Innlent

Einn hand­tekinn til við­bótar í mann­dráps­máli

Jón Þór Stefánsson skrifar
Sakborningar voru leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Suðurlands í gær.
Sakborningar voru leiddir fyrir dómara í Héraðsdómi Suðurlands í gær.

Einn til viðbótar hefur verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi á manndrápi. Tveir karlar og eina kona sæta gæsluvarðhaldi en samkvæmt heimildum fréttastofu hefur lítið verið að fá upp úr sakborningum sem sæta varðhaldi næstu vikuna. Alls hafa níu verið handteknir við rannsókn málsins.

Í nýrri tilkynningu lögreglunnar kemur einnig fram að lögregla hafi frá því rannsókn hófst lagt hald á nokkrar bifreiðar, farið í húsleitir og yfirheyrt fjölda vitna. Tilkynning lögreglu er í heild sinni að neðan.

Samkvæmt heimildum fréttastofu er annar karlmaðurinn í gæsluvarðahaldi átján ára gamall. Heimildir RÚV herma að konan sé á fertugsaldri. 

Hinn karlinn heitir Stefán Blackburn, en hann hefur ítrekað hlotið dóma fyrir ofbeldisbrot hér á landi. Fyrst hlaut hann dóm árið 2007, þá einungis fimmtán ára gamall. Næstu sex árin var hann dæmdur ítrekað en líklega vakti hið svokallaða Stokkseyrarmál mesta athygli.

Karlmaður á sjötugsaldri fannst þungt haldinn á göngustíg í Gufunesi snemma á þriðjudagsmorgun og lést samkvæmt tilkynningu lögreglunnar stuttu eftir komu á spítala.

Lögregla hóf leit að manninum kvöldið áður eftir tilkynningu um að hann hefði horfið af heimili sínu og óttast væri um hann. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglu kviknaði fljótlega grunur að um frelsissviptingu væri að ræða.

Lögreglan hefur upplýst um að á meðal þess sem er til rannsóknar sé fjárkúgun.

Tilkynning lögreglunnar 13.3.2025

Umfangsmikilli rannsókn lögreglunnar á máli er varðar frelsissviptingu, fjárkúgun og manndráp miðar vel. Rannsóknin er þó enn á frumstigum. Líkt og fram hefur komið voru þrír aðilar, tveir karlmenn og ein kona, úrskurðuð í vikulangt gæsluvarðhald í héraðsdómi Suðurlands í gær.

Í dag var einn aðili til viðbótar handtekinn í þágu rannsóknar málsins og er nú í haldi lögreglu. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir honum. Við rannsóknina hefur m.a. verið lagt hald á nokkrar bifreiðar, framkvæmdar hafa verið húsleitir og fjöldi vitna hefur verið yfirheyrður.

Auk aðstoðar frá öðrum lögregluembættum við rannsóknina hefur almenningur veitt lögreglunni á Suðurlandi gagnlegar ábendingar og myndefni.

Áfram verður unnið af kappi við rannsóknina en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×