Viðskipti innlent

Laun eftir kjara­samningi „gervi­stéttarfélags“ sögð tugum þúsunda lægri

Kjartan Kjartansson skrifar
Efling og SVEIT hafa eldað grátt silfur saman undanfarna mánuði vegna Virðingar sem Efling heldur fram að sé gervistéttarfélag.
Efling og SVEIT hafa eldað grátt silfur saman undanfarna mánuði vegna Virðingar sem Efling heldur fram að sé gervistéttarfélag. Vísir/Egill

Stéttarfélagið Efling fullyrðir að nýr kjarasamningur veitingamanna við Virðingu sé óhagstæður fyrir þorra starfsfólks veitingahúsa. Tugum þúsunda króna muni á launum samkvæmt samningnum við Virðingu annars vegar og Eflingarsamningnum hins vegar. Efling hefur sakað Virðingu um að vera „gervistéttarfélag“.

Efling og SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, hafa eldað grátt silfur saman undanfarin misseri í tengslum við Virðingu sem Efling heldur fram að sé ekki raunverulegt stéttarfélag heldur framlenging á hagsmunum veitingahúsaeigenda.

Rúmlega fjörutíu þúsund krónum munur á launum almennra veitingahúsastarfsmanna eftir því hvort þeir fá greitt eftir kjarasamningi Virðingar og SVEIT annars vegar og Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar. Munurinn verður rúmlega 45 þúsund krónur þegar nýr launataxti tekur gildi fyrir eflingarfólks um mánaðamótin samkvæmt tölum sem Efling hefur tekið saman.

Virðingarsamningurinn feli í sér umtalsvert lakari launakjör fyrir þorra veitingahúsastarfsfólks þrátt fyrir að dagvinnutaxti sé lítillega hærri en í kjarasamningi Eflingar. Ástæðan sé sú að samkvæmt samningi Virðingar sé dagvinnutími lengdur um þrjár klukkustundir á hverjum degi. Þannig sé greitt fyrir dagvinnu á milli klukkan 17:00 og 20:00 eftir samningi Virðingar en yfirvinna eftir samningi Eflingar. Þá sé álagsprósenta fyrir kvöld- og helgarvinnu lægri hjá Virðingu en Eflingu.

Heldur Efling því enn fram að kjarasamningur Virðingar og SVEIT sé ólöglegur þar sem hann feli í sér ólögmætt samráð atvinnurekenda um kaup og kjör starfsmanna sinna. Efling, Alþýðusamband Íslands og Starfsgreinasambandið kvörtuðu undan samráðinu til Samkeppniseftirlitsins fyrr í þessum mánuði.


Tengdar fréttir

Samkeppniseftirlitið ætlar að skoða kvörtun verkalýðsfélaga

ASÍ, Efling og SGS kvörtuðu í dag til  Samkeppniseftirlitins vegna meintra samkeppnislagabrota fyrirtækja á veitingamarkaði. Þau halda því fram að SVEIT hafi stofnað gervistéttarfélag til að veikja kjör launafólks og samið svo við það. Eftirlitið hefur ákveðið að taka málið til skoðunar. Formaður Eflingar segir um að ræða eitt alvarlegasta mál sinnar tegundar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×