Innlent

Hefur á­hyggjur af rekstri skólans

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa
Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands.
Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands. Vísir/Ívar Fannar

Stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands hefur áhyggjur af rekstri skólans í höndum Rafmenntar. Hann segist ekki hafa fengið skýr svör hvers vegna skólinn fékk ekki að verða að háskóla eða hvers vegna hann fékk ekki fjármnuni frá ríkinu eins og lofað var.

Eftir að rekstrarfélag Kvikmyndaskóla Íslands varð gjaldþrota í lok mars keypti Rafmennt, fræðslusetur rafiðnaðarins, eignir þrotabúsins og klára nemendur önnina þar. Rekstur skólans hafði verið erfiður um langt skeið en stofnandi skólans sá ekki fram á að geta klárað önnina með þá fjármuni sem skólinn átti. 

„Það eru fjárhæðir inni á fjárlögum merktir skólanum sem við fáum ekki útgreidda. Við erum ekki með hreinar og skýrar skýringar á því af hverju við fáum það ekki. Þannig að vendipunkturinn er hreinlega að við erum ekki afgreidd fyrir fjármuni sem að skólinn á,“ segir Böðvar Bjarki Pétursson, stofnandi Kvikmyndaskóla Íslands.

Hann fagnar því að Rafmennt hafi tryggt það að nemendur klári námið.

„Ég hef hins vegar verulegar áhyggjur af því hvað þeir eru að lítillækka námið eða umgjörðina. Það er þannig í skólastarfi að þú verður alltaf að bjóða upp á full gæði á hverjum degi og það er ekki hægt að segja upp rektor, segja upp fagstjórum, segja upp öllum og halda því svo fram að þú sért að bjóða upp á sömu kennslu.“

Kvikmyndaskóli Íslands hafi virtar alþjóðaviðurkenningar sem gætu glatast ef fram heldur sem horfir.

„Þannig að ég hef áhyggjur af því að þeir hreinlega viti ekki hvað þeir eru að gera,“ segir Böðvar.

Skólinn reyndi lengi vel að koma í gegn námið yrði viðurkennt sem háskólanám, en það gekk ekki eftir.

„Málið er að ég veit ekki alveg hvers vegna. Við höfum verið að reyna þrýsta á ráðuneyti háskólamála að fá hrein og skýr svör hvaða skilyrði háskólalaga það eru sem að við uppfyllum ekki og við höfum ekki fengið þau svör.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×