Týnda kynslóðin - Logi og Steindi fíla sig í óeirðalöggunni

Logi Bergmann og Steindi Jr. kalla ekki allt ömmu sína eins og kemur bersýnilega í ljós í næsta þætti af Týndu kynslóðinni. Þar fara þeir félagar í óeirðalögguleik og samkvæmt þessu sýnishorni virðast þeir taka leikinn ansi alvarlega. Nilli greyið lendir auðvitað verst af öllum í ákafa þeirra. Hann setur sig í spor mótmælanda og er fyrir vikið snúinn niður af hörku og buxurnar hans meðal annars dregnar niður á hæla.

Logi og Steindi eru aðalgestir Týndu kynslóðarinnar næsta föstudag. Þátturinn er í opinni dagskrá á Stöð 2 og hér á Vísi klukkan 19.20.

15198
00:21

Vinsælt í flokknum Týnda kynslóðin