Innlent

Ein­hleypir karl­menn standa verst

Eiður Þór Árnason skrifar
Sólin brýst fram úr skýjunum á Reykjanesinu. Flestir landsmenn segjast vera ánægðir með líf sitt.
Sólin brýst fram úr skýjunum á Reykjanesinu. Flestir landsmenn segjast vera ánægðir með líf sitt. vísir/vilhelm

Nær 85 prósent landsmanna segjast ánægðir með líf sitt sem er nokkuð hærra hlutfall en fyrir áratug. Tæplega 7 prósent mælast óánægðir og nær 9 prósent hvorki ánægðir né óánægðir.

Þetta er niðurstaða Þjóðarpúls Gallups en fyrir tíu árum sögðust 74 prósent landsmanna vera ánægðir með líf sitt og aðeins færri árin á undan.

Eldra fólk er að jafnaði ánægðara með líf sitt en það yngra og fólk með meiri menntun er almennt ánægðara með líf sitt en fólk með minni menntun.

Mikill meirihluti sagðist vera ánægður með líf sitt. Gallup

Jafnframt kemur fram í samantekt Gallup að ánægja með lífið mælist minnst hjá einhleypum körlum. Aðeins 64 prósent þeirra segjast ánægðir með líf sitt á móti níu af hverjum tíu körlum sem eru giftir eða í sambúð. Á sama tíma segjast rúmlega 81 prósent einhleypra kvenna ánægðar með líf sitt.

Þegar horft er til aldurs sést að fólk sem er 67 ára og eldra er ánægðast með líf sitt og þar á eftir fólk á aldrinum 46 til 66 ára sem er í hjónabandi eða sambúð en engin börn á heimilinu undir 18 ára.

Fólk á aldrinum 35 til 66 ára sem býr eitt er óánægðast með líf sitt og þar á eftir fólk á aldrinum 18 til 45 ára með börn undir 18 ára á heimilinu.

Framsóknarfólk ánægðast

Fólk sem myndi kjósa Framsóknarflokkinn ef kosið yrði til Alþingis í dag eru ánægðari með líf sitt en þau sem kysu aðra flokka. Þau sem kysu Sósíalistaflokkinn eru hins vegar óánægðari með líf sitt en þau sem kysu aðra flokka.

Hér má sjá niðurstöðurnar brotnar niður eftir samfélagshópum. Einhleypar konur eru almennt ánægðari en einhleypir karlmenn. Gallup

Niðurstöðurnar eru úr netkönnun Gallup sem gerð var dagana 21. mars til 1. apríl 2025. Spurt var: „Ert þú almennt ánægð(ur), óánægð(ur) eða hvorki ánægð(ur) né óánægð(ur) með líf þitt?“

Heildarúrtaksstærð var 1.713 og þátttökuhlutfall var 51,9%. Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×