Viðskipti erlent

Northvolt í þrot

Atli Ísleifsson skrifar
Um fimm þúsund starfsmenn Northvolt missa vinnuna, flestir í Skellefteå.
Um fimm þúsund starfsmenn Northvolt missa vinnuna, flestir í Skellefteå. Vísir/NTB

Sænski rafhlöðuframleiðandinn Northvolt hefur lýst yfir gjaldþroti. Starfsfólki var tilkynnt um þetta í morgun. Miklar vonir voru á sínum tíma gerðar til félagsins þegar kom að orkuskiptum, en vegna mikilla fjárhagsvandræða hefur gjaldþrot verið yfirvofandi síðustu misserin.

Sænska ríkisútvarpið greinir frá því að stjórn félagsins hafi skilað inn gögnum til héraðsdóms í Stokkhólmi um gjaldþrot félagsins í Svíþjóð. Ákvörðunin var tekin á aukastjórnarfundi í gærkvöldi.

„Þetta er ótrúlega erfiður dagur fyrir alla í Northvolt,“ segir Tom Johnstone, bráðabirgðaforstjóri félagsins við SVT. Um fimm þúsund manns starfa hjá Northvolt í Svíþjóð, flestir í Skellefteå í Norður-Svíþjóð, en einnig í Västerås og Stokkhólmi.

Í yfirlýsingu segir að félagið hafi velt öllum steinum – sótt um greiðsluskjól, reynt að endurfjármagna og semja við lánardrottna – en að niðurstaðan sé að félagið geti ekki starfað lengur í núverandi mynd.

Gjaldþrotið nær til Northvolt AB, Northvolt Ett AB, Northvolt Labs AB, Northvolt Revolt AB og Northvolt Systems AB, en ekki Northvolt Germany og Northvolt North America.

Reksturinn hefur gengið erfiðlega þar sem ekki hefur tekist að koma framleiðslunni á rafhlöðunum almennilega á skrið. Vonast var til að rafhlöður Northvolt gæti hafið almennilega innreið á evrópskum rafbílamarkaði og þannig dregið úr innflutningi á rafhlöðum frá Kína. Hafði félagið sótt margra milljarða dala í fjármögnun frá félögum á borð við Goldman Sachs, Siemens og Volkswagen.

Northvolt hafði verið í greiðslustöðvun í Bandaríkjunum síðan í nóvember. Áður hafði það sótt um gjaldþrotavernd samkvæmt 11. kafla gjaldþrotaskiptalaga Bandaríkjanna eftir að viðræður um fjármögnun til skamms tíma sigldu í strand.


Tengdar fréttir

Segja nýja sænska rafhlöðu byltingarkennda

Forsvarsmenn eina framleiðanda rafhlaðna í Evrópu, sænska fyrirtækisins Northvolt, segjast hafa fundið upp nýja tegund rafhlöðu sem í framtíðinni geti meðal annars nýst í framleiðslu á rafbílum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×