Íslenski boltinn

LUÍH: Kom aldrei til greina að fórna „Maggiball“

Sindri Sverrisson skrifar
Magnús Már Einarsson er þjálfari fyrsta Aftureldingarliðsins sem spilar í efstu deild karla í fótbolta.
Magnús Már Einarsson er þjálfari fyrsta Aftureldingarliðsins sem spilar í efstu deild karla í fótbolta. Stöð 2 Sport

Magnús Már Einarsson tók við þjálfun Aftureldingar í nóvember 2019, þá þrítugur að aldri. Hann er nú mættur með liðið í efstu deild karla í fótbolta. Leikstíllinn hefur vakið athygli og Magnús fór yfir það í nýjasta þætti Lengsta undirbúningstímabils í heimi.

Brot úr þættinum má sjá hér að neðan.

Klippa: LUÍH - Maggiball hjá Aftureldingu

Afturelding á sviðið í fyrsta þætti nýrrar seríu af LUÍH, þar sem Baldur Sigurðsson heimsækir liðin í Bestu deildum karla og kvenna.

Hann ræddi til að mynda við bræðurna Axel og Jökul, og pabba þeirra Andrés Guðmundsson.

Í spjalli sínu við Magnús þjálfara spurði Baldur út í leikstíl Aftureldingar sem gárungarnir hafa kallað „Maggiball“, og sagði:

„Það er mikið talað um Aftureldingu og leikstílinn sem þú varst að innleiða. Það hefur á ákveðinn hátt sett pressu á ykkur og þig sem þjálfara. Varstu einhvern tímann nálægt því að gefast upp?“

Aldrei nálægt því að breyta um stefnu

Magnús var fljótur að svara:

„Nei, alls ekki. Þetta snerist meira um að verða betri í því sem við erum góðir í. Það tók tíma. Við vorum líka með ungt lið, mikið með skólastráka sem voru að fara til Bandaríkjanna þannig að það losnaði um þetta í lok tímabils og gengið dalaði. Það voru ýmsar breytur sem maður vissi að þyrfti að laga til að þetta gengi upp.

Við vorum aldrei nálægt því að fara að breyta því. Auðvitað höfum við í einstaka leikjum þurft að breyta til en heilt yfir höfum við reynt að verða betri í því sem við erum góðir í og ætlum að halda því áfram.“

Afturelding spilar sinn fyrsta leik í Bestu deild karla, þann fyrsta frá upphafi, laugardaginn 5. apríl þegar liðið sækir Breiðablik heim. Þar verður bróðir Magnúsar, Anton Ari, einmitt í marki heimamanna.

Þáttinn má finna í heild sinni í vefsjónvarpi Stöðvar 2 en þættirnir eru sýndir á Stöð 2 Sport á mánudagskvöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×