Albert gulltryggði sigurinn gegn Juventus Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. mars 2025 16:30 Albert Guðmundsson fagnar marki sínu. Gabriele Maltinti/Getty Images Landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson skoraði þriðja marka Fiorentina er liðið vann öruggan sigur gegn Juventus í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Albert er kominn á fulla ferð eftir að hafa náð sér eftir meiðsli og hafði skorað í seinustu tveimur leikjum Fiorentina. Hann var á sínum stað í byrjunarliði Fiorentina í kvöld, en Robin Gosens kom heimamönnum yfir strax á 15. mínútu leiksins. Aðeins þremur mínútum síðar tvöfaldaði Rolando Mandragora forystu Fiorentina og staðan því 2-0 í hálfleik. Heimamenn byrjuðu síðari hálfleikinn svo af miklum krafti og Albert bætti þriðja marki Fiorentina við á 53. mínútu. Fleiri urðu mörkin hins vegar ekki. Niðurstaðan því öruggur 3-0 sigur Fiorentina og liðið situr nú í áttunda sæti ítölsku deildarinnar með 48 stig eftir 29 leiki, fjórum stigum minna en Juventus sem situr í fimmta sæti. Ítalski boltinn