Martin dældi út stoðsendingum í enn einu Evróputapinu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 25. mars 2025 21:49 Martin í leik kvöldsins. Srdjan Stevanovic/Getty Images Martin Hermannsson og liðsfélagar hans í Alba Berlín máttu þola tap gegn Partizan Mozzart í Evrópudeild karla í körfubolta.
Eftir nokkuð varfærnislegan fyrsta leikhluta má segja að allt hafi verið í járnum. Heimaliðið gaf í 2. leikhluta og leiddi með sex stigum í hálfleik. Í síðari hálfleik virtist sem heimamenn væru að stinga af en gestirnir frá Berlín komu til baka og munurinn þrjú stig þegar átta sekúndur voru til loka þriðja leikhluta. Brandon Davies with the steal and SLAM 💪#MotorolaMagicMoment I @Moto pic.twitter.com/R4FtXK1X8f— Turkish Airlines EuroLeague (@EuroLeague) March 25, 2025 Heimaliðið fékk hins vegar tvö vítaskot og munurinn fimm stig fyrir fjórða leikhluta. Þar átti Alba Berlín aldrei möguleika, lokatölur 85-71. Martin Hermannsson verður ekki sakaður um að leggja ekki sitt á vogarskálarnar í kvöld. Hann gaf hverja stoðsendinguna á fætur annarri og endaði með 13 talsins í kvöld. Enginn annar komst nálægt honum í þeim tölfræðiflokknum. Ofan á það skoraði Martin fjögur stig og tók jafnframt fjögur fráköst. Þegar 30 leikir eru búnir hefur Alba Berlín aðeins unnið fimm og því tapað 25 leikjum. Liðið er í botnsæti Evrópudeildarinnar, tveimur sigrum frá næsta liði.
Körfubolti Evrópudeildin í körfubolta karla Mest lesið Snéru heim eins og rokkstjörnur og komust á súluna á Astró Fótbolti Köstuðu blysum en segja hina hafa hrækt og hellt bjór á leikmenn Handbolti Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Körfubolti Glódís ekki með í landsleikjunum Fótbolti Haaland yfirgaf völlinn á hækjum og í spelku Fótbolti Lýsa miklum áhuga Arsenal á manninum sem Man. Utd þráir Enski boltinn Vill hópfjármögnun fyrir Antony Fótbolti Besta-spáin 2025: Að finna sér nýjan samastað í tilverunni Íslenski boltinn Hafa engar áhyggjur af hugarfari Njarðvíkinga Körfubolti Bein útsending: Nýr landsliðsþjálfari kynntur Körfubolti Fleiri fréttir Pekka Salminen nýr landsliðsþjálfari Bein útsending: Nýr landsliðsþjálfari kynntur Hópslagsmál í NBA og sjö hent úr húsi Hafa engar áhyggjur af hugarfari Njarðvíkinga Tryggvi með rifu í vöðva og verður frá næstu vikur Svefnlítill Emil sagði stopp en var stressaður fyrir kveðjustundinni Eini þjálfarinn sem hefur orðið deildarmeistari og dottið strax út „Flotti fíni Garðabær á móti Breiðholtinu“ „Trúi á fyrirgefningu og að fólk eigi að fá annað tækifæri“ Sjáðu fimm bestu tilþrifin og kjóstu Sabonis ekki með Litháen á EM Ráku sigursælasta þjálfarann rétt fyrir úrslitakeppnina Voru fimm stigum undir þegar 12,6 sekúndur voru eftir en unnu samt Þóra og Ægir best en engin verðlaun í Skagafjörð Þau bestu verðlaunuð á lokahófi KKÍ Miðasalan á EM er hafin Martin um EM dráttinn: „Yrðu algjör forréttindi að mæta þeim á vellinum“ „Verður gott að fá meiri frítíma en mun sakna strákanna“ Kjartan Atli: Undirbúningurinn fyrir úrslitakeppnina byrjar strax uppi á hóteli „Er ekki alveg eins gott að byrja á þeim?“ „Heimavöllurinn gefur þér ekki neina sigra“ Baldur: Ég reikna með að hinir leikirnir séu löngu búnir „Verð áfram nema Jóhanna reki mig“ „Málum alla staði sem við spilum á bláa og hvíta“ „Ætlum ekki að vera farþegar í úrslitakeppinni“ Uppgjörið: Þór - Keflavík 114-119 | Keflvíkingar tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni Uppgjörið: Stjarnan - Njarðvík 103-110 | Tókst ekki að stela öðru sætinu Uppgjörið: Tindastóll - Valur 88-74 | Tindastóll er deildarmeistari Uppgjörið: Grindavík - KR 86-83 | Tímabilinu lokið hjá KR en Grindavík mætir Val Leik lokið: Haukar - ÍR 80-91 | ÍR-ingar tryggðu sér sjöunda sætið Sjá meira