Innlent

Bein út­sending: Ás­geir og Þórarinn ræða skýrslur peninga­stefnu­nefndar

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri  peningastefnu eru gestir fundarins.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu eru gestir fundarins. Vísir/Vilhelm

Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis heldur opinn fund í dag þar sem fjallað verður um skýrslur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands til Alþingis fyrir árið 2024.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu steymi í spilaranum að neðan og hefst klukkan 9.

Gestir fundarins verða Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri peningastefnu.

Fundurinn fer fram í Smiðju og hefst klukkan 9.

Arna Lára Jónsdóttir Samfylkingu er formaður nefndarinnar en aðrir nefndarmenn eru Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir Miðflokki, Ragna Sigurðardóttir Samfylkingu, Pawel Bartoszek Viðreisn, Ragnar Þór Ingólfsson Flokki fólksins, Sigmundur Ernir Rúnarsson Samfylkingu, Stefán Vagn Stefánsson Framsóknarflokki, Vilhjálmur Árnason Sjálfstæðisflokki og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir Sjálfstæðisflokki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×