Innlent

Líf hans í hættu ef hann leitaði til lög­reglu

Jón Þór Stefánsson skrifar
Í ákærunni segir að bíl mannanna hafi verið ekið að Gróttuvita en síðan snúið við.
Í ákærunni segir að bíl mannanna hafi verið ekið að Gróttuvita en síðan snúið við. Vísir/Vilhelm

Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir frelsisviptingu og tilraun til ráns í því skyni að afa verðmæti af fórnarlambi þeirra. Mennirnir, sem eru tveir á fimmtugsaldri og einn á þrítugsaldri, eru sagðir hafa framið þessi meintu brot sín í Reykjavík og reyndar líka á Seltjarnarnesi.

Í ákæru, sem er birt í Lögbirtingablaðinu, segir að sunnudagskvöldið 14. júní 2020 hafi yngsti árásarmaðurinn hringt í fórnarlamb þeirra, annan mann, og mælt sér mót við hann við heimili hans í miðbænum. Þar hafi ungi árásarmaðurinn reynt að fá hinn manninn inn í bíl, en hann hörfað.

Ungi árásarmaðurinn og einn þeirra eldri hafi þá náð honum á hlaupum, veist að honum með ofbeldi og sparkað í hann liggjandi. Sá ungi er sagður hafa slegið hann með felgulykli og síðan hafi þeir neytt manninn í bílinn gegn vilja hans.

Þriðji árásarmaðurinn mun hafa ekið bílnum að Gróttuvita, en þar var henni snúið við.

Ógeðfelldar lýsingar

Á meðan ökuferðinni stóð mun annar eldri árásarmannanna hafa veitt manninum ítrekuð hnefahögg, og högg og stungur með felgulykli. Árásarmennirnir eru sagðir hafa krafist þess að maðurinn myndi greiða þeim peninga innan mánaðar. Þá hafi þeir hótað manninum því að líf hans væri í hættu ef hann leitaði til lögreglunnar.

Bíllinn mun að endingu hafa verið stöðvaður af lögreglu í Tryggvagötu.

Í ákæru segir að maðurinn sem varð fyrir árásinni hafi hlotið ýmsa áverka víðs vegar um líkamann, meðal annars „marbletti, eymsl og kúlur yfir hægra auga, skurð framan við og ofan við vinstra eyra sem þurfti að sauma.“

Þess er krafist fyrir hans hönd að mennirnir þrír greiði honum 1,5 milljónir króna í miskabætur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×