Öryggi og notkun rafbíla Fjölbreyttir fararmátar standa nú fólki til boða. Horft er til vistvænni og hagkvæmari fararmáta og rafbílar hafa rutt sér til rúms hér á landi. Þeir henta íslenskum aðstæðum vel og eru þjóðhagslega hagkvæmir þar sem allt rafmagn á Íslandi er framleitt innanlands. Skoðun 7. júlí 2021 08:01
Bugatti og Rimac þróa næstu kynslóð ofurbíla saman Nýstofnað félag Bugatti Rimac mun vera með höfuðstöðvar í Króatíu en Bugatti mun áfram vera í Molsheim verksmiðjunni sinni. Verkefnið er búið að vera í gangi í þónokkurn tíma en fyrst núna gert opinbert. Bílar 7. júlí 2021 07:00
Nýskráningar ökutækja aukast um 69% á milli ára Alls voru nýskráð 2203 ný ökutæki í júní sem er aukning um tæp 260 ökutæki á milli mánaða, í maí voru 1947 ökutæki nýskráð. En á milli ára er aukningin nærri því 900 bílar, eða 69% aukning. Flestar nýskráningar bifreiða voru af Toyota gerð í júní. Bílar 5. júlí 2021 07:01
Uppgjör rafborgarbílanna Undanfarið hafa birst hér á Vísi umfjallanir um rafborgarbílana Renault Zoe og Volkswagen e-Up!. Þeir verða bornir saman hér með það markmið að gera upp á milli þeirra og ákveða hvor sé betri. Bílar 4. júlí 2021 07:01
Júní stærsti mánuður Peugeot á Íslandi Júní mánuður var sá stærsti í sögu Peugeot á Íslandi með 80 selda bíla. Rafmagns- og tengiltvinntækni (PHEV) Peugeot leikur þar einnig lykilhlutverk ásamt nýjum fjórhjóladrifnum PHEV bíl. Bílar 2. júlí 2021 07:01
Tesla opnar tvær nýjar ofurhleðslustöðvar Tesla mun opna tvær nýjar ofurhleðslustöðvar á Íslandi. Báðar stöðvar munu vera búnar V3 ofurhleðslutækninni sem getur náð allt að 250kW. Stöðvarnar eru á Kirkjubæjarklaustri og við sölustað Tesla við Vatnagarða í Reykjavík. Bílar 29. júní 2021 07:01
„Menn eru ekki á eitt sáttir um þessa niðurstöðu“ Straumur var tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík í morgun og býst skrifstofustjóri borgarinnar við því að slökkt verði á stöðvunum út vikuna. Formaður Rafbílasambands Íslands segir þetta hafa töluverð áhrif á rafbílaeigendur og harmar að úrskurðurinn hafi valdið því að slökkva þurfti á stöðvunum. Innlent 28. júní 2021 12:16
Scania með bestu eldsneytisskilvirknina Fjögur ár í röð hefur Scania unnið hin virtu „Green Truck“ verðlaun. Nú staðfesta tölur frá framkvæmdastjórn ESB að Scania stendur sig best meðal stórbílaframleiðenda í að draga úr losun koltvísýrings. Bílar 28. júní 2021 07:01
Borgarstjóri segir bagalegt að slökkva þurfi á hleðslustöðvunum Straumur verður tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík á morgun. Óvissa ríkir um hvenær hægt verður að taka stöðvarnar, sem telja meirihluta stöðva sem borgin rekur, aftur í notkun. Borgarstjóri segir málið bagalegt. Viðskipti innlent 27. júní 2021 20:30
Volkswagen e-Up - Ekki snobbað fyrir einhverjum óþarfa Volkwagen e-Up er fimm dyra fjögurra manna rafborgarbíll sem er alveg eins og hefðbundinn Up, nema rafdrifinn. Það er meira að segja raunverulegur lykill sem þarf að snúa í einhverskonar sviss til að „setja í gang“ eða virkja bílinn. Hann er hressilega einfaldur og aðgengilegur. Bílar 27. júní 2021 07:00
Ísorka minnti kærunefnd á sektarheimildir vegna hleðslustöðva Lögmaður Ísorku sendi kærunefnd útboðsmála bréf með athugasemdum við að rafmagn væri áfram veitt í hleðslustöðvum Orku náttúrunnar í Reykjavík þrátt fyrir að nefndin hefði úrskurðað samning um þær óvirkan. Framkvæmdastjóri Ísorku fullyrti í gær að engin samskipti hefðu átt sér stað við kærunefndina. Viðskipti innlent 26. júní 2021 18:23
Ísorka hafnar ábyrgð á að slökkt verði á hleðlustöðvum Framkvæmdastjóri Ísorku hafnar því að kvörtun fyrirtækisins sé orsök þess að Orka náttúrunnar ætlar að taka straum af á annað hundrað hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík. Hann segir Reykjavíkurborg rót vandans. Viðskipti innlent 25. júní 2021 18:01
Slökkva á 156 götuhleðslum í borginni og kenna Ísorku um Orka náttúrunnar hyggst taka strauminn af þeim 156 götuhleðslum sem fyrirtækið hefur sett upp um víða borg. Félagið sér sig knúið til þess í kjölfar kvörtunar Ísorku yfir að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er og það gjaldfrjálst. Slökkt verður á stöðvunum 28. júní. Neytendur 25. júní 2021 14:32
Nýtt bílasölusvæði rís við Krókháls 7 Framkvæmdir eru hafnar að nýju bílasölusvæði að Krókhálsi 7. Um er að ræða nýtt og fullkomið bílasölusvæði sem mun bjóða upp á úrval af notuðum bílum frá öllum helstu bílamerkjum. Bílar 25. júní 2021 07:01
Hvað með trukkana? Trukkur, samkvæmt orðabók, er stór og kraftmikill vörubíll. Trukkar eru okkur mikilvægir þó flest okkar leiði hugann sjaldnast að þeim. Skoðun 24. júní 2021 15:30
Hleðsla rafbíla í áskrift Orka náttúrunnar hefur kynnt til sögunnar nýja lausn á Íslandi þegar kemur að hleðslu rafbíla við heimahús, hvort sem er einbýli eða fjölbýli. Bílar 23. júní 2021 07:01
McLaren F1 ekinn um 400 km, verð 1,9 milljarðar króna Ofurbíllinn McLaren F1 er táknmynd ofurbíla frá tíunda áratugnum. Það er einn slíkur til sölu á uppboði og áætlað verð er 15 milljónir dollara hjá uppboðshúsinu Gooding & Company. Bílar 21. júní 2021 07:01
Renault Zoe - eins og félagsheimilið í Með allt á hreinu Renault Zoe er fimm manna rafdrifinn borgarbíll. Hann er smekklega hannaður og staða ökumanns er afburðagóð. Drægnin er í ofanálag mjög fín. Zoe er meiri bíll en svo að hægt sé að kalla hann borgarsnattara, eins og flokkunin gefur til kynna. Hann er þéttur og góður og því vel hæfur til langkeyrslu. Bílar 20. júní 2021 07:00
BMW prófar vetnis-hlaðinn X5 BMW hefur hafið prófanir á „næstum staðal útgáfu“ af X5 sem er knúinn áfram með rafmangi, unnu úr vetni. Hann verður prófaður í Evrópu í „raunverulegum aðstæðum“ en BMW ætlar að koma FCEV bíl á markað jafnvel á árinu 2025. Bílar 18. júní 2021 07:00
Myndband: Tesla Model S Plaid á Laguna Seca Tesla Model S Plaid sést á myndbandinu fara fram úr Porsche Cayman GT4. Vissulega er Model S Plaid eintakið sem er notað strípað og sérstaklega lagaða að brautarakstri. Bílar 16. júní 2021 07:01
Vitorðsmenn í flótta Ghosn játa sig seka Tveir Bandaríkjamenn játuðu sig seka um að hafa hjálpað Carlos Ghosn, fyrrverandi forstjóra bílaframleiðandans Nissan, að flýja Japan árið 2019. Mennirnir, sem eru feðgar, voru framseldir frá Bandaríkjunum í vor og gætu átt yfir höfði sér allt að þriggja ára fangelsi. Erlent 14. júní 2021 10:00
Bylting í bæjarsnattið. Citroën AMI rafsnatti Brimborg kynnti á föstudag rafsnattann Citroën AMI sem er hugsaður til snatts innan borga og bæja og smellpassar við aðra ferðakosti. Citroën AMI er tveggja manna, fjórhjóla, rafdrifinn, yfirbyggður rafsnatti með 75 km rafmagnsdrægni og 45 km hámarkshraða. Viðskipti 14. júní 2021 07:01
Ósátt við viðbrögð borgarinnar eftir ítrekaðar kvartanir og milljónarskemmdarverk Íbúar í miðbæ Reykjavíkur sem hafa ítrekað kvartað undan lélegum aðbúnaði í bílastæðahúsi og kenna aðgerðaleysi borgarinnar um milljónarskemmdarverk sem var unnið á bíl þeirra. Innlent 11. júní 2021 19:35
Innkalla á annað þúsund Mitsubishi-bíla af árgerð 1996 til 2000 Hekla hyggst innkalla 1.394 Mitsubishi-bíla af árgerð 1996 til 2000 vegna möguleika á að loftpúðar virki ekki sem skyldi. Neytendur 11. júní 2021 08:14
Fyrrverandi forstjóri Volkswagen ákærður fyrir að bera ljúgvitni Martin Winterkorn, fyrrverandi forstjóri þýska bílarisans Volkswagen, hefur verið ákærður fyrir að bera ljúgvitni þegar hann mætti fyrir nefnd þýska þingsins í tengslum við útblásturshneyksli fyrirtækisins sem komst í hámæli árið 2015. Viðskipti erlent 9. júní 2021 11:41
Bíll ársins - Volkswagen ID.4 Volkswagen ID.4 varð hlutskarpastur í vali BÍBB (Bandalags íslenskra bílablaðamanna) á Bíl ársins. Verðlaunin voru veitt í höfuðstöðvum Blaðamannafélags Íslands í gærkvöldi. Bílar 8. júní 2021 07:01
Fiat ætlar einungis að framleiða rafbíla árið 2030 Ítalski bílaframleiðandinn Fiat ætlar sér að vera einungis rafbílaframleiðandi árið 2030. Til stendur að láta alla sprengihreyfla hverfa frá 2025 og til 2030. Bílar 7. júní 2021 07:00
Volvo XC40 Recharge 100% hreinn rafmagnsjepplingur Brimborg hefur hafið sölu á netinu á Volvo XC40 Recharge, nýjum, sjálfskiptum, fjórhjóladrifnum jeppling sem gengur 100% fyrir hreinu rafmagni. Volvo XC40 Recharge er yfir 400 hestöfl, aðeins 4,9 sekúndur í 100 km hraða og með drægni á hreinu rafmagni allt að 418 km skv. WLTP mælingu. Snögg hraðhleðslan kemur 78 kWh tómri drifrafhlöðu í 80% hleðslu eða 334 km drægni á aðeins 40 mínútum. Bílar 5. júní 2021 07:01
Mazda fagnar afmæli Mazda fagnar 15 árum hjá Brimborg með veglegum afmælistilboðum til 30. júní. Mazda bílar hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi og eru þeir í sérflokki hvað varðar hönnun og framúrskarandi gæði enda hefur Mazda hlotið yfir 350 verðlaun fyrir hönnun og nýsköpun. Bílar 4. júní 2021 07:01
50% aukning á nýskráningum á milli mánaða Alls voru 1898 ökutæki nýskráð í maí, það er aukning um 50% frá síðasta mánuði, þegar 1264 ökutæki voru nýskráð. Flest nýskráð ökutæki í nýliðnum maí mánuði voru af Toyota gerð, eða 263 ökutæki. Kia var í öðru sæti með 237 og Suzuki í þriðja með 163 ökutæki. Bílar 2. júní 2021 07:01