Guðbjörg Jóna bætti eigið Íslandsmet eftir löng og erfið meiðsli: „Líður eins og ég eigi meira inni“
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir jafnaði Íslandsmetið á Stórmóti ÍR á dögunum og bætti síðan um betur þegar hún kom í mark á nýju Íslandsmeti, 7,35 sekúndum, í Árósum á miðvikudagskvöld. Guðbjörg Jóna segir erfiðan tíma að baki en hún var frá vegna meiðsla í 10 mánuði.