Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Eignarhald og yfirráð yfir Grænlandi eru algerlega nauðsynleg, að mati Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna. Hann setti málið aftur á dagskrá þegar hann tilnefndi vin Elons Musk sem næsta sendiherra Danmerkur. Fyrri hugmyndir Trump um kaup á Grænlandi voru hlegnar út af borðinu. Erlent 23.12.2024 09:22
Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Bandarískir þingmenn á báðum deildum þingsins samþykktu í gærkvöldi bráðabirgðafjárlög eftir miklar deilur. Frumvarpið hefur verið sent til Hvíta hússins til undirritunar og er fastlega búist við því að Joe Biden, forseti, muni skrifa undir það. Erlent 21.12.2024 08:13
Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings höfnuðu í gær nýju bráðabirgða fjárlagafrumvarpi sem Donald Trump, verðandi forseti, hafði lýst yfir stuðningi við. Takist ekki að semja nýtt frumvarp í dag og fá það samþykkt í bæði fulltrúadeildinni og öldungadeildinni verður rekstur alríkisins í Bandaríkjunum stöðvaður á laugardagsmorgun. Erlent 20.12.2024 09:51
Þurfa að greiða Trump 15 milljónir dala í bætur Fréttaveita ABC hefur samþykkt að greiða Donald Trump bætur upp á 15 milljón Bandaríkjadali, sem nemur rúmlega tveimur milljörðum íslenskra króna, vegna rangra yfirlýsinga fréttaþularins George Stephanopoulos um að Trump hefði gerst sekur um nauðgun. Erlent 14. desember 2024 23:10
Hvað er eiginlega í gangi í New Jersey? Íbúar í New Jersey furða sig á dularfullum flygildum sem lýst hafa upp næturhimininn yfir ríkinu undanfarnar vikur. Stjórnvöld segja ekkert benda til þess að hætta sé á ferðum - en hafa ekki náð að stöðva samsæriskenningar, sem náð hafa miklu flugi. Erlent 14. desember 2024 21:00
Viðurkennir tveimur áratugum síðar að hafa logið um nauðgun Crystal Mangum, dansarinn fyrrverandi sem sakaði þrjá Lacrosse leikmenn um nauðgun árið 2006, hefur nú viðurkennt að hún laug um nauðgunina. Mennirnir sem hún sakaði um nauðgun voru allir á þeim tíma Lacrosse leikmenn í Duke háskóla. Málið vakti mikla athygli í Bandaríkjunum. Erlent 14. desember 2024 08:47
Gefur líka milljón í embættistökusjóð Trumps Amazon, fyrirtæki auðjöfursins Jeff Bezos, mun gefa eina milljón dala (um 139 milljónir króna) í embættistökusjóð Donalds Trump, nýkjörnum forseta Bandaríkjanna. Þá verður einnig sýnt frá athöfninni á Prime, streymisveitu Amazon, þegar hún fer fram þann 20. janúar. Erlent 13. desember 2024 11:23
Segir Rússa undirbúa langvarandi átök við NATO Ríki Atlantshafsbandalagsins eru ekki undirbúin fyrir þá ógn sem stafar af Rússlandi til lengri tíma. Þörf væri á breyttu hugarfari meðal ráðamanna í NATO og auka þurfi fjárútlát til varnarmála. Það væri eina leiðin til að koma í veg fyrir stríð. Erlent 12. desember 2024 16:32
Trump yngri er algjör kvennabósi Hinn átján ára gamli Barron Trump er kvennabósi. Svo segir sagan í erlendum slúðurmiðlum en þar segir að Barron sé afar vinsæll þangað sem hann sækir nám í viðskiptaháskólann Stern School of Business sem staðsettur er í New York. Lífið 12. desember 2024 16:01
„Við erum að erfa útblásið bákn, þjakað af spillingu“ Uppreisnarmenn sem tekið hafa stjórn á Sýrlandi standa frammi fyrir ærnu verkefni þegar kemur að því að mynda nýja ríkisstjórn og halda ríkinu sameinuðu. Sýrlenska ríkið er í mikilli niðurníðslu og sjóðir ríkisins tómir, samkvæmt starfandi forsætisráðherra. Þá þurfa uppreisnarmennirnir að sannfæra þjóðina og heiminn um að þeir ætli sér ekki að skipta út einni alræðisstjórn fyrir aðra. Erlent 12. desember 2024 14:11
Trump valinn manneskja ársins: „Pólitísk endurfæðing“ sem á sér enga hliðstæðu Donald Trump, sem kjörinn var forseti Bandaríkjanna í annað sinn í nóvember, er manneskja ársins að mati bandaríska tímaritsins Time Magazine. Fram kemur í umfjöllun Time að „pólitísk endurfæðing“ Trumps eigi sér enga hliðstæðu í sögu Bandaríkjanna. Erlent 12. desember 2024 13:24
Zuckerberg gefur milljón dala í embættistökusjóð Trumps Meta, móðurfélag Facebook sem er í eigu Mark Zuckerberg, hefur gefið milljón dala (um 139 milljónir króna) í embættistökusjóð Donalds Trump. Forsetinn verðandi hefur ítrekað gagnrýnt auðjöfurinn á undanförnum mánuðum og einnig hótað aðgerðum gegn Facebook og öðrum fyrirtækjum sem hann sakar um að hafa farið gegn sér. Erlent 12. desember 2024 10:05
Forstjóri FBI hyggst stíga til hliðar Christopher Wray forstjóri bandarísku alríkislögreglunnar (FBI) hyggst láta af störfum sem forstjóri embættisins áður en Donald Trump verður formlega settur inn í forsetaembættið í janúar. Erlent 11. desember 2024 20:07
Varar Repúblikana við að standa í vegi hans og Trumps Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur varað þingmenn Repúblikanaflokksins við því að reyna að standa í vegi þeirra sem Donald Trump, verðandi forseti, tilnefnir í embætti. Annars muni hann beita auðæfum sínum og áhrifum gegn þeim. Erlent 10. desember 2024 15:01
Nóbelsverðlaunahafar mótmæla útnefningu Kennedy Fleiri en 75 Nóbelsverðlaunahafar á sviði heilbrigðisvísinda, efnafræði, eðlisfræði og hagfræði hafa undirritað bréf þar sem skorað er á öldungadeildarþingmenn í Bandaríkjunum að staðfesta ekki Robert F. Kennedy Jr. í embætti heilbrigðisráðherra. Erlent 10. desember 2024 08:35
Hyggur á náðun uppreisnarseggja og afnám sjálfvirks ríkisborgararéttar Donald Trump, fyrrverandi og verðandi Bandaríkjaforseti, segist ætla að skoða það alvarlega að náða þá sem voru sakfelldir fyrir árásina á þinghús Bandaríkjanna 6. janúar 2021, eftir að honum mistókst að ná endurkjöri. Erlent 9. desember 2024 06:58
Hægri hönd Selenskís kynnist Trump-liðum Helsti ráðgjafi Vólódímírs Selenksí, forseta Úkraínu, er sagður í Bandaríkjunum þar sem hann ætlar að funda með ráðgjöfum og verðandi embættismönnum Donalds Trump, verðandi forseta. Andríj Jermak er sagður hafa hitt Susie Wiles, verðandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, sem hefur lengi unnið með Trump. Erlent 4. desember 2024 23:30
Auðjöfur og einkageimfari mun stýra NASA Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í kvöld að hann ætlaði að tilnefna auðjöfurinn Jared Isaacman sem yfirmann Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA). Auðjöfurinn hefur verið viðloðinn geimiðnað Bandaríkjanna og fór meðal annars í fyrstu borgaralegu geimgönguna, fyrr á þessu ári. Erlent 4. desember 2024 21:15
Loka á aðgengi Bandaríkjamanna að mikilvægum málmum Yfirvöld í Kína tilkynntu í dag bann við útflutningi nokkurra tegunda svokallaðra „sjaldgæfra málma“ til Bandaríkjanna. Það er í kjölfar þess að ríkisstjórn Joes Biden tilkynnti aðgerðir til að sporna gegn aðgengi Kínverja af mikilvægri tækni frá Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 3. desember 2024 23:02
Krefjast niðurfellingar í þöggunarmálinu Lögmenn Donalds Trump, verðandi forseta Bandaríkjanna, hafa farið fram á það við dómara í New York að sakfelling Trumps í þöggunarmálinu svokallaða verði felld niður. Vísa þeir til þess að það að halda málinu áfram myndi fela í sér truflanir á forsetaembættinu sem færi gegn stjórnarskrá Bandaríkjanna. Erlent 3. desember 2024 21:54
Hafnar því að þurfa að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópu Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, segist hafna algjörlega hugmyndum um að Bretland þurfi að velja á milli Bandaríkjanna og Evrópusambandsins. Erlent 3. desember 2024 07:41
Fordæmalaus náðun Bidens Náðun Joes Biden, fráfarandi forseta Bandaríkjanna, á syni hans Hunter Biden, þykir einstaklega umfangsmikil og virðist hafa fallið í grýttan jarðveg víðast hvar. Náðunin þykir fordæmalaus, bæði sökum tengsla feðganna og vegna umfangs hennar, og þar að auki eru Demókratar ósáttir við fordæmið sem Biden hefur sett. Erlent 2. desember 2024 23:00
Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Vladimir Pútín Rússlandsforseti hefur hótað því að nota Oreshnik-eldflaugar til að gera árásir á Kænugarð og segir afl vopnsins sambærilegt við kjarnorkuvopn ef ítrekaðar árásir eru gerðar á sama skotmark. Erlent 29. nóvember 2024 06:40
Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Fjörugar kappræður fóru fram á Stöð 2 í Kappleikum þar sem málefni ungs fólks voru til umræðu. Í einum lið voru frambjóðendur spurðir einfaldra já eða nei spurninga og þar kennir ýmissa grasa. Lífið 28. nóvember 2024 16:02