Innlent

Sól­veig Anna segir sjálftöku Þórarins skefja­lausa

Jakob Bjarnar skrifar
Sólveig Anna segir nýjustu vendingar í kjaramálum verkalýðsleiðtoga með miklum ólíkindum, en þar fari fólk með sjóði félagsfólk eins og þeir séu í einkaeigu. Þórarinn Eyfjörð er sá nýjasti sem ætlar að ríða feitum hesti frá sínum starfslokum.
Sólveig Anna segir nýjustu vendingar í kjaramálum verkalýðsleiðtoga með miklum ólíkindum, en þar fari fólk með sjóði félagsfólk eins og þeir séu í einkaeigu. Þórarinn Eyfjörð er sá nýjasti sem ætlar að ríða feitum hesti frá sínum starfslokum. vísir/vilhelm

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar telur starfslokakjör Þórarins Eyfjörð hjá Sameyki blöskranleg.

„Þetta er enn eitt dæmi um þá sjálftöku sem því miður fær að viðgangast í íslensku samfélagi,“ segir Sólveig Anna í samtali við Vísi.

Í gær greindi Vísir frá því sem hlýtur að mega heita býsna feitur starfslokasamningur við Þórarin Eyfjörð sem snýst í stórum dráttum um að hann verði á launum næstu tvö og hálft ár. Þetta er rúmum sex mánuðum eftir endurkjör Þórarins í embætti formanns. Heildarupphæðin eru tæplega sjötíu milljónir og þær mun Sameyki greiða.

Hvernig gerist svona? Sólveig Anna skilur ekki til að mynda hvernig stjórn Sameykis lætur hvarfla að sér að samþykkja annað eins og og þetta.

„Það er ótrúlegt að sjá fólk sem hefur verið treyst fyrir svo mikilvægu hlutverki eins og því að leiða stéttarfélag fara með sjóði félagsfólk eins og það séu þeirra einkaeign,“ segir Sólveig Anna.

Fram hefur komið að formaður Eflingar á rétt á sex mánaða launagreiðslum við starfslok samkvæmt ráðningasamningi sínum og hefur hún sagt að þá upphæð muni hún ekki þiggja næði hún sæti sem kjörinn fulltrúi.

Úr ársreikningi Sameykis.

„Vinnandi fólk í okkar samfélag hlýtur en vera komið með miklu meira en nóg af því að þurfa aftur og aftur að lesa fréttir af fólki sem virðist telja sig til einhvers konar yfirstéttar, taki til sín laun og fjármuni, þurfi ekki að stíga fram og útskýra og í það minnsta reyna að réttlæta hvers vegna þeir telja sig eiga heimtingu á þessum gríðarlega háu fjármunum,“ segir Sólveig Anna. Hún segir svona fréttir vera að koma upp aftur og aftur, af sjálftöku foringja verkalýðshreyfingarinnar.

Kári Sigurðsson er starfandi formaður Sameykis sem greiðir því laun tveggja formanna í á þriðja ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×