Sara ein á toppnum eftir þriðju grein Sara Sigmundsdóttir hefur tekið forystuna á Wodapalooza Crossfit-mótinu í Miami eftir þrjár greinar af sjö en hún fær áfram harða keppni frá Tia-Clair Toomey sem þótti sigurstrangleg fyrir mótið. Sport 21. febrúar 2020 22:30
Fengu að fylgjast með Söru æfa fyrir Wodapalooza: Skipti á stormi og sól Sara Sigmundsdóttir hefur undirbúið sig vel fyrir Wodapalooza og hún mætti líka tilbúin til leiks í Miami. Keppni heldur áfram í dag en það er hægt að sjá myndband með lokaundirbúningi Söru fyrir mótið. Sport 21. febrúar 2020 09:00
Sara og Tia efstar og jafnar eftir fyrsta daginn á Wodapalooza Einvígi Söru Sigmundsdóttur og Tiu-Clair Toomey byrjar frábærlega því þær eru efstar og jafnar að stigum eftir fyrsta daginn. Sara var fljót að svara frábærri fyrstu æfingu Ástralans. Sport 21. febrúar 2020 08:00
Toomey tók strax forystuna í baráttunni við Söru Sara Sigmundsdóttir er í þriðja sæti eftir fyrstu grein á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hófst í Miami í dag. Sport 20. febrúar 2020 21:47
Wodapalooza hefst í kvöld og önnur af greinum dagsins heitir Miami Heat Wodapalooza CrossFit mótið hefst í kvöld í Miami í kvöld en Ísland á nokkra fulltrúa á þessu móti þar á meðal hina öflugu Söru Sigmundsdóttir. Sport 20. febrúar 2020 15:45
Sara hefur aldrei unnið Toomey en tekst það hjá henni núna? Sara Sigmundsdóttir og Tia-Clair Toomey mætast á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í dag en báðar hafa þær unnið þrjú Sanctional mót á ferlinum. Engin kona hefur náð að vinna fjögur slík mót. Sport 20. febrúar 2020 13:15
Reykjavík CrossFit Championship í úrvalshóp Reykjavík CrossFit Championship mótið í apríl næstkomandi komst inn í úrvalshóp þeirra móta sem bjóða upp á sæti á heimsleikunum næsta haust. Sport 20. febrúar 2020 08:30
Meira en sex milljónir í boði fyrir Söru og hinar stelpurnar á Wodapalooza Það verður glæsilegt verðlaunafé á Wodapalooza CrossFit mótinu sem hefst í Miami á morgun. Sport 19. febrúar 2020 11:00
Wodapalooza CrossFit mótinu stillt upp sem einvígi á milli Söru og Tiu-Clair Toomey Sara Sigmundsdóttir var á mikilli sigurgöngu síðustu mánuði ársins 2019 en nú er komið að fyrstu CrossFit keppni hennar á árinu 2020. Sport 18. febrúar 2020 09:30
Jóhanna Júlía náði ekki að fylgja eftir frábærri byrjun á Norwegian CrossFit mótinu Þrír Íslendingar tóku þátt í Norwegian CrossFit Championship sem fór fram í Storefjell fallabænum um helgina. Í boði voru sæti á heimsleikunum í haust fyrir sigurvegarana eða þá sem enduðu hæst af þeim voru ekki búin að tryggja sig inn. Sport 17. febrúar 2020 13:30
Sara: Finnst ennþá eins og þetta sé of gott til að vera satt Margir bíða spenntir eftir því hvort Sara Sigmundsdóttir geti haldið sigurgöngu sinni áfram á stórmótunum í CrossFit. Sara er nú komin til Flórída þar sem hún keppir á Wodapalooza CrossFit mótinu í Miami. Sport 14. febrúar 2020 10:00
Anníe Mist ræðir meðgönguna og framhaldið: Missti lystina á morgunmatnum Anníe Mist Þórisdóttur stendur í dag á miklum tímamótum á sínum CrossFit ferli en hún er barnshafandi og þarf að gefa frá sér sætið sitt á heimsleikunum í haust. Anníe ræddi meðgönguna og framhaldið í hlaðvarpsþættinum "Make PODS Great Again“ og gaf þar mikla innsýn í líf sitt sem barnshafandi íþróttakonu. Sport 12. febrúar 2020 09:30
23 ára áströlsk stelpa græðir á barnaláni Anníe Mistar Anníe Mist Þórisdóttir var búin að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana í haust en hún er ófrísk og missir því að leikunum. Sæti hennar fer til Ástralíu en ekki til annarrar íslenskar CrossFit konu. Sport 10. febrúar 2020 10:00
Augnablikið þegar Sara skipti yfir í keppnisgírinn náðist á myndband Sara Sigmundsdóttir er ekki bara ein besta CrossFit kona heims því hún er einnig ein sú allra vinsælasta. Lifandi og glaðleg framkoma hennar heillar flesta upp úr skónum á mótum og annars staðar. Sport 7. febrúar 2020 09:00
Anníe Mist og Frederik eiga von á barni Crossfit-stjarnan Anníe Mist Þórisdóttir á von á barni með unnusta sínum, Frederik Aegidius, einnig crossfit-stjörnu. Lífið 4. febrúar 2020 07:32
Annie vill sameina tvö stærstu CrossFit-mótin og búa til eitt risa mót Annie Mist Þórisdóttir var í eldlínunni í Laugardalshöllinni í dag er keppt var í fyrsta sinn í Crossfit á Reykjavíkurleikunum. Sport 31. janúar 2020 22:15
CrossFit stjarna féll á lyfjaprófi og vitnaði í Tupac og Conor McGregor Einn af efstu mönnunum í "The Open“ hluti heimsleikanna í CrossFit féll á lyfjaprófi á CrossFit mótinu í Dúbaí í desember en hann náði þriðja sætinu á "The Open“ í ár. Sport 31. janúar 2020 08:00
Sara rak þjálfarann sinn og fór að þjálfa sig sjálfa með frábærum árangri Sara Sigmundsdóttir hefur staðið sig frábærlega að undanförnu og er búin að vinna hvert CrossFit mótið á fætur öðru. Hún segir í viðtali í hlaðvarpsþætti Snorra Björnssonar að lykillinn að velgengni sinni að undanförnu var stór ákvörðun sem hún tók síðasta haust. Sport 29. janúar 2020 09:30
Ísland á tvo af átta mentorum í „Freakest Challenge“ Tvær af fremstu CrossFit konum Íslands verða í nýju hlutverki í Sant Jordi Club í Barcelona 1. febrúar næstkomandi þegar þar fer fram CrossFit keppnin Freakest Challenge. Sport 28. janúar 2020 11:00
Hægt að vinna sér inn ferð til Íslands og tækifæri til að æfa með Söru Íslandsferð og æfingar með íslensku CrossFit stjörnunni Söru Sigmundsdóttur eru í verðlaun fyrir þá sem vilja taka þátt í leik á Instagram en Sara auglýsir hann sjálf. Sport 27. janúar 2020 22:45
Anníe Mist: Ég er með stór markmið og stór plön Anníe Mist Þórisdóttir var mætt á blaðamannafund í tengslum við Reykjavíkurleikanna til að kynna Íslandsmótið í CrossFit sem er nú í fyrsta sinn haldið í tengslum við Reykjavíkurleikanna. Sport 24. janúar 2020 11:30
Sara er búin að ákveða það hvar hún keppir næst Íslenska CrossFit stjarnan Sara Sigmundsdóttir hefur verið á mikilli sigurgöngu á síðustu mánuðum og nú hefur hún ákveðið hvar leið hennar liggur næst. Sport 23. janúar 2020 11:00
Anníe Mist og Katrín Tanja að vinna saman að leyniverkefni Íslensku CrossFit drottningarnar Anníe Mist Þórisdóttir og Katrín Tanja Davíðsdóttir gera meira en að æfa saman þessa dagana. Sport 20. janúar 2020 10:30
Sara hefur húmor fyrir sjálfri sér: Hvert hafa lungum mín farið? Það eina sem virðist hafa getað stoppað íslensku CrossFit drottninguna Söru Sigmundsdóttur á síðustu vikum og mánuðum er flensan sem hélt okkar konur rúmliggjandi í byrjun nýs árs. Sport 14. janúar 2020 23:00
Íslandsmótið í CrossFit er hluti af Reykjavíkurleikunum í ár Íslandsmótið í CrossFit tekur sögulegt skref í ár því nú verður mótið í fyrsta sinn hluti af Reykjavíkurleikunum, Reykjavik International Games. Sport 13. janúar 2020 18:00
Sara gat ekki æft í átta daga vegna veikindanna Sara Sigmundsdóttir fær sem betur fer nógan tíma til að koma til baka eftir langvinn veikindi í upphafi nýs árs. Sport 13. janúar 2020 10:00
Sara stolt af árangrinum: Fór að treysta eigin tilfinningu betur og æfa meira með öðrum Íslenska CrossFit drottningin Sara Sigmundsdóttir gerði upp magnaða frammistöðu sína á síðustu mánuðum síðasta árs þar sem hún afrekaði það sem engin CrossFit kona hefur gert áður. Sport 10. janúar 2020 10:30
Anníe Mist fagnar heilum áratug á heimsleikunum í CrossFit með tíu myndum Anníe Mist Þórisdóttir hefur haldið sér í hópi bestu CrossFit kvenna heims í heilan áratug og fagnar því með skemmtilegri færslu á Instagram. Sport 8. janúar 2020 09:00
Sigurvegararnir á Reykjavik CrossFit mótinu í apríl fá eina milljón króna Forráðamenn Reykjavik CrossFit mótsins eru farnir að gefa það út hverjir munu taka þátt á mótinu í ár en eins og í fyrra gefur það farseðil á heimsleikana í Madison í haust. Sport 6. janúar 2020 09:00
Katrín Tanja þurfti að kafa djúpt til að komast í gegnum síðustu mánuði ársins Íslenska CrossFit drottningin Katrín Tanja Davíðsdóttir hafði nóg að gera á árinu 2019 og hún hefur nú gert upp þetta viðburðaríka og krefjandi ár sitt. Sport 2. janúar 2020 10:30