Erlent

Segist bera fulla á­byrgð... en samt ekki

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Waltz og Hegseth hafa brugðist við klúðrinu með því að gera lítið úr því og tala niður til Goldberg og jafnvel kenna honum um.
Waltz og Hegseth hafa brugðist við klúðrinu með því að gera lítið úr því og tala niður til Goldberg og jafnvel kenna honum um. AP/Alex Brandon

Mike Waltz, þjóðaröryggisráðgjafi Donald Trump Bandaríkjaforseta, segist bera fulla ábyrgð á spjalli hæst settu embættismanna landsins á sviði öryggismála á samskiptaforritinu Signal.

Eins og kunnugt er ræddu embættismennirnir yfirvofandi árásir á Húta í Jemen í spjallinu, á meðan Jeffrey Goldberg, ritstjóri Atlantic fylgdist með. Waltz, sem bauð Goldberg í spjallið, sagðist hins vegar í samtali við Fox News í gær ekki getað útskýrt hvernig það gerðist.

Kallað hefur verið eftir því að Waltz og varnarmálaráðherrann Pete Hegseth segi af sér í kjölfar hneykslisins en þrátt fyrir að Waltz sagðist í gær bera ábyrgð á klúðrinu gaf hann ekki til kynna að hann ætlaði að axla hana, ef svo má að orði komast.

„Þetta er vandræðalegt, já. Við ætlum að komast til botns í þessu,“ sagði þjóðaröryggisráðgjafinn í samtali við sjónvarpskonuna Lauru Ingraham. Hann hefði meðal annars rætt við Elon Musk um aðstoð.

Þess ber að geta að Waltz stofnaði spjallið og bauð Goldberg þátttöku og því óljóst hvað er óljóst; hvað það er sem þarf að komast til botns í.

Þegar Ingraham gekk á hann um það hvernig Goldberg hefði komist inn í hópinn svaraði Waltz:

„Að sjálfsögðu sá ég ekki þennan lúser í hópnum. Hann leit út fyrir að vera einhver annar. Hvort hann gerði það viljandi eða hvort það gerðist af tæknilegum orsökum er eitthvað sem við erum að reyna að finna út úr.“

Waltz kallaði Goldberg einnig „blaðamannaúrhrak“ í viðtalinu.

Spjallið er talið hafa brotið gegn ýmsum lögum og reglum sem gilda um trúnaðarsamskipti en bæði Trump og Repúblikanar hafa gert lítið úr málinu, sagt um mistök að ræða og að menn hafi lært sína lexíu.

Sömu mildi hefur hins vegar ekki verið fyrir að fara gagnvart öðrum en eins og kunnugt er réðust Repúblikanar harðlega gegn Hillary Clinton þegar í ljós kom að hún hafði farið óvarlega í tölvupóstsamskiptum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×