Innlent

Dular­fullu blettirnir eigi sér eðli­legar skýringar

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Þessi blettur við Sæbrautina sást vel í dag.
Þessi blettur við Sæbrautina sást vel í dag.

Undarleg sjón blasti við mörgum í sjónum úti af Sæbraut í dag. Brúnir blettir úti á hafi, nokkuð reglulegir í laginu, hafa eflaust vakið furðu einhverra sem sáu þá. Upplýsingafulltrúi Veitna segir hann þó eiga sér alvanalegar skýringar.

„Það var svo mikil úrkoma í dag, sem kom bara snögglega. Hún var það mikil á stuttum tíma að kerfin þurfa að nýta yfirfall. Það gerist sjálfkrafa þegar álagið er svo mikið að kerfin þurfa að tappa snögglega af,“ segir Silja Ingólfsdóttir, upplýsingafulltrúi Veitna. 

Betra en að fá skólpið upp niðurfallið

Skólp og regnvatn fari þá um yfirfallsrör og út í sjó, sem nýtist aðeins þegar kerfin eru yfirfull.

„Í stað þess að þetta komi upp um niðurföllin hjá fólki. Þetta gerist ekki oft, en jú, einstaka sinnum. Þetta er í raun bara þannig að kerfið virkar eins og það á að virka. Það var bara mikil úrkoma í dag,“ segir Silja.

Allur gangur sé á því hvort fólk taki eftir blettunum úti af ströndum þegar svona gerist. Það fari meðal annars eftir öldugangi í sjó. Einhverjir forvitnir vegfarendur hafi spurst fyrir um blettina hjá Veitum, en þeir voru ekki margir að sögn Silju.

Fylgjast vel með og hreinsa strax

Silja segir Veitur alltaf fylgjast vel með því hvort einhverju skoli upp á strendur í kjölfarið, og ráðist á í hreinsunaraðgerðir. 

„Það er ekkert komið upp á ströndina núna en við byrjum strax að fylgjast með og hreinsa það sem er hægt að hreinsa.“

Silja segir tilvalið að nýta tækifærið og minna fólk á hvað megi fara í klósettið og hvað ekki. Listinn yfir það sem má fara í klósettið, er ívið styttri en bannlistinn: 

„Kúkur, piss og klósettpappír,“ segir Silja. Þar með er það upp talið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×