Íslenski boltinn

Lærðu að fagna eins og verðandi feður

Sindri Sverrisson skrifar
„Verðandi feður“-fagnið gæti orðið áberandi í Bestu deildinni í sumar.
„Verðandi feður“-fagnið gæti orðið áberandi í Bestu deildinni í sumar. Stöð 2 Sport

Anna Svava Knútsdóttir heldur áfram að koma með ráð fyrir leikmenn Bestu deildar kvenna, fyrir fótboltasumarið. Í nýjustu auglýsingunni fer hún yfir það hvernig á að fagna mörkum.

Besta deild kvenna rúllar af stað á morgun og miðvikudag með heillri umferð og því ekki seinna vænna fyrir leikmenn að ákveða hvernig þeir ætla að fagna mörkum.

Í þetta sinn er Anna Svava með leikmenn Tindastóls, nú á sínu þriðja ári í röð í efstu deild, í þjálfun. Hún fær þær til að fagna eins og verðandi feður — þreytt á því að fótboltamenn eigi það til að fagna eins og þeir séu kona með barn í maganum, þegar þeir eru að verða pabbar.

Klippa: Anna Svava kennir leikmönnum að fagna

Það gæti heldur betur reynst dýrmætt fyrir leikmenn Tindastóls að fagna mörkum á miðvikudaginn, þegar liðið tekur á móti nýliðum FHL á Króknum en báðum þessum liðum er spáð bullandi fallbaráttu.

Leikina í 1. umferð má sjá hér að neðan.

Fyrsta umferð Bestu deildar

Þriðjudagur 15. apríl:

  • 18.00 Breiðablik - Stjarnan
  • 18.00 Þróttur - Fram

Miðvikudagur 16. apríl:

  • 18.00 Tindastóll - FHL
  • 18.00 Valur - FH
  • 18.00 Víkingur - Þór/KA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×