Innlent

Á­reitið hafði mikil á­hrif

Bjarki Sigurðsson skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir áreiti í garð starfsfólks sendiráðs Rússlands hafa verið stóra ástæðu fyrir því að sendiráðinu var lokað.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir áreiti í garð starfsfólks sendiráðs Rússlands hafa verið stóra ástæðu fyrir því að sendiráðinu var lokað. Vísir/Arnar

Starfsmenn íslenska sendiráðsins í Moskvu urðu fyrir ítrekuðu áreiti áður en því var lokað fyrir tæpum tveimur árum. Starfsmenn hafi fundið augljós ummerki um að brotist hafi verið inn til þeirra. Utanríkisráðherra segir áreitið stóran hluta þess að sendiráðinu var lokað.

Breski miðillinn Daily Express greindi frá því á miðvikudag að vikurnar áður en íslensk stjórnvöld lokuðu sendiráðinu hafi starfsfólk lent í því að opið var inn á heimili þeirra og aska úr sígarettum þar víða. Einn starfsmaður sem var grænmetisæta fann steik í ísskápnum sínum sem einhver óprúttinn hafði komið fyrir þar.

Ísland var fyrsta ríkið til að loka sendiráði sínu í Rússlandi eftir að Rússar réðust inn í Úkraínu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist nýlega hafa verið upplýst um málið.

„Ég get ekki tjáð mig um tiltekin tilvik. Hvort sem varðar starfsfólk eða tilvikin sjálf. En það er ljóst að það var brotið á friðhelgi starfsfólks okkar. Það er frumskylda okkar hér í utanríkisráðuneytinu að standa vörð og passa upp á fólkið okkar. Eðlilega var þetta mikilvæg og stór breyta inn í þá ákvörðun sem varð til þess að við lokuðum sendiráðinu,“ segir Þorgerður. 

Breskur prófessor vill meina að með þessu hafi rússnesk stjórnvöld verið að sýna að þeir kæmust inn á heimili fulltrúanna þegar þeim sýndist. Þeir hafi viljað neyða Ísland í að loka sendiráðinu. Með þessu hafi þeir brotið gegn Vínarsáttmálanum sem á að tryggja öryggi erlendra sendimanna.

Er eitthvað vitað hvort rússneska ríkið kom eitthvað nálægt þessu?

„Hver sem það var sem braust þarna inn, það er viðkomandi ríkis að tryggja öryggi sendiráðsstarfsfólks samkvæmt Vínarsáttmálanum. Það var einfaldlega það sem við vorum að benda Rússunum á,“ segir Þorgerður. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×