinnar og formaður Íslandsdeildar NATO-þingsins telur að flýta þurfi þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður að Evrópusambandinu. Bregðast þurfi við breyttri heimsmynd og tryggja þjóðaröryggi landsins. Innlent 3. mars 2025 13:23
Trump kemur ekki á óvart, en Evrópa getur það Þegar Donald Trump var kosinn forseti í annað skiptið í nóvember síðastliðnum, fór hann mikinn með yfirlýsingagleði eins og oft áður. Þá var gjarnan sagt í fréttum að Trump kæmi á óvart með nýjustu yfirlýsingu sinni. Þær komu líka í löngum röðum. Skoðun 3. mars 2025 11:02
Er varnarsamningurinn við Bandaríkin í hættu? Á undanförnum misserum hefur staða NATO orðið sífellt óvissari í ljósi yfirlýsinga núverandi Bandaríkjaforseta um stefnu ríkisins gagnvart bandalaginu. Skoðun 3. mars 2025 09:30
Ísland, Trump og Evrópa – hvað næst? Allir sem urðu vitni að hinum illvígu samskiptum forseta og varaforseta Bandaríkjanna við forseta Úkraínu á föstudaginn verða að viðurkenna að það er að teiknast upp ný staða í heimsmálunum. Hægt er að setja stórt spurningamerki við stuðning Bandaríkjanna við Úkraínu, svo ekki sé kveðið fastar að orði. Skoðun 3. mars 2025 08:16
„Algjör gjörbreyting á alþjóðakerfinu“ Prófessor í stjórnmálafræði segir gjörbreytt alþjóðakerfi blasa við. Evrópa sé að taka varnarmálin álfunnar í eigin hendur og stíga inn í tómarúmið sem Bandaríki Trumps hafa skilið eftir sig. Innlent 2. mars 2025 20:07
Staðan snúnari eftir „fyrirsátur“ í Hvíta húsinu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi við utanríkisráðherra Úkraínu í gærkvöld eftir það sem hún kallar fyrirsátur í Washington. Stuðningurinn sé Úkraínumönnum ómetanlegur. Innlent 1. mars 2025 19:36