Viðskipti innlent

Al­vogen lýkur endur­fjár­mögnun allra lang­tíma­lána

Atli Ísleifsson skrifar
Róbert Wessman leiðir Aztic sem á stóran hlut í Alvogen.
Róbert Wessman leiðir Aztic sem á stóran hlut í Alvogen. Vísir/Vilhelm

Alvogen Pharma US, Inc. hefur lokið endurfjármögnun allra langtímalána félagsins. Lánstíminn er þar lengdur og skuldsetning lækkuð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Alvogen. Þar segir að nýju lánin samanstandi af 553 milljóna veðláni með gjalddaga á árinu 2028 og 116 milljóna dollara veðláni með gjalddaga á árinu 2029.

„Með nýju lántökunni er búið að endurfjármagna öll langtímalán félagsins, sem voru með gjalddaga síðar á þessu ári. Heildarskuldsetning lækkar um 60 milljónir dollara og jafngildir um 1,4 sinnum EBITDA framlegð síðastliðins árs.

Þá tilkynnti Alvogen einnig að lokið væri framlengingu á 240 milljóna dollara lánalínu (e. ABL revolving credit facility).

Alvogen gerir ráð fyrir því að Standard & Poors („S&P“) muni á næstu dögum gefa út nýtt lánshæfismat fyrir félagið, sem endurspegli bætta lausafjárstöðu, sterka rekstrarstöðu, lengingu lánstíma á langtímaskuldum og lækkun skuldsetningar félagsins. Þar til nýja lánshæfismatið verður gefið út, kveða reglur S&P á um að gefa þurfi út lánshæfismat til skamms tíma. Þetta skammtíma lánshæfismat endurspeglar ekki áhrif endurfjármögnunarinnar eða sterka stöðu félagsins, sem skilaði um 480 milljónum dala í framlegð á síðasta ári fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Lisu Graver, forstjóra Alvogen, að félagið sé mjög ánægt að hafa lokið þessari mikilvægu fjármögnun fyrir Alvogen, sem undirstriki „fjárhagslegan styrk félagsins, hóflega skuldsetningu til langs tíma og góða lausafjárstöðu, og viðheldur einnig nauðsynlegum sveigjanleika til að geta útfært langtímastefnu félagsins“.

Fjárfestingabankarnir Goldman Sachs og Jefferies voru fjárhagslegir ráðgjafar Alvogen við viðskiptin en lögfræðistofan White & Case veitti lögfræðilega ráðgjöf.

Um Aqtic

Aztiq fjárfestir í verkefnum á heilbrigðissviði til að stuðla að nýsköpun og framförum í lyfjaframleiðslu og líftækni. Aztiq kemur auga á og fjárfestir í lausnum sem geta hrundið af stað jákvæðum breytingum í heilbrigðisþjónustu. Róbert Wessman leiðir félagið og hjá því starfar hópur reyndra frumkvöðla og sérfræðinga.

Um Alvogen

Alvogen Pharma US („Alvogen“) sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu lyfja. Alvogen er með um 50 mismunandi tegundir lyfja á markaði og fjölmörg ný lyf í þróun. Helstu hluthafar Alvogen eru Aztiq, CVC Capital Partners og Temasek Holdings, í Singapore.

Lyf





Fleiri fréttir

Sjá meira


×