Innlent

Undir­búa vilja­yfir­lýsingu um jarð­göng í gegnum Reynis­fjall

Kristján Már Unnarsson skrifar
Reynisfjall og Vík í Mýrdal.
Reynisfjall og Vík í Mýrdal. Jóhann K. Jóhannsson

Sveitarfélögin Mýrdalshreppur, Skaftárhreppur og Hornafjörður ásamt Summu rekstrarfélagi undirbúa gerð sameiginlegrar viljayfirlýsingar „vegna fjármögnunar á göngum í gegnum Reynisfjall“. Summa rekstrarfélag yrði samstarfsaðili fyrir hönd innviðasjóða í eigu nítján lífeyrissjóða og tryggingafélags.

„Markmið þessarar viljayfirlýsingar er að stuðla að framkvæmd ganga í gegnum Reynisfjall, sem munu bæta öryggi samgangna, stytta ferðatíma og stuðla að aukinni hagkvæmni í samgöngukerfi landsins,” segir í drögum að yfirlýsingunni sem verið er að kynna í viðkomandi sveitarstjórnum.

Þar segir að Summa lýsi yfir vilja sínum til að vinna með sveitarfélögunum að framgangi verkefnisins, meðal annars með því að koma að fjármögnun þeirra í fyllingu tímans með þeim fyrirvörum sem tilgreindir eru.

„Aðilar eru sammála um að verkefnið muni bæta öryggi vegfarenda með því að útrýma hættulegum köflum á núverandi vegi og stytta ferðatíma milli svæða og bæta aðgengi að þjónustu. Auk þess mun verkefnið styðja við efnahagslega uppbyggingu svæðisins og efla ferðaþjónustu auk þess að draga úr umhverfisáhrifum með bættri vegtengingu og skilvirkari akstri,” segir í drögum að yfirlýsingunni.

Reynisfjallsgöng eru umdeild meðal Mýrdælinga, eins og fram kom í þessari frétt Stöðvar 2 frá árinu 2019:

Í drögum viljayfirlýsingarinnar sem núna er verið að undirbúa segir ennfremur:

„Framkvæmdin hefur jákvæð samfélagsleg áhrif út fyrir Mýrdalshrepp og hún myndi þannig ryðja úr vegi helsta farartálma á Suðurlandsvegi og auðvelda öllum þeim sem þurfa að sækja sér þjónustu um langan veg að gera það með öruggum hætti.”

Fram kemur að Summa rekstrarfélag hafi starfsleyfi frá Fjármálaeftirlitinu sem rekstraraðili sérhæfðra sjóða. Summa hafi einnig viðbótarstarfsleyfi til eignastýringar og fjárfestingarráðgjafar og hafi um tíu ára skeið rekið innviðasjóði sem hafi það að markmiði að fjárfesta í innviðum á Íslandi.

Hluthafar Innviða II séu nítján íslenskir lífeyrissjóðir og eitt tryggingafélag og nemi hlutafé um ellefu milljörðum. Fjárfestingargeta sjóðsins sé þó mun meiri því gert sé ráð fyrir meðfjárfestingum hluthafa í gögnum sjóðsins.

Horft til Reynisfjalls. Jarðgangamuninn Víkurmegin kæmi skammt ofan fjörukambsins.Stöð 2/Einar Árnason

Samkvæmt drögunum eru hefðbundnir fyrirvarar í viljayfirlýsingunni, svo sem um áreiðanleikakannanir, þar með talið mati á kostnaði við framkvæmdina, og frekari útfærslu á samningum við ríkið og stofnanir þess. Viljayfirlýsingin sé því ekki skuldbindandi.

„Horft er til þess íslenska ríkið muni, eftir atvikum, leggja fram fjármagn til undirbúnings og hönnunar verkefnisins, auk hlutfalls af framkvæmdarkostnaði, í samræmi við lög um samgönguverkefni og opinberar framkvæmdir.”

Næstu skref geri ráð fyrir því að Summa og sveitarfélögin útfæri nánara samkomulag um framgang verkefnisins. Fundað verði með innviðaráðherra til að kynna og fara yfir málið.

Markmiðið sé að grunnundirbúningsvinnu og hagkvæmniathugun verði lokið á árinu 2025. Útlínur framkvæmdar og fjármögnunar liggi fyrir á fyrri hluta 2026 og stefnt sé að því að framkvæmdir hefjist á árinu 2027.

Í drögunum kemur fram að gert sé ráð fyrir að eftirtaldir undirriti viljayfirlýsinguna: 

Sigurgeir Tryggvason, framkvæmdastjóri Summu, Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, Sigurjón Andrésson, sveitarstjóri Hornafjarðar, og Einar Kristján Jónsson, sveitarstjóri Skaftárhrepps.

Í þættinum Um land allt árið 2019 um Mýrdalshrepp mátti einnig heyra ólík sjónarmið:

Tengd skjöl


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×