Innlent

„Aflögunin er núna komin yfir öll fyrri mörk“

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðingur hjá Veðurstofunni.
Benedikt Gunnar Ófeigsson, sérfræðingur hjá Veðurstofunni. vísir

Almannavarnir þurfa að vera undir það búnar að gosvirkni færist á milli eldstöðvakerfa á Reykjanesi. Þetta segir Benedikt Gunnar Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands. Hann telur líklegt að séum við í stödd í miðjum lokakaflanum í yfirstandandi eldgosahrinu við Svartsengi.

Biðin eftir næsta eldgosi á Reykjanesskaganum – sem verður það áttunda í yfirstandandi goshrinu ef af verður – lengist og lengist. Nú eru liðnir rúmir fjórir mánuðir síðan síðast gaus á svæðinu og segja náttúruvársérfræðingar að fljótlega fari að draga til tíðinda.

Verulega hefur hægst á kvikusöfnun undir Svartsengi og er áætlað að hraðinn sé um það bil fjórðungur af því sem hann var við upphaf goshrinunnar. Aukin skjálftavirkni mælist nú við Sundhnúksgíga og Svartsengi.

„En einnig virðist vera aðeins meiri skjálftavirkni á Reykjanesinu öllu sem gæti þá tengst því að aflögunin er núna komin yfir öll fyrri mörk. Ég held að við verðum gera ráð fyrir að það geti gosið hvenær sem er.“

Benedikt segir líkur á að virknin muni færast yfir í nærliggjandi goskerfi þegar virknin klárast í Svartsengiskerfinu – sem hann raunar telur að styttist í – og þá þurfi Almannavarnir að vera við öllu búnar.

„Mögulega getum við fengið að sjá, eftir einhver misseri, mánuði, ár eða jafnvel áratugi að einhver önnur eldstöð verði virk. Við getum verið að tala um Reykjanes, það er að segja Reykjanestá, gæti verið Eldvörp, Krýsuvík eða einhver önnur jafnvel austar. Við vitum það ekki og við höfum enga leið til að spá fyrir um hvað sé næst eða hvenær.“

Versta sviðsmyndin – þó ólíkleg sé – væri virkni í Krýsuvík því hún er næst höfuðborgarsvæðinu.

„Við erum ekki að tala um gos innan höfuðborgarsvæðisins en það geta verið sprunguhreyfingar það eru þekktar spurngur sem liggja í gegnum hluta af því svæði og það eru hraun inni á höfuðborgarsvæðinu. Þetta er ekki líklegt en þetta er samt möguleiki.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×