Nemandi borgar fjögur þúsund á dag í bílastæðagjöld Móðir nemanda í Tækniskólanum við Hallgrímskirkju í Reykjavík, furðar sig á því að hann þurfi að greiða um fjögur þúsund krónur á dag í bílastæðagjöld, á bílastæði sem var gjaldfrjálst síðasta vetur. Skólameistari segir að skólinn sé í 101, og þar fækki bílastæðum stöðugt og fleiri og fleiri stæði verði gjaldskyld. Innlent 22. ágúst 2024 12:23
Rafbílaeigendur með sínar leiðir til að svindla Deildarstjóri samgangna hjá Reykjavíkurborg segir að rafmagnsbílaeigendur eigi það til að vera nokkuð lævísir við að leggja í hleðslustæði án þess að greiða bílastæðagjald og án þess að greiða fyrir hleðslu. Framkvæmdastjóri Ísorku segir fyrirtækið verða af tekjum vegna þessa. Innlent 17. ágúst 2024 20:31
Leita ökumanns sem ók á stúlku og stakk af Lögreglan lýsir eftir ökumanni bifreiðar sem ók á unglingsstúlku á Vatnsendavegi í Kópavogi í fyrradag og stakk af. Enginn ökumaður er sagður hafa stoppað til þess að huga að stúlkunni þrátt fyrir að töluverð umferð hafi verið. Innlent 16. ágúst 2024 12:35
Ósammála um hvort árekstur hefði orðið Tíu slösuðust í jafnmörgum umferðarslysum á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Ökumanni og notanda rafhlaupahjóls greinir á um hvort árekstur hafi orðið í Nóatúni. Innlent 14. ágúst 2024 15:42
Heildarakstur í þjóðvegakerfi nærri tvöfaldast á tuttugu árum Heildarakstur í þjóðvegakerfinu á Íslandi nærri tvöfaldaðist á tímabilinu 2002 til 2023. Heildarakstur í þjóðvegakerfinu utan héraðsvega árið 2023 er áætlaður um 3.181 milljón ekinna kílómetra en var árið 2002 áætlaður um 1.781 milljón ekinna kílómetra. Innlent 14. ágúst 2024 08:36
Miklar skemmdir á bíl eftir að þyrla lenti við hliðina Sverrir Tryggvason varð fyrir því óláni í vikunni að flugmaður þyrlu ákvað að lenda á malarplani á Suðurnesjum þar sem bílnum hans var lagt. Hann segir grjótkast undan þyrlunni hafa valdið miklum skemmdum á bílnum, en fyrirtækið á bak við þyrluna neitar að borga tjónið, og segir ekki ljóst hvort skemmdirnar séu vegna þyrlunnar. Innlent 8. ágúst 2024 15:33
Sleppur við sektir eftir auglýsingu um hundrað prósent lán Bílasala Guðfinns og fata- og skartgripaverslunin Brá sleppa við að þurfa að greiða dagsektir vegna villandi og ófullnægjandi upplýsinga á vefsíðum sínum. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu sem hafði áður úrskurðað um að verslunarnar tvær skyldu greiða dagsektir myndu þær ekki gera úrbætur. Neytendur 7. ágúst 2024 22:29
Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Frá hádegi í gær til hádegis í dag hafa sex ökumenn verið stöðvaður fyrir of hraðan akstur og níu fyrir ölvun við akstur á Suðurlandi en mikil umferð er á vegum þar vegna ferðalanga á leið sinni heim í bæinn eftir verslunarmannahelgina. Innlent 5. ágúst 2024 16:18
Bíll alelda á Hellisheiði Bíll er alelda á Suðurlandsvegi við Kambana á Hellisheiði. Þrír voru í bílnum þegar eldurinn kviknaði en þeir komust allir út af sjálfsdáðum. Lögregla er á leið á vettvang. Innlent 3. ágúst 2024 16:26
Hvalfjarðargöngin opnuð á ný Búið er að loka Hvalfjarðargöngunum vegna áreksturs. Sérfræðingur í samskiptum hjá Vegagerðinni segir að útlit sé fyrir að göngin verði lokuð í einhvern tíma og beinir fólki um Hvalfjarðarveginn. Innlent 2. ágúst 2024 14:06
Ný þjónustumiðstöð opnuð við Landeyjahafnarafleggjarann Ný þjónustumiðstöð verður opnuð við Landeyjahafnarafleggjarann nú um helgina. Um er að ræða fyrstu þjónustumiðstöðina sem er opnuð undir nafninu Laufey Welcome Center en stefnt er að neti miðstöðva um allt land. Viðskipti innlent 2. ágúst 2024 10:52
Rafbílar rétta aðeins úr kútnum eftir dýfu Flestir þeirra bíla sem voru nýskráðir í júlí voru rafbílar. Hlutfall þeirra í nýskráningum er sagt taka við sér eftir dýfu fyrr á árinu. Nýskráningum rafbíla fækkaði engu að síður mikið frá sama mánuði í fyrra. Innlent 1. ágúst 2024 11:24
Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni Th. Jóhannesson fráfarandi forseti Íslands viðraði skoðanir sínar á umdeildum bílakaupum verðandi forseta í viðtali hans síðasta dag í embætti. Hann sagði háttsemi Brimborgar óforskammaða og spurði fréttamann hvort hún myndi kaupa bíl af svoleiðis fólki. Innlent 31. júlí 2024 19:30
Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar gerir athugasemdir við frétt Vísir og auglýsingu Ástþórs Magnússonar hjá Islandus Bílum og fyrrverandi forsetaframbjóðanda. Hann telur ýmislegt óljóst og að Ástþór sé ekki að bjóða upp á sambærilegan bíl og þann sem Halla Tómasdóttir fær. Innlent 31. júlí 2024 16:41
Segja Vöku fara offari við að draga burt bíla Svo virðist sem starfsmenn Vöku séu of duglegir í vinnunni og fari fram úr sér. Sú er í það minnsta skoðun Steinars Agnarssonar sem er smiður en hann hefur staðið í stappi við Vöku vegna húsbíls síns og svo annarra bíla sem hann segir hafa verið dregnir í burtu áður en tilskilinn frestur rann út. Reynir Guðmundsson framkvæmdastjóri Vöku vísar þessu á bug. Innlent 30. júlí 2024 15:42
Bíllinn ekki í handbremsu við sundlaug og rann niður kletta Bíll sem var staðsettur á bílastæði við Krossneslaug við Norðurfjörð á Ströndum rann af bílastæðinu og fram af kletti um hádegisleytið síðastliðinn laugardag. Talsvert sér á bílnum en engin slys urðu á fólki. Innlent 30. júlí 2024 14:31
Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Hún vekur mikla athygli gamla uppgerða rútan frá Króki í Ölfusi, Bens 1960 árgerð, sem fer nú um vegina eins og ný, rauð og hvít á litinn með bílnúmerið X – 44. Innlent 29. júlí 2024 20:04
Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Framkvæmdastjóri hjá Brimborg segir gríðarlegan fjölda fyrirspurna hafa borist um bílinn sem forsetahjónin keyptu af umboðinu og afsláttinn sem þau fengu af verði hans. Fólk óski nú eftir forsetaafslætti. Fyrrum forseti nemendafélags hafi fengið slíkan afslátt. Innlent 29. júlí 2024 19:00
„Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi með meiru rekur Islandus Bíla og hann segir mottó sitt og sinna manna vera það að vera ávallt með ódýrustu bílana. Hann býður ódýrari Volvó, ódýrari en sem nemur því sem Halla Tómasdóttir þurfti að borga fyrir sinn, afslátt sem nemur tveimur milljónum. Innlent 29. júlí 2024 16:00
Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Tilvonandi forsetahjón fengu um fimmhundruð og fimmtíu þúsund króna afslátt af bílakaupum hjá Brimborg. Halla Tómasdóttir gaf sér helgina til að gefa upp afsláttinn og birti á samfélagsmiðlum. Forstjóri Brimborgar segir kjörin í samræmi við reglur fyrirtækisins en afsláttarkjörin séu fjórþætt. Innlent 29. júlí 2024 12:17
Biðst velvirðingar á myndbirtingunni Egill Jóhannsson forstjóri Brimborgar, biðst velvirðingar fyrir hönd Brimborgar á myndbirtingu frá afhendingu bílsins, sem verðandi forsetahjónin festu kaup á á dögunum. Hann segir að misskilningur hafi orðið um að heimild til myndatöku gilti sem heimild til birtingar. Það sé ekki óalgengt að myndir frá afhendingu nýrra bíla séu birtar með þessum hætti. Innlent 27. júlí 2024 08:03
Ekki verið ætlun þeirra að gera bílakaupin opinber Halla Tómasdóttir segir að ljósmynd af henni og Birni Skúlasyni, eiginmanni hennar að taka við nýjum Volvo-rafbíl hafi verið birt á Facebook-síðu Brimborgar án þeirra vitundar. Ekki hafi verið ætlunin að gera bílakaupin opinber og þau ekki farið fram á nein sérkjör. Innlent 26. júlí 2024 18:09
Forstjóri Brimborgar á athyglisverðum gestalista Höllu Halla Tómasdóttir tekur við embætti forseta Íslands þann 1. ágúst eða eftir tæpa viku. Þá verður mikið um dýrðir. Sérlegur gestalisti Höllu vekur sérstaka athygli en á hundrað og tíu manna lista eru sjötíu og fimm konur. Á meðal karlmanna á listanum er forstjóri Brimborgar en forsetahjónin verðandi keyptu nýjan bíl hjá fyrirtækinu á dögunum. Innlent 26. júlí 2024 16:26
Siggi Kristins gítarleikari og bílaspekúlant er allur Sigurður Kristinsson, sem var meðal stofnmeðlima hinnar fornfrægu hljómsveitar Sniglabandsins, er allur. Hann átti við vanheilsu að stríða síðustu árin. Innlent 24. júlí 2024 11:02
Röng skilaboð að Yaris borgi það sama og stór jeppi Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, segir að flatt kílómetragjald sem lagt er til á alla bíla undir 3,5 tonnum, sé ósanngjarnt. Það séu röng skilaboð til almennings að minni bílar sem mengi minna og slíti vegum minna, borgi það sama og stærri jeppar og pallbílar. Einnig þurfi að ræða gjaldtöku á þungu atvinnubílunum, en ef fram fer sem horfir mun gífurlegur kostnaður leggjast á landsbyggðina. Innlent 23. júlí 2024 20:35
Slapp með skrámur eftir veltu á Reykjanesbraut Maður slapp með minniháttar áverka eftir að bíll hans fór í veltu og hafnaði á staur á Reykjanesbrautinni í morgun. Hann hafði ekið á skilti og misst stjórn á bílnum og komu viðbragðsaðilar að honum uppistandandi. Innlent 23. júlí 2024 16:05
Lenti í ofbeldissambandi með frönskum bíl Dagur Kári Pétursson kvikmyndaleikstjóri er búsettur um þessar mundir í Danmörku. Hann hefur að undanfarin misserin ekið á bílaleigubíl, sem hann kunni vel við framanaf en gamanið fór að kárna þegar bíllinn fór að sýna honum megnasta yfirlæti. Innlent 22. júlí 2024 14:23
Styrkás kaupir Kraft Styrkás hf. og Björn Erlingsson hafa undirritað kaupsamning um kaup Styrkáss á öllu hlutafé í Krafti ehf. sem er söluaðili MAN, Palfinger og Bucher-Municipal á Íslandi. Kraftur rekur jafnframt þjónustuverkstæði fyrir MAN bifreiðar að Vagnhöfða í Reykjavík. Kaupsamningurinn er gerður með fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlits og birgja. Viðskipti innlent 22. júlí 2024 11:45
Rashford missir bílprófið í hálft ár Marcus Rashford, leikmaður Manchester United, hefur misst bílprófið í hálft ár vegna hraðaksturs. Enski boltinn 20. júlí 2024 09:31
Hundur fyrir norðan var hætt kominn eftir fjörutíu mínútur í bíl „Þetta er ekki bara eitthvað útlandavandamál,“ segir Elva Ágústsdóttir, dýralæknir hjá Dýraspítalanum Lögmannshlíð á Akureyri um ofhitnun hunda, en slíkt getur gerst á Íslandi þrátt fyrir að hitinn hér á landi sé talsvert lægri en erlendis. Innlent 19. júlí 2024 16:24